Fotbolti.net
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Mjólkurbikar karla
Sauðárkróksvöllur
Tindastóll
Tindastóll
0 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 191' Símon Logi Thasaphong
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson

SKÝRSLAN: Njarðvík áfram - dramatískt mark í uppbótartíma

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum í dag væri helst getumunur og þolinmæði hjá Njarðvík, Þeir eru tveimur deildum fyrir ofan og leikurinn í dag var skyldusigur fyrir þá. Tindastólsmenn gerðu þeim þó mjög erfitt fyrir og varamaðurinn Símon Logi Thasaphong braut loksins ísinn í uppbótartíma þegar allt stefndi í framlengingu.

Bestu leikmenn

1. Bragi Karl Bjarkason

Var klárlega einn af sprækustu Njarðvíkurmönnunum inn á vellinum, náði oft að komast í ágætis stöður og átti fínar fyrirgjafir, vantaði bara herslumuninn fyrir framan markið en Nikola og varnarmenn Stólanna fleygðu sér fyrir allt. Arnleifur og Valdimar voru líka sprækir og fyrirliðinn Eiður Aron var solid varnalega þrátt fyrir að það hafi ekki verið mikið að gera hjá honum

2. Nikola Stoisavljevic

Var mjög góður í markinu hjá Tindastól og hélt þeim inn í leiknum sérstaklega í seinni hálfleik þegar hann átti frábærar vörslur. Benni og Björn Jökull áttu annars flotta takta í fyrrihálfleik en set shoutout á Styrmi Snæ 15 ára bakvörð hjá Stólunum sem vert verður að fylgjast með í sumar!

Atvikið

Verð að setja þetta á markið sem Símon Logi Thasaphong skorar í uppbótatíma og trygði Njarðvík áfram í 16. liða úrslitin. Allt stefndi í framlengignu og Njarðvík hafði klúðrað ca. 30 hornum á undan en Símon var vel vakandi. Komst í frákast eftir horn og þrumaði boltanum í netið

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það einfaldlega að Njarðvík er komið áfram í 16. liða úrslit Mjólkurbikarsins en Tindastólsmenn sitja eftir með sárt ennið.

Vondur dagur

Ef Njarðvík hefði ekki náð að pota inn þessu marki þá hefði þetta klárlega verið vondur dagur hjá þeim... Þetta var klárlega skyldusigur en þeir kláruðu þetta og því er vondi dagurinn líklega hjá Stólunum bara fyrir að fá þetta mark í andlitið í uppbótatíma. Það var enginn sem átti vondan leik per se.

Dómarinn - 7

Miðað við hasarinn í þessum leik þá var nóóóóg að gera hjá dómarateyminu í dag. Þeir náðu þó að halda sig við setta línu og bara fínasta frammistaða
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.