SKÝRSLAN: Breiðablik heldur áfram að vinna titla
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik voru heilt yfir betri í dag og fóru langt með leikinn í fyrri hálfleik en Breiðablik komst snemma yfir í leiknum og bætti við öðru fyrir hálfleik. Breiðablik byrjaði seinni hálfleikinn einnig betur og gerði liðið útum leikinn á 57.mínútu. FH kom sér ekkert að alvöru inn í leikinn fyrr en 20 mínútur voru eftir af leiknum og var það of seint og lönduðu Blikar 3-1 sigri.
Bestu leikmenn
1. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Hrafnhildur Ása var mjög góð í dag og mikill kraftur í henni og það verður gaman að fylgjast með henni í sumar. Hrafnhildur Ása skoraði eitt og lagði upp eitt.
2. Agla María Albertsdóttir
Fyrirliði Blika stendur alltaf fyrir sínu. Frábær á miðsvæðinu. Agla María skoraði þriðja mark Blika í dag og lagði upp eitt
Atvikið
Þriðja markið sem gékk frá þessu - Vandræðagangur í öftustu línu FH og Hrafnhildur Ása vann boltann, lagði hann á Öglu Maríu sem skoraði af miklu öryggi.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða það að Breiðablik eru meistarar meistaranna.
Vondur dagur
Thelma Lóa Hermannsdóttir fann sig ekki í fyrri hálfleik og var tekinn útaf í hálfleik.
Dómarinn - 7
Gunnar Freyr og hans menn dæmdu þennan leik fínt í dag.



