Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
Fram
0
0
ÍBV
27.04.2026  -  18:00
Lambhagavöllurinn
Besta karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Eyjamenn fá Sturlu til ÍBV Sturla Sagatun Kristjánsson hefur fengið félagaskipti í ÍBV en hann kemur frá Bodö/Glimt. Sturla er miðjumaður sem hefur spilað með U19 liði Bodö/Glimt. Hann á að baki einn leik með aðalliði Bodö/Glimt, lék gegn Brönnöysund í norska bikarnum snemma árs 2024.


Fyrir leik
Magnús Ingi á förum? Þær fréttir bárust að Magnús Ingi, leikmaður Fram, vill fara frá félaginu, en Magnús var ekki í leikmannahópi Fram gegn Þór á fimmtudag eftir að hafa spilað rúmlega stundarfjórðung sem varamaður í bæði fyrstu og annari umferð.

Spurning hvort hann verði með í dag.


Fyrir leik
Nákvæmlega þessi viðureign átti sér stað í Bestu Deild kvenna laugardaginn var, en þar mættust þessi lið á Lambhagavellinum og fóru leikar 3-4 fyrir ÍBV. Spurning hvort við fáum jafn mikinn markaleik í dag!

Lestu um leikinn!
Fyrir leik
Seinasta umferð Seinasta umferð var ekki upp á marga fiska hjá báðum liðum. Fram tapaði sínum leik á VÍS-vellinum gegn Þór á Akureyri 1-0, á meðan ÍBV tapaði stórt heima gegn KR 2-6.
Fyrir leik
Gott kvöld kæru lesendur og verið velkomin á þráðbeina textalýsingu frá Lambhagavellinum í Úlfarsárdal þar sem Fram tekur á móti ÍBV!
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: