Fotbolti.net
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Mjólkurbikar karla
Sauðárkróksvöllur
Tindastóll
Tindastóll
0 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 191' Símon Logi Thasaphong
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson
Leik lokið!
0-1 staðan hér staðreynd Njarðvíkurmenn hljóta að anda léttar hér, með þessu marki en þessi leikur fer nú ekki í sögubækurnar sem þeirra besti leikur Tindastólsmenn naga sig líklega í handabökin eftir eitt augnablik sem fókusinn truflaðist Takk fyrir samfylgdina! skýrsla og viðtöl koma inn síðar í dag
91. mín
Úffffff, Þetta er svekkjandi fyrir Stólana, búnir að halda þeim allan leikinn og fá þetta svo í andlitið í uppbótartíma..
Njarðvík
91. mín
MAAAARK!

Símon Logi Thasaphong

Boltinn berst út á hann og hann þrumar honum inn markið
91. mín
Svend kemst í boltann hjá Braga, útfyrir endalínu og horn sem Arnleifur tekur
Njarðvík
90. mín
Gult spjald

Davíð Smári Lamude

Það er spjald á bekkinn
90. mín
VARSLA!
Valdimar tekur skotið, stefnir inn í samskeytin en Nikola ver frábærlega
89. mín
Njarðvík keyra í skyndisókn en ná ekki að nýta það, Tindastólsmenn komast til baka og hægja á þessu, síðan brotið á Valdimar
88. mín
Jónas Aron tekur spyrnuna inn á teig, Stólarnir halda þessu en ná ekki skoti á markið
Njarðvík
87. mín
Gult spjald

Leandro Fernandes

Brýtur á David
86. mín
Einhver miskilningur milli Sverris og Nikola sem Fernandes nýtir sér en boltinn hins vegar framhjá markinu
84. mín
Haukur kemst inn í teig, virðist vera brotið á honum en ekkert dæmt
Njarðvík
83. mín
Gult spjald

Jóhann Ægir Arnarsson

Stoppar skyndisókn
81. mín
ÚFFFFFF
Aron með skot utan af hægri kannti og hann smellur ofan á þverslánni, ég er nokkuð viss um að þetta sé hættulegasta færið hingað til, Nikola hefði ekki náð í boltann
80. mín
Bragi Karl fær sendingu inn fyrir er kominn einn í gegn setur boltann á markið en flaggið réttilega á loft
78. mín
Björn brýtur á Aroni, Arnleifur gerir sig kláran að taka spyrnuna, Jónas Aron liggur hins vegar þar sem Njarðvíkurmenn hafa stillt sér upp, Jónas stendur upp rétt snertir Valdimar sem hendir sér niður, nota bene boltinn er ekki í leik.... Dramaaaaa....
76. mín
Haukur brýtur á Arnleifi, þeir taka þetta stutt
Njarðvík
75. mín
InnArnar Helgi Magnússon
ÚtSigurjón Már Markússon
Tindastóll
73. mín
InnViktor Smári Davíðsson
ÚtDaníel Smári Sveinsson
73. mín
Valdimar tekur hornspyrnu en sóknarbrot dæmt á Njarðvík, þeir eru alls ekki að nýta öll þessi 100 horn sem þeir hafa fengið í þessum leik... Þetta lið á ekki að geta klúðrað svona mörgum spyrnum gegn 3. deildar liði...
Njarðvík
70. mín
InnSímon Logi Thasaphong
ÚtGuðmundur Magnússon
69. mín
Arnleifur tekur hornspyrnu, darraðardans í teignum en berst að lokum frá markinu
67. mín
Leikurinn í beinni á Livey:
66. mín
Arnleifur tekur horn en ekkert kemur úr þessu
65. mín
Varsla!
Bragi Karl með skalla á markið sem Nikola fleygir sér á
64. mín
Sigurjón brýtur á Daníel Smára, Svend setur boltann inn á teiginn, Guy Smit grípur síðan boltann en hann er klárlega út fyrir teig og allt tryllist en dómarinn segir að smá hluti hafi ekki verið útfyrir... sel það ekki dýrara en ég keypti það
60. mín
Bragi Karl reynir fyrirgjöf en Svend skallar boltann frá
60. mín
Guðmundur og Svend í baráttu í teignum, boltinn fer rétt framhjá markinu, Njarðvík kallar horn en markspyrna dæmd
Tindastóll
57. mín
InnMarko Zivkovic
ÚtBenjamín Jóhannes Gunnlaugarson
55. mín
Nikola!
Með sterka tvöfalda vörslu!
55. mín
Jónas Aron brýtur á Arnleifi, Valdimar tekur spyrnuna stutt á Fernandes sem reynir skot en það er hreinlega bara lélegt og enda svo í höndunum á Nikola
53. mín
Sverrir fær stungu inn fyrir vörn Njarðvíkur en flaggið fer á loft
51. mín
Fernandes brýtur á David, Svend tekur spyrnuna fram en Eiður Aron stekkur hæst og skallar boltann frá
51. mín
Daníel Smári og Fernandes í baráttu sem Daníel vinnur
Tindastóll
50. mín
Gult spjald

Styrmir Snær Rúnarsson

Brýtur á Valdimar og stoppar skyndisókn
49. mín
Guðmundur þakkar bara svo fyrir og brýtur á Nikola í marki Stólanna
48. mín
Guðmundur liggur hér við teiginn, Njarðvíkurmenn voru ekkert að pæla í að sparka boltanum útaf fyrir sinn mann, en hann er staðinn upp aftur eftir pásu hjá dómaranum
47. mín
Benni reynir skot en þrumar boltanum í Sigurjón
46. mín
Sverrir sparkar seinni hálfleiknum aftur á stað
45. mín
0-0 í hálfleik er ekki staðan sem ég bjóst við fyrirfram en hér erum við! Njarðvík hafa haft algjöra yfirhönd á leiknum líklega svona 75-80% með boltann og leikurinn hefur að mestu spilast á vallarhelmingi Stólanna en þeir hafa hins vegar ekki átt nein alvöru færi og Nikola í marki Tindastóls hefur í raun bara haft mjög lítið að gera miðað við þetta... Tindastólsmenn hafa verið mjög þéttir og agaðir og hafa haft gott auga fyrir skyndisóknum sem er klárlega þeirra beittasta vopn ásamt föstum leikatriðum Allt í allt þá á ég von á miklum hita í seinni hálfleik, Njarðvíkurmenn voru orðnir ansi pirraðir hér í lokinn og oft með heimskuleg brot. Stólarnir nærast á svona leikjum miðað við bikarævintýri þeirra í fyrra svo þetta verður einhver veisla í seinni hálfleik
45. mín
a.m.k ein mínúta í uppbótartíma
45. mín
En brjóta Njarðvíkurmenn og Jónas Aron tekur spyrnuna fram á við þar eru Sverrir og Addi en hvorugur nær þessu
44. mín
Benni með spyrnuna reynir að finna Sverri en Sigurjón kemst inn í þetta
44. mín
Guðmundur brýtur á Jónasi Aroni við teiginn hjá Stólunum Nikola tekur þetta langt, Eiður Aron brýtur þar á Sverri
42. mín
Jóhann Ægir, finnur Guðmund inn í teig en hann er alltof lengi að athafna sig og Jónas Aron er mættur í bakið á honum
40. mín
Jóhann Ægir, brýtur á Benna sem aftur er kominn á stað, þetta er hættan sem Njarðvík býr við með að hafa liðið sitt allt svona framarlega en skiljanlegt þegar þeir eru að reyna að leita að fyrsta markinu
38. mín
Benni tekur aukaspyrnuna sjálfur finnur kollinn á Svend en hann skallar framhjá
38. mín
Góð tilraun hjá Stólunum Benni fær stungu inn fyrir, Njarðvík með liðið sitt mjög framarlega og kalla eftir rangstæðu en Sigurjón brýtur svo á honum við vítateiginn, aukapsyrna réttilega dæmd
35. mín
Stefán Gísli reynir fyrirgjöf á Valdimar en David nær að trufla og boltinn endar út fyrir endalínu, markspyrna
34. mín
Arnar setur pressu á Sigurjón sem er í allskonar veseni, þarf að líta til baka og Tindastólsmenn ná að ýta liðinu ögn framar og losa pressu
32. mín
Stefán Gísli brýtur á Daníel Smára, Svend setur þetta fram á við en ekkert kemur úr þessu
30. mín
Fernandes setur boltann inn fyrir þar sem Bragi kemur á hlaupinu en flaggið fer réttilega á loft
29. mín
Bragi Karl brýtur á Sverri, Jónas Aron tekur spyrnuna og reynir að finna Arnar Ólafs á vinstri kanntinum en Njarðvíkurmenn komast inn í sendinguna
27. mín
Eiður Aron og Daníel Smári eiga í baráttu við teiginn, Eiður fellur en aukaspyrna dæmd á hann, þetta hefði alveg geta fallið Njarðvíkur megin frá mínu sjónarhorni..
26. mín
Arnleifur tekur hornspyrnu, en Stólarnir ná að koma þessu frá
26. mín
Ágætis sókn hjá Stólunum, Arnar Ólafs tekur boltann með sér inn á teig, er svo ekki viss hvort hann ætti að skjóta eða gefann fyrir en laus bolti allvega sem Guy Smit pikkar upp
24. mín
Valdimar tekur hornspyrnuna en boltinn svífur út fyrir endalínu
23. mín
Arnleifur tekur hornspyrnu, darraðardans í teignum endar með skoti frá Fernandes en Stólarnir ná að skalla frá
21. mín
Valdimar chippar boltanum á markið, Nikola rétt nær að blaka honum frá Jónas kemur honum svo í burtu
Tindastóll
19. mín
Gult spjald

Jónas Aron Ólafsson

Njarðvík
19. mín
Gult spjald

Bragi Karl Bjarkason

19. mín
Það eru góð læti hérna, Bragi tekur David harkalega niður og bæði leikmenn og bekkir beggja liða tryllast
17. mín
Arnleifur reynir stungu á Braga en flaggið fer á loft
15. mín
Bragi setur Anrleif í gegn, hann reynir fyrirgjöf en Jónas Aron skalalr þetta frá
15. mín
Bragi Karl fær sendingu inn fyrir, er aleinn en skýtur beint á Nikola í markinu, þarna á að gera betur..
14. mín
David nær að tækla boltann og stoppa skyndisókn hjá Njarðvík
13. mín
Lúmskt!
Jónas Aron tekur rangstöðu fast og langt, Þar er Benni fremstur manna nær snertingunni og boltinn rétt framhjá, Guy Smit var kominn úr markinu
11. mín
Fernandes setur boltann upp í horn á Stefán Gísla hann reynir fyrirgjöf en Daníel Smári kemst í þetta
10. mín
Guðmundur fær sendingu inn í teig reynir svo að snúa hann inn en boltinn yfir
9. mín
Daníel Smári fær sendingu upp í horn, reynir stutt spil við Arnar Ólafs en erfið sending sem ekkert kemur úr
7. mín
Leandro Fernandes reynir skot en það er yfir markið
6. mín
Leikurinn er eins og við var að búast að spilast að miklu leyti á vallarhelmingi Tindastóls, þeir hafa ekki mikið komist fram yfir miðju en þeir eru þéttir varnarlega og Njarðvíkurmenn hafa ekki náð að brjóta sér leið í gegn
3. mín
Aron á fyrirgjöf á Guðmund sem skallar hann út en Stólarnir ná að hreinsa
1. mín
Valdimar sparkar þessu af stað fyrir Njarðvík
0. mín
Þetta fer að hefjast
0. mín
Tindastóll
3. deildar lið Tindastóls hins vegar kemur í þennan leik með 3-1 sigri á KF og svo með því að leggja Magna af velli 3-1 sl. sunnud. Tindastóll var á eldi síðastliðið sumar þegar það komst alla leið í úrslit Fótbolta.net bikarsins. Þeim finnst ekki leiðinlegt að spila stóra bikarleiki gegn betri andstæðingum á blaði. Þeir hafa þó ekki verið að ríða feitum hesti í lengjubikarnum í ár en þeir sitja í neðsta sæti síns riðils án stiga. En það eitt sem víst er að þeir elska að spila bikarleiki og þessi ætti að kveikja vel í þeim
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
0. mín
Njarðvík
Lengjudeildarlið Njarðvíkur kemur inn í þennan leik eftir 5-2 sigur á liði Hvíta riddarans sl. mánudag. Njarðvík stóð sig gríðarlega vel síðasta sumar en laut í lægra haldi fyrir nágrönnum sínum í Keflavík í umspili um að komast upp í Bestu deildina. Í Lengjubikarnum í vetur sýndu þeir ágætis frammistöðu, enduðu í 3. sæti í sínum riðli á eftir KR og Víkingi. Það ætti því að vera nokkuð ljóst að krafa er um skyldusigur hjá stuðningsmönnum Njarðvíkur. En það gæti nú verið von á slatta af stuðningsfólki sem gerir sér glaðan dag og skjótist á krókinn en kvennalið Njarðvíkur í körfubolta spilar hér leik gegn Tindastól í úrslitakeppninni kl. 18:00, sannkallaður tvíhöfði sem fer fram á Sauðárkróki í dag!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Svona eru 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Skírdagur (í gær): 14:00 Fylkir - KFA: 2-0 Föstudagurinn langi (í dag): 13:00 Afturelding - Ýmir (Malbikstöðin að Varmá) 14:00 Tindastóll - Njarðvík (Sauðárkróksvöllur) Laugardagur: 12:00 ÍBV - Þróttur R. (Hásteinsvöllur) 14:00 Þór - FH (Boginn) 15:00 Höttur - KA (Rafey-völlurinn) 16:00 Kormákur/Hvöt - Breiðablik (Sauðárkróksvöllur) 17:00 Fram - Víkingur R. (Lambhagavöllurinn) Páskadagur (Sunnudagur): 15:00 Árbær - Ægir (Domusnovavöllurinn) 15:00 Stjarnan - Selfoss (Miðgarður) Annar í páskum (Mánudagur): 13:00 Grindavík - Keflavík (BIRTU-völlurinn) 13:00 Fjölnir - HK 13:00 ÍA - Haukar (Akraneshöllin) 14:00 Grótta - Álftanes (Vivaldivöllurinn) 16:00 KR - Valur (Meistaravellir) Laugardagurinn 11. apríl: 16:00 Vestri - Leiknir R. (Kerecis-völlurinn)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Mjólkurbikarinn kallar!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Sauðárkróksvelli þar sem Tindastóll tekur á móti Njarðvík í 32. liða úrslitum Mjólkurbikarsins Leikurinn hefst á slaginu 14:00!
Mynd: Snæbjört Pálsdóttir
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.