Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
banner
laugardagur 18. apríl
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
mánudagur 20. apríl
Úrvalsdeildin
Crystal Palace - West Ham - 19:00
Serie A
Lecce - Fiorentina - 18:45
mán 20.apr 2026 17:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 5. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Þróttur muni enda í fimmta sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Þróttur verður um miðja deild ef spáin rætist.

Þróttarar fagna marki á síðasta tímabili.
Þróttarar fagna marki á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Kristinn tók við Þrótti í vetur.
Jóhann Kristinn tók við Þrótti í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirliðinn Álfhildur Rósa Kjartansdóttir.
Fyrirliðinn Álfhildur Rósa Kjartansdóttir.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jelena Tinna stendur vaktina í vörninni.
Jelena Tinna stendur vaktina í vörninni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björg Gunnlaugsdóttir gekk í raðir Þróttar í vetur.
Björg Gunnlaugsdóttir gekk í raðir Þróttar í vetur.
Mynd/Þróttur R.
Sóknarmaðurinn Kayla Rollins endursamdi við Þrótt.
Sóknarmaðurinn Kayla Rollins endursamdi við Þrótt.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mollee Swift verður áfram í markinu.
Mollee Swift verður áfram í markinu.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórdís Elva er frábær leikmaður.
Þórdís Elva er frábær leikmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mist Funadóttir var mjög sterk á síðustu leiktíð.
Mist Funadóttir var mjög sterk á síðustu leiktíð.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gerir Þróttur í sumar?
Hvað gerir Þróttur í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. Þróttur R., 69 stig
6. Valur, 61 stig
7. Þór/KA, 43 stig
8. ÍBV, 34 stig
9. Grindavík/Njarðvík, 21 stig
10. Fram, 17 stig

Um liðið: Þróttur fer inn í nýtt tímabil í Bestu deildinni með vaxandi væntingar eftir tvö fín ár undir stjórn Óla Kristjáns, sem er núna orðinn aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins. Liðinu er spáð 5. sæti, sem kann að virðast hóflegt í ljósi framfara síðasta sumar þegar þær enduðu í þriðja sæti með 48 stig, sem er stigamet hjá félaginu. Metnaðurinn innan félagsins er klárlega til staðar og markmiðið hlýtur að vera að festa sig enn frekar í sessi meðal bestu liða landsins, jafnvel stíga næsta skref og blanda sér af alvöru í titilbaráttuna. Spurningin er hvort liðið nái að byggja ofan á síðasta tímabil án þess að missa taktinn. Ef það tekst gæti Þróttur vel farið fram úr spánni, en samkeppnin í deildinni er hörð og lítið má út af bregða.

Þjálfarinn: Jóhann Kristinn Gunnarsson var ráðinn í stað Óla Kristjáns og mun stýra skútunni í Laugardalnum í sumar. Jóhann Kristinn er fæddur árið 1979 og kláraði sitt þriðja tímabil sem þjálfari Þórs/KA síðasta sumar. Þetta var annað skeiðið hans með Þór/KA en hann þjálfaði liðið einnig 2012-2016 og gerði liðið að Íslandsmeisturum á fyrsta ári. Í upphafi þjálfaraferilsins stýrði hann karla- og kvennaliði Völsungs og þjálfaði karlaliðið aftur á árunum 2017-22. Núna er hann mættur á höfuðborgarsvæðið og verður spennandi að fylgjast með honum í Laugardalnum.

Álit Magga
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan. Magnús verður með hlaðvarpsþáttinn Uppbótartímann á Fótbolta.net í sumar þar sem farið verður yfir kvennaboltann á Íslandi á mannamáli.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Er líf eftir Óla og Katie?
„Það hefur verið góður uppgangur í hjarta Reykjavíkur síðustu tímabil og í ár tel ég það bara halda áfram."

„Jói er mættur i borg óttans með öll sín vopn. Katie Cousins er horfin á braut en kjarninn er til staðar og núna vill ég að leikmaður eins og Jelena taki næsta skref og verði leiðtogi liðsins. Kayla Rollins þarf að vera heil því Þróttur þarf á mörkum hennar að halda."

„Köttarar eru alltaf með góða mætingu á völlinn og verður fróðlegt að sjá hvort Jói mætir hress í viðtöl sumarsins."


Lykilmenn: Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og Jelena Tinna Kujundzic
Álfhildur Rósa er gríðarlega reynslumikill leikmaður sem hefur verið andlit Þróttaraliðsins undanfarin ár. Hún er ótrúlega mikill Þróttari og ber fyrirliðabandið í þessu spennandi liði. Hún er leiðtogi og frábær alhliða miðjumaður sem bindur vörn og sókn saman. Jelena Tinna er sterkur miðvörður sem tók stór skref fram á við á síðasta tímabili og var á bekknum í liði ársins hér á Fótbolta.net. Hún var orðuð við atvinnumennsku eftir síðasta tímabil en er áfram í Laugardalnum sem eru frábærar fréttir fyrir Þróttara. Hún hefur alla burði til að vera einn besti varnarmaður deildarinnar í sumar.

Gaman að fylgjast með: Björg Gunnlaugsdóttir
Björg er leikmaður sem var eftirsótt eftir að síðasta tímabili lauk. Hún spilaði með FHL í fyrra og var það hennar fyrsta tímabil í efstu deild. Þrátt fyrir ungan aldur spilaði hún 112 leiki og skoraði 27 mörk í öllum keppnum með FHL. Það verður spennandi að sjá Björgu í nýju umhverfi en hún hefur verið að spila vel á undirbúningstímabilinu. Björg er yngri systir Íslands- og bikarmeistarans Áslaugar Mundu sem á 21 landsleik að baki með A-landsliðinu. Það verður einnig spennandi að sjá Þórdísi Nönnu Ágústsdóttur sem hefur leikið vel með Þrótti í vetur.

Komnar:
Maddie Ditta frá Bandaríkjunum
Björg Gunnlaugsdóttir frá FHL
Rósey Björgvinsdóttir frá FHL
Lexi Czerwien frá FHL
Kristrún Ýr Holm frá Keflavík

Farnar:
Lea Björt Kristjánsdóttir í Grindavík/Njarðvík
Katie Cousins til Portúgals
Sierra Lelii hætt
Klara Mist Karlsdóttir í HK



Fyrstu fimm leikir Þróttar:
24. apríl, Breiðablik - Þróttur R. (Kópavogsvöllur)
30. apríl, Þróttur R. - FH (AVIS-völlurinn)
5. maí, Fram - Þróttur R. (Lambhagavöllurinn)
11. maí, Þróttur R. - Grindavík/Njarðvík (AVIS-völlurinn)
19. maí, Víkingur R. - Þróttur R. (Víkingsvöllur)

Spámennirnir: Alexander Tonini, Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson, Snæbjört Pálsdóttir, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
banner