95. mín
Rautt spjald
Leik lokið!
Valsmenn ná í sinn fyrsta sigur á tímabilinu
Skýrsla og viðtöl á leiðinni
93. mín
Gult spjald
Felix Örn Friðriksson
Emil að koma vel inn hjá Valsmönnum. Felix ræður ekkert við hraða hans og brýtur á honum92. mín
InnAndi Hoti
ÚtDagur Orri Garðarsson
90. mín
Fjórum mínútum bætt við
90. mín
Lítið að frétta, Valsmenn verjast vel og jöfnunarmark liggur ekki beint í loftinu
87. mín
InnEmil Nönnu Sigurbjörnsson
ÚtAdam Ægir Pálsson
87. mín
InnOrri Sigurður Ómarsson
ÚtAlbin Skoglund
86. mín
Eyjamanna að halda boltanum vel, uppskera hornspyrnu
79. mín
Eyjamenn fá gott færi
Darraðadans í teig Valsmanna, endar með skoti frá Arnari Breka en Schram sér við honum
77. mín
Gult spjald
Jakob Franz Pálsson
Eyjamenn fá aukaspyrnu á vænlegum stað en Felix Örn skýtur yfir76. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtMilan Tomic
76. mín
InnArnór Ingi Kristinsson
ÚtBjarki Björn Gunnarsson
75. mín
Valsmenn nærri búnir að klára þetta
Tryggvi með gott hlaup, gefur út á Lúkas Loga sem á gott skot sem fer naumlega framhjá. Marcel hefði ekki varið þetta
73. mín
Heimamenn komnir yfir!
Hólmar Örn Eyjólfsson (stoðsending: Adam Ægir Pálsson)
Adam Ægir með góða hornspyrnu frá hægri. Hólmar hoppar manna hæst og skallar boltann í netið af stuttufæri73. mín
Dauðafæri hjá Valsmönnum
Dagur Orri og Tryggvi til skiptis en inn vildi boltinn ekki.
Valur hornspyrna
Valur hornspyrna
70. mín
Lúmskt skot hjá Adami Páls fyrir utan teig sem fer framhjá, Marcel virðist vera með þetta en fín tilraun engu að síður
68. mín

67. mín
Bjarki búinn að fá sinn skerf af höggum í dag

66. mín
InnBirkir Heimisson
ÚtMyles A Veldman
66. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtBjarni Mark Antonsson
65. mín

65. mín

63. mín
Gult spjald
Milan Tomic
63. mín
InnLiam Daði Jeffs
ÚtFilip Stuparevic
61. mín
Adam Ægir með sendingu í gegn á Tryggvi, Marcel nær fyrstur til hans en á lélega hreinsun sem berst til Lúkasar Loga. Markið hálftómt en skot hans er varið af varnarmanni
61. mín

59. mín
Greyið Bjarki
Veldman virðist gefa honum olnbogaskot. Ekkert dæmt og Eyjamenn ósáttir
57. mín
Gult spjald
Hermann Hreiðarsson
Hemmi búinn að tuða í fjórða dómara undanfarið og þegar Veldman er dæmdur brotlegur fyrir litlar sakir er honum ofboðið og fær að líta gult spjald48. mín
Dagur Orri gerir illa úr góðri stöðu
Flott sókn Valsmanna frá markmanni. Adam Ægir með sendingu frá hægri á Dag Orra sem er með nóg pláss til þess að athafna sig í teig gestanna en skýtur framhjá
46. mín
Gult spjald
Hörður Ingi Gunnarsson
46. mín
InnVitor Hugo Cruz Rocha
ÚtViggó Valgeirsson
Pisco heitir að vísu Vitor Hugo Cruz Rocha samkvæmt leikskýrslu
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Gestirnir gera eina breytingu
45. mín
-auglýsing

Hálfleikur og þá er tilvalið að kynnar sér liðskipan Framsóknar í Reykjavík. Þar leiðir Einar Þorsteinsson línuna í öflugu liði sem eingöngu er skipað miðjumönnum.
Framsókn

Hálfleikur og þá er tilvalið að kynnar sér liðskipan Framsóknar í Reykjavík. Þar leiðir Einar Þorsteinsson línuna í öflugu liði sem eingöngu er skipað miðjumönnum.
Framsókn
45. mín
Fjörugur hálfleikur að baki. Staðan er 1-1 og jafnræði með lið heilt yfir. Tökum okkur 15
45. mín
Fyrir að stöðva skyndisókn. Tekur á sig gula spjaldið
Gult spjald
Bjarki Björn Gunnarsson
+2Fyrir að stöðva skyndisókn. Tekur á sig gula spjaldið
43. mín
Aftur þarf Bjarki Björn aðhlynningu. Jakob Franz á neglu sem fer beint í andlitið á Bjarka. Þetta leit illa út
41. mín
Myles Veldman lofar góðu
Vinstri bakvörður Valsmanna búinn að eiga nokkrar frábærar fyrirgjafir og hornpyrnur. Hleypur upp og niður vinstri kantinn
36. mín
Góð sókn hjá Valsmönnum sem endar með góðri fyrirgjöf frá vinsti hjá Veldman. Boltinn breytir aðeins um stefnu. Dagur Orri nær nærri til boltans.
Valsmenn fá hornspyrnu í kjölfarið en ekkert verður úr henni
Valsmenn fá hornspyrnu í kjölfarið en ekkert verður úr henni
34. mín
Sláin!
Adam Ægir með skot langt fyrir utan teig. Boltinn fer af varnarmanni ÍBV og breytir hressilega um stefnu. Marcel í markinu er sigraður en því miður fyrir Valsmenn endar boltinn á ofanlegri slánni.
Þarna sluppu gestirnir með skrekkinn
Þarna sluppu gestirnir með skrekkinn
30. mín
Virkilega vel klárað
Valsmenn jafna!
Lúkas Logi Heimisson (stoðsending: Adam Ægir Pálsson)
Adam Ægir með fína fyrirgjöf frá hægri. Vandræðagangur í vörn Eyjamanna, boltinn berst til Lúkasar Loga. Hann leikur á varnarmenn ÍBV og á gott skot á nærstöng.Virkilega vel klárað
29. mín
Fín sókn Valsmann endar með viðstöðulausu skoti frá Albin Skoglund sem fer yfir
26. mín
Bjarki Björn þarf aðhlynningu. Væri vont að missa hann og Alex Frey í sama hálfleik
23. mín
Eftir darraðadans inn í teig Eyjamanna á Lúkas Logi skot sem fer yfir markið. Hann smellhitti boltann
22. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
Alex Freyr meiddur
21. mín
Skotið var þó ekki fast og Schram líklega ósáttur með sjálfan sig
Eyjamenn komnir yfir!
Felix Örn Friðriksson
Bjarni Mark skallar hornspyrnu frá sem hrekkur til Felixar. Hann á skot með vinstri fyrir utan teig sem fer út við stöng.Skotið var þó ekki fast og Schram líklega ósáttur með sjálfan sig
19. mín
Eyjamenn ógna
Filip á vinstri kantinum á misheppnaða sendingu inn í teig sem endar hjá Alex sem gefur á Viggó. Hann á lúmska tilraun sem hefði steinlegið inni ef boltinn hefði ekki farið naumlega framhjá
19. mín
Flott spil á vinstri kantinum, Viggó á Alex. Endar með slöku skoti fyrir utan teig frá Milan Tomic
15. mín
Besta færi leiksins
Adam Ægir með lúmska sendingu frá hægri, Tryggvi hársbreidd frá því að ná til boltans sem endar með markspyrnu. Valsmenn að með tökin á leiknum þessa stundina
11. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er Eyjamanna, hún er tekin stutt, endar með fínni fyrirgjöf frá Filip sem Schram handsamar
9. mín
Skyndisókn
Eyjamenn búnir að halda boltanum vel en um leið og þeir tapa honum keyra Valsarar upp, Tryggvi gerir vel og rennir boltanum á Dag Orra sem á laflaust skot beint á Zapytowski
4. mín
Fyrsta tilraunin
Gott samspil á milli Alex Freys, Viggós og Bjarka Björns sem á gott skot rétt fyrir utan teig sem fer naumlega framhjá
2. mín
Frægir á vellinum
Hinn sívinsæli dagskrárliður. Þorsteinn Gunnarsson borgarritari, Patrick Pedersen gefur bolamyndir, Hörður Hilmarsson baðar sig í sólinni, Valur Gunnarsson er mættur með skrifblokk, Kiddi Lár auðvitað mættur og að sjálfsögðu Palli Magg. Kveðja frá útsendaranum.
1. mín
Bjarni Mark sparkar þessu í gang fyrir heimamenn
Fyrir leik
Fjörið fer að byrja
Þá er þessi fyrsti leikur 2. umferðar Bestu deildarinnar að hefjast. Aðstæður eru frábærar. 9 gráður, sól og enginn vindur.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
Hemmi gerir tvær breytingar á sínu liði, þeir Adam Ægir Pálsson og Myles Veldman byrja á meðan Birkir Heimisson og Ingirmar Stöle fá sér sæti á bekkinn.
Linte gerir eina breytingu en Filip Stuparevic byrjar á meðan Arnar Breki Gunnarsson er á bekknum.
Linte gerir eina breytingu en Filip Stuparevic byrjar á meðan Arnar Breki Gunnarsson er á bekknum.
Fyrir leik
Ekki allir sáttir með þá ákvörðun að flýta leiknum
Eins og hefur komið fram átti þessi leikur upprunalega að hefjast klukkan 18 í kvöld en honum var flýtt vegna Herjólfs og öldugangs á milli Landeyjahafnar og Eyja. Herjólfur neyðist til að fara löngu leiðina frá Þorlákshöfn eins og í gamla daga.
Sigurbjörn Hreiðarsson hafði þetta að segja um málið:
Sigurbjörn Hreiðarsson hafði þetta að segja um málið:
Fyrir leik
Valsmenn í basli í byrjun móts
Ekki nóg með það að Valsmenn duttu úr bikarnum viku fyrir mót þegar KR vann mjög sannfærandi 4-2 sigur heldur tóku nýliðarnir að norðan Þór öll stigin þrjú á Hlíðarenda í fyrstu umferð.
Valur komst í 1-0 með marki frá Degi Orra Garðarssyni á 27. mínútu leiks en Þórsarar komu til baka með mörkum frá Christian Greko Jakobsen á 37. mínútu áður en Ingimar Arnar Kristjánsson tryggði sigur sinna manna á 89. mínútu leiks.

Dagur Orri er eini hreinræktaði framherji liðsins
Það yrði algjör krísa ef á Hlíðarenda ef Valur tapar sínum þriðja alvöru leik í röð og hvað þá tvisvar í röð á Hlíðarenda
Valur er þó á fullu að reyna að styrkja liðið og hefur nýlega boðið í Þorvald Smára leikmann HK, Hemmi ætti að þekkja kauða frá tíma sínum sem þjálfari HK.

Í fyrstu umferð Bestu deildarinnar fengu Eyjamenn gjörbreytt lið FH í heimsókn og þeim leik lauk með jafntefli 1-1.
Hinn ungi og efnilegi Viggó Valgeirsson kom heimamönnum yfir á 35. mínútu en Kári Kristjánsson sem kom frá Þrótti í sumar jafnaði metinn á 80. mínútu í leik þar sem Kjartan Kári misnotaði vítaspyrnu en honum til varnar þá varði Marcel Zapytowski frábærlega.

Viggó Valgeirsson var maður leiksins í fyrstu umferð

Marcel Zapytowski var góður í markinu í fyrstu umferð

Spámaður dagsins
Tónlistamaðurinn og fyrrum knattspyrnumaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson er spámaður vikunnar hjá Fótbolta.net og má fullyrða það að okkar maður sé ekki beint hlutlaus.
Valur 1 - 1 ÍBV
Ég er náttúrulega nýjasti stuðningsmaður ÍBV og það verða mínir menn í sumar, það er svakalega mikil jafnteflis lykt af þessu, Birkir Heimis potar honum inn í klafsi hann fyrir Valsara og Viggó setur hann fyrir okkur Eyjamenn.

Dómgæslan í dag
Það verður Sigurður Hjörtur Þrastarson sem dæmir þennan leik. Það voru ekki allir sáttir með hann í fyrstu umferð og ber þar helst að nefna Rúnar Kristinsson þjálfara Fram sem hafði þetta að segja eftir leik:
Fyrir leik
Hermann Hreiðarsson
Nýráðin þjálfari Valsmanna þarf ekki að kynna en það er enginn annar er fyrrum atvinnumaðurinn Hermann Hreiðarsson sem tók við eftir að Túfa fékk reisupassann eftir síðasta tímabil.
Það vekur óneitanlega athygli að Túfa hefði geta þjálfað í dag gegn gömlu félögunum sínum en hann afþakkaði starfið í Eyjum.
Það vekur óneitanlega athygli að Túfa hefði geta þjálfað í dag gegn gömlu félögunum sínum en hann afþakkaði starfið í Eyjum.
Fyrir leik
Bæði liðin með nýjan þjálfara fyrir mót
Byrjum á Eyjamönnum en Láki hætti nokkuð óvænt rétt fyrir áramót eftir furðulegar deilur við stórnina sem snérist að einhverju leiti um völd fyrirliða liðsins Alex Frey Hilmarsson.
Í kjölfarið var Aleksandar Linte ráðinn í staðinn og nú verður að sjá til hvort að hann nái sama árangri og Láki gerði í fyrra.
En Linte hefur talsverða reynslu sem leikmaður á Íslandi.
Í kjölfarið var Aleksandar Linte ráðinn í staðinn og nú verður að sjá til hvort að hann nái sama árangri og Láki gerði í fyrra.
En Linte hefur talsverða reynslu sem leikmaður á Íslandi.
Fyrir leik
Góðan dag kæru áhorfendur
Verið velkomin í beina lýsingu frá Hlíðarenda þegar Valsmenn fá Eyjamenn í heimsókn klukkan 16.30.

Þessum leik var flýtt um einn og hálfan klukkutíma vegna samgöngumála, líklegast þannig að Eyjamenn komast til síns heima að leik loknum.
föstudagur 17. apríl
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)

Aleksandar Linta
Þjálfari ÍBV fékk rautt fyrir mótmæli eftir leik.