Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Mjólkurbikar karla
Malbikstöðin að Varmá
Afturelding
Afturelding
6 - 1
Ýmir
Ýmir
0 - 118' Breki OttóssonJoacim Emil Godhei Holtan 41'1 - 1Elmar Kári Enesson Cogic 45'2 - 1Óðinn Bjarkason 45'3 - 1Joacim Emil Godhei Holtan 55'4 - 1Bart Kooistra 78'5 - 1Róbert Agnar Daðason 86'6 - 1
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
Afturelding í 16-liða úrslit.
Afturelding
86. mín
MAAAARK!

Róbert Agnar Daðason

Virkilega vel klárað.
Ýmir
83. mín
Gult spjald

Tómas Breki Steingrímsson

Afturelding
78. mín
MAAAARK!

Bart Kooistra (stoðsending: Elmar Kári Enesson Cogic)

Ýmir
75. mín
Gult spjald

Óliver Úlfar Helgason

70. mín
Afturelding kemur boltanum í netið, Birkir Már Sævarsson, en flaggið á loft. Rangstaða.
Afturelding
67. mín
Gult spjald

Rikharður Smári Gröndal

Nýkominn inn sem varamaður og strax búinn að næla sér í gult spjald.
Afturelding
55. mín
MAAAARK!

Joacim Emil Godhei Holtan (stoðsending: Enes Þór Enesson Cogic)

Stefán markvörður með hræðilega sendingu úr markinu beint á Enes sem leggur á Holtan sem skorar.
Afturelding
49. mín
Gult spjald

Aron Elí Sævarsson

46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Afturelding kláraði þennan fyrri hálfleik með stæl
Minnum á að núna klukkan 14 verður flautað til leiks á Sauðárkróki þar sem Tindastóll tekur á móti Njarðvík og hægt er að fylgjast með beinni textalýsingu hér. Sá leikur er einnig sýndur beint á Livey.
Afturelding
45. mín
Afturelding með tvö mörk í uppbótartíma fyrri hálfleiks

Óðinn Bjarkason (stoðsending: Enes Þór Enesson Cogic)

Enes með skot sem er varið. Óðinn hirðir frákastið og skorar.
Afturelding
45. mín
Afturelding hefur snúið þessu við

Elmar Kári Enesson Cogic (stoðsending: Birkir Már Sævarsson)

Elmar með skot sem Stefán á að verja en boltinn lekur inn.
Afturelding
41. mín
MAAAARK!

Joacim Emil Godhei Holtan (stoðsending: Elmar Kári Enesson Cogic)

Frábær sending frá Elmari inn í teiginn. Norski sóknarmaðurinn Holtan sem gekk í raðir Aftureldingar í vor tekur skemmtilega á móti boltanum og klippir hann inn. Holtan er 27 ára gamall og var síðast á mála hjá Kongsvinger í B-deildinni í Noregi.
40. mín
Stutt í hálfleikinn og áfram sýna Ýmismenn framúrskarandi varnarleik.
23. mín
Ýmir skorar alltaf mörk
Leið liðsins í 32-liða úrslitin: Ýmir 7-0 Fálkar Ýmir 10-0 KFS 18-0 í Mjólkurbikarnum eins og staðan er núna!
Ýmir
18. mín
Skorar hann beint úr hornspyrnunni?

Breki Ottósson

Óvænt tíðindi. Ýmismenn ná forystunni eftir hornspyrnu. Breki með hornið og boltinn fer í gegnum þéttan pakka í markteignum og endar í netinu.
15. mín
Markalaust eftir stundarfjórðung
Afturelding meira með boltann eins og búist var við en Ýmismenn hafa staðið vaktina vel varnarlega.
1. mín
Livey - Horfðu á leikinn í beinni:
0. mín
Úrslitaþjónusta gegnum útsendingu Livey
Hér fylgjumst við með gangi mála í leik Aftureldingar og Ýmis. Ekki verður um ítarlega textalýsingu að ræða heldur verður úrslitaþjónusta í gegnum útsendingu Livey en báðir leikir dagsins verða í beinni þar. Afturelding, sem féll úr Bestu deildinni í fyrra, komst í 32-liða úrslitin með því að leggja ÍR í Lengjudeildarslag.
   29.03.2026 21:59
Sjáðu mörkin: Birkir Már lagði upp í sigri Aftureldingar
Kópavogsliðið Ýmir, sem spilar í 3. deild og er venslafélag HK, slátraði KFS frá Vestmanneyjum með tíu mörkum gegn engu í Kórnum og komst þar með í 32-liða úrslitin. Andri Már Harðarson, Breki Ottósson og Björn Ingi Sigurðsson voru allir með tvö mörk á haus.
   28.03.2026 17:15
Mjólkurbikarinn: Ýmir skoraði tíu - Suðurnesjaslagur í 32-liða úrslitum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Fylkismenn fyrstir í 16-liða úrslitin
Lengjubikarmeistarar Fylkis voru fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum. Þeir unnu KFA í fótboltaleik sem hófst í snjókomu í Árbænum en var kláraður í knatthúsi í Hafnarfirði!
   02.04.2026 17:15
Fylkismenn flúðu snjóinn og kláruðu furðulegan fótboltaleik
0. mín
32-liða úrslit Mjólkurbikarsins eru komin af stað!
Það eru tveir leikir á dagskrá þennan langa föstudag. Afturelding og Ýmir mætast í Mosó og svo leika Tindastóll og Njarðvík klukkan 14. föstudagur 3. apríl 13:00 Afturelding-Ýmir (Malbikstöðin að Varmá) 14:00 Tindastóll-Njarðvík (Sauðárkróksvöllur) laugardagur 4. apríl 12:00 ÍBV-Þróttur R. (Hásteinsvöllur) 14:00 Þór-FH (Boginn) 15:00 Höttur-KA (Rafey-völlurinn) 16:00 Vestri-Leiknir R. (Kerecisvöllurinn) 16:00 Kormákur/Hvöt-Breiðablik (Sauðárkróksvöllur) 17:00 Fram-Víkingur R. (Lambhagavöllurinn) sunnudagur 5. apríl 15:00 Stjarnan-Selfoss (Miðgarður) 15:00 Árbær-Ægir (Domusnovavöllurinn) mánudagur 6. apríl 13:00 Grindavík-Keflavík (BIRTU völlurinn) 13:00 Fjölnir-HK (Egilshöll) 13:00 ÍA-Haukar (Akraneshöllin) 14:00 Grótta-Álftanes (Vivaldivöllurinn) 16:00 KR-Valur (Meistaravellir)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.