Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Breiðablik
0
0
Þróttur R.
24.04.2026  -  19:15
Kópavogsvöllur
Besta kvenna
Dómari: Róbert Þór Guðmundsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Komnar og farnar hjá liðunum Breiðablik
Komnar
Bryndís Arna Níelsdóttir frá Svíþjóð
Taylor Kane frá Bandaríkjunum
Elísa Viðarsdóttir frá Val
Katelyn Duong frá Bandaríkjunum
Mikaela Nótt Pétursdóttir frá FHLk
Olga Ingibjörg Einarsdóttir frá Fram (var á láni)

Farnar
Andrea Rut Bjarnadóttir til Anderlecht
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir til Parma
Birta Georgsdóttir til Genoa
Heiða Ragney Viðarsdóttir til Eskilstuna
Heiðdís Lillýardóttir hætt
Jakobína Hjörvarsdóttir alfarið í Stjörnuna (var á láni)
Helga Rut Einarsdóttir í Val
Katherine Devine
Katrín Ásbjörnsdóttir hætt
Kyla Elizabeth Burns í KR
Samantha Smith til Boston Legacy
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir alfarið í Fram (var á láni)
Kristín Magdalena Barboza í Fram (var á láni hjá Haukum)
Berglind Björg Þorvaldsdóttir ólétt

Mynd: Breiðablik

Þróttur
Komnar
Maddie Ditta frá Bandaríkjunum
Björg Gunnlaugsdóttir frá FHL
Rósey Björgvinsdóttir frá FHL
Lexi Czerwien frá FHL
Kristrún Ýr Holm frá Keflavík

Farnar
Lea Björt Kristjánsdóttir í Grindavík/Njarðvík
Katie Cousins til Portúgals
Sierra Lelii hætt
Klara Mist Karlsdóttir í HK á láni

Mynd: Þróttur

Fyrir leik
Þrótti er spáð 5. sætinu Þróttur fer inn í nýtt tímabil í Bestu deildinni með vaxandi væntingar eftir tvö fín ár undir stjórn Óla Kristjáns, sem er núna orðinn aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins. Liðinu er spáð 5. sæti, sem kann að virðast hóflegt í ljósi framfara síðasta sumar þegar þær enduðu í þriðja sæti með 48 stig, sem er stigamet hjá félaginu.

„Jói er mættur i borg óttans með öll sín vopn. Katie Cousins er horfin á braut en kjarninn er til staðar og núna vill ég að leikmaður eins og Jelena taki næsta skref og verði leiðtogi liðsins. Kayla Rollins þarf að vera heil því Þróttur þarf á mörkum hennar að halda."


Fyrir leik
Breiðablik er spáð Íslandsmeistaratitlinum Breiðablik fer inn í tímabilið sem ríkjandi Íslands- og bikarmeistari og er spáð efsta sætinu á ný. Liðið var í sérflokki á síðasta tímabili, vann tvöfalt og sýndi yfirburði sem fá lið hafa náð að endurtaka.

„Hágæða leikmenn hafa yfirgefið liðið en á sama tíma hafa ungir og efnilegir leikmenn stigið upp á undirbúningstímabilinu og fer Hrafnhildur Ása fremst í flokki.".


Fyrir leik
Opnunarleikir Bestu deildar kvenna í kvöld Í dag er opnunardagur Bestu deildar kvenna. Tveir leikir eru á dagskrá í kvöld og spilast þeir samtímis.

Í kvöld:
Breiðablik - Þróttur 19:15
Víkingur R. - Stjarnan 19:15

Laugardagur (á morgun):
Fram - ÍBV 13:00
Valur - Grindavík/Njarðvík 16:00
Þór/KA - FH 16:00

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi dagsins Á flautunni í dag verður Róbert Þór Guðmundsson og honum til halds og trausts verða Tryggvi Elías Hermannsson og Jón Reynir Reynisson aðstoðardómarar.

Eftirlitsmaður er Bergur Þór Steingrímsson og fjórði dómari í kvöld er Óliver Thanh Tung Vú

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin í veisluna! Heil og sæl kæru lesendur!

Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Kópavogsvelli þar sem Breiðablik tekur á móti Þrótti í fyrstu umferð Bestu deildarinnar!

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: