Fotbolti.net
Snæbjört Pálsdóttir
Lengjudeild kvenna
Sauðárkróksvöllur
Tindastóll
Tindastóll
2 - 8
Keflavík
Keflavík
0 - 127' Ariela LewisHrafney Lea Árnadóttir 33'1 - 11 - 246' Ariela Lewis1 - 353' Olivia Madeline Simmons1 - 456' Eva Dís Sighvatsdóttir1 - 563' Hilda Rún Hafsteinsdóttir1 - 676' Alyssa Yana Daily1 - 781' María Rán Ágústsdóttir1 - 886' Olivia Madeline Simmons (víti)Rita Feist Lang 90'2 - 8
Dómari: Reynir Ingi Finnsson
Leik lokið!
2-8 fyrir Keflavík niðurstaðan hér á Sauðárkróksvelli í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar
Tindastóll
90. mín
MAAAARK!

Rita Feist Lang

Rita klórar í bakkann fyrir Tindastól fær boltann útfyrir teig og miðar nákvæmt í nærhornið
88. mín
Sunneva reynir skot á miðjum vallarhelmingi Keflavíkur en framhjá
Keflavík
86. mín
Mark úr víti!

Olivia Madeline Simmons

Sendi Teu í vitlaust horn og skorar mjög örugglega
85. mín
Víti!
Agnes brýtur inn í teig
Keflavík
81. mín
MAAAARK!

María Rán Ágústsdóttir

Keflvíkingar að sjötta markið í seinni hálfleik, María Rán stangar boltann inn
Keflavík
78. mín
InnErin Amy Longsden
ÚtEva Dís Sighvatsdóttir
Keflavík
78. mín
InnRakel Inga Ágústsdóttir
ÚtMia Angelique Ramirez
Keflavík
78. mín
InnEva Lind Daníelsdóttir
ÚtAnita Bergrán Eyjólfsdóttir
Tindastóll
76. mín
InnSunneva Dís Halldórsdóttir
ÚtSigríður H. Stefánsdóttir
Keflavík
76. mín
MAAAARK!

Alyssa Yana Daily

Er einhvern vegin alein við endalínuna og setur hann bara inn í markið inn fyrir Teu, þetta var eiginlega fáránlegt að hún hafi náð að klára þetta
73. mín
Krista tekur horn fyrir Tindastól en það er beint á Önnu í markinu
72. mín
Aníta Bergrán með hörkuskot en það smellur í samskeytunum
69. mín
Mia Angelique reynir langan bolta inn á teig en Tea grípur þetta örugglega
Keflavík
66. mín
InnMaría Rán Ágústsdóttir
ÚtAnita Lind Daníelsdóttir
Keflavík
66. mín
InnBrynja Arnarsdóttir
ÚtAriela Lewis
Tindastóll
63. mín
InnÁrdís Líf Eiðsdóttir
ÚtKatelyn Eva John
Keflavík
63. mín
MAAAARK!

Hilda Rún Hafsteinsdóttir

Hilda Rún fær boltan rétt fyrir utan teig, er þar alein á auðum sjó, leggur hann fyrir sig og setur hann svo bara þéttingsfast í hægra hornið
61. mín
Hilda Rún tekur horn fyrir Keflavík en Bryndís Rut nær að sparka boltanum frá í fyrsta
58. mín
Keflavík er búið að skipta upp í 5 gír en Stólarnir sitja eftir í 3. gírnum
Keflavík
56. mín
MAAAARK!

Eva Dís Sighvatsdóttir (stoðsending: Ariela Lewis)

Þetta var alltof auðvelt, þær bara löbbuðu í gegnum vörnina, Ariela tekur mann á finnur Evu Dís í frábærri stöðu sem leggur hann örugglega í fjærhornið framhjáTeu
Keflavík
53. mín
MAAAARK!

Olivia Madeline Simmons

fær boltann inn í markteignum og leggur hann þægilega framhjá Teu í markinu!

51. mín
Olivia reynir skot rétt fyrir utan teig en það er laust og Tea á ekki í vandræðum með að græipa þetta
48. mín
Eva Dís nálægt því að tvöfalda forystu Keflavíkur en boltinn hárfínt framhjá
Keflavík
46. mín
MAAAARK!

Ariela Lewis

Þetta tók ekki langan tíma... Þær hafa væntanlega fengið góða ræðu í klefanum í hálfleik! Ariela Lewis er ein við D bogann og setur hann bara í markið... Einfalt og gott
45. mín
Hálfleikur
1-1 í hálfleik hér á Sauðárkróksvelli!

Keflavík hafa verið með algjöra yfirburði og ættu í raun að vera yfir miðað við færin en Tindastóll jafnaði eftir frábæra skyndisókn hjá Hrafney Leu
45. mín
a.m.k. ein mínút í uppbótartíma
Tindastóll
40. mín
Gult spjald

Katelyn Eva John

37. mín
Hilda Rún tekur horn fyrir Keflavík, boltinn berst til hennar aftur og setur hann aftur inn í pakkan en Rita Feist Lang skallar boltann frá
Tindastóll
33. mín
MAAAARK!

Hrafney Lea Árnadóttir

Heyrðu VÁ! Þetta var skyndisókn úr gjörsamlega engu!

Unglingurinn Hrafney Lea hleypur hraðast stingur hafsenta Keflavíkur af og klobbar svo Önnu í markinu

Þetta er hættan þegar annað liðið spilar með línuna sína svona hátt þá opnast fyrir skyndisóknir
32. mín
Alyssa Yana með hörkuskot í sammann og út, Keflavík er að hóta öðru marki
Keflavík
27. mín
MAAAARK!

Ariela Lewis

Ariela Lewis heldur uppteknum hætti í markaskorun og er að setja fyrsta mark leiksins. Kemst ein gegn Teu eftir klafs i teignum og hún klárar þetta örugglega framhjá henni
Keflavík
23. mín
Gult spjald

Margrét Viktoría Harðardóttir

22. mín
Margrét Viktoría er komin í gott hlaup en Harpa Sif nær að komast í boltann áður en hún nær að gefa hann fyrir
20. mín
Krista Sól tekur hornið en Anita Lind er stór og sterk og skallar þetta í burtu
20. mín
Ágætis sókn hjá Tindastólskonum og Harpa Sif nælir í horn
18. mín
Ariela Lewis reynir skotið, Tea ver og þær ná frákastinu en aftur ver Tea nú í stöngina og út, Þarna munaði litlu
18. mín
Hrafney gerir vel á miðjunni og reynir að finna Hörpu Sif í hlaup en aðaeins of fast fyrir hana
17. mín
Hilda komin í hörkustöðu, reynir skotið en Tea sér við henni og ver
16. mín
Leikurinn hefur hingað til eiginlega bara spilast á vallarhelmingi Tindastóls og þær hafa verið með pakka í vörninni
15. mín
Hilda Rún með annað horn fyrir Keflavík en sem fyrr er Bryndís Rut sterkust í teignum og skallar þetta frá
11. mín
Hilda Rún tekur horn fyrir Keflavík en Brýndís Rut fyrirliði stólanna er sterk í teignum og skallar þetta frá
6. mín
Eva Dís komin í góða stöðu en Tea nær að handsama boltann
5. mín
Hilda Rún tekur horn fyrir Keflavík en ekkert kemur út úr því
3. mín
Margrét Viktoría komin í hörkufæri ein gegn Teu en sú gerir vel í markinu og ver þetta vel
1. mín
Leikur hafinn
Ariela Lewis hefur þetta fyrir Keflavík
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár og veislan fer að hefjast!
Tindastóll
1. Tea Lundmark (m)
3. Bryndís Rut Haraldsdóttir (f)
10. Rita Feist Lang
11. Simone Thorst
13. Hrafney Lea Árnadóttir
14. Katelyn Eva John
15. Emelía Björk Elefsen
16. Agnes Nótt Þórðardóttir
17. Harpa Sif Hreiðarsdóttir
21. Krista Sól Nielsen
23. Sigríður H. Stefánsdóttir

Miklar breytingar hafa orðið á liði Tindastóls frá því á síðasta tímabili og er í raun bara Bryndís Rut sem er eftir í byrjunarliðinu.
Þá vekur athygli að Sigríður Hrafnhildur Stefánsdóttir, Lilla, varamarkvörður liðsins er að spila sem útileikmaður í dag!

Keflavík
1. Anna Arnarsdóttir (m)
8. Anita Bergrán Eyjólfsdóttir
10. Mia Angelique Ramirez
11. Alyssa Yana Daily
14. Eva Dís Sighvatsdóttir
15. Olivia Madeline Simmons
17. Margrét Viktoría Harðardóttir
18. Hilda Rún Hafsteinsdóttir
22. Salóme Kristín Róbertsdóttir
24. Anita Lind Daníelsdóttir (f)
34. Ariela Lewis

Í liði Keflavíkur eru góðir og gamalkunnir leikmenn eins og fyrirliðinn Aníta Lind og Ariela Lewis. Þá er gaman að sjá unga og efnilega leikmenn í byrjunarliðinu t.d. er Margrét Viktoría einungis 14 ára að starta!
Fyrir leik
Keflavík er spáð 5 sætinu
Keflavík fer inn í þetta tímabil eftir vonbrigðasumar í fyrra. Liðið féll úr Bestu deildinni 2024 og var talið líklegt til að fara beint upp aftur, en þegar upp var staðið var staðan allt önnur. Keflvíkingar áttu í basli stóran hluta tímabilsins og voru um tíma nær en einhvers konar fallbaráttu, sem kom mörgum á óvart.

Það segir sitt um hversu krefjandi deildin getur verið, jafnvel fyrir lið með reynslu úr efstu hæð. Fall hefði þýtt annað högg í röð og sett liðið í sömu stöðu og Selfoss og KR lentu í þegar þau féllu tvö ár í röð niður um deildir.

Keflavík hefur þó áður sýnt að það kann að bregðast við mótlæti og félagið býr yfir reynslu og umgjörð sem ætti að nýtast vel. Nú snýst verkefnið um að finna aftur sjálfstraustið sem þarf til að vera í toppbaráttu. Eftir síðasta sumar er ljóst að ekkert kemur af sjálfu sér og liðið þarf að sanna sig á ný.


Fyrir leik
Tindastóli er spáð 9. sætinu
Tindastóli er spáð 9. sæti eftir að hafa leikið í Bestu deildinni undanfarin ár. Breytingarnar á leikmannahópnum hafa verið umtalsverðar og ljóst að liðið er á ákveðnum tímamótum. Verkefnið fram undan snýst nánast um að byggja upp nýtt lið frá grunni.

Verkefnið framundan snýst ekki aðeins um úrslit heldur einnig uppbyggingu. Það getur tekið tíma að móta nýjan kjarna og fá réttu blönduna til að smella, sérstaklega eftir svona miklar breytingar. Spurningin er hvort liðið nái að halda sér í deildinni á meðan sú vinna fer fram, eða hvort það stefnir í annað erfitt tímabil þar sem fallbaráttan verður í forgrunni.


Fyrir leik
Upphitunarþáttur fyrir Lengjudeildina
Lengjudeild kvenna fer af stað í dag.

Hægt er að kynnast liðunum sem leika í deildinni betur í upphitunarþátt Livey fyrir Lengjudeild kvenna með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Arnari Páli Garðarssyni.

Fyrir leik
Opnunarleikir Lengjudeildarinnar
Þrír leikir eru á dagskrá í dag, HK fá ÍA í heimsókn, Grótta tekur á móti Haukum klukkan 14:00 og Tindastóll lokar svo deginum klukkan: 17:00 þegar Keflavík mætir á krókinn.

Í dag:
HK - ÍA 14:00
Grótta - Haukar 14:00
Tindastóll - Keflavík 17:00

Sunnudagur (á morgun):
FHL - Völsungur 14:00
KR - Selfoss 14:00

Mynd: Lengjudeildin

Fyrir leik
Dómarateymi dagsins
Á flautunni í dag verður Reynir Ingi Finnsson.

Honum til halds og trausts verða Kjartan Már Másson og Uchechukwy Michael Eze aðstoðardómarar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lengjudeild kvenna að hefjast!
Heil og sæl kæru lesendur!

Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Sauðárkróksvelli þar sem Tindastóll tekur á móti liði Keflavíkur í 1. umferð Lengjudeildarinnar.

Leikurinn hefst á slaginu 17:00!

Mynd: Snæbjört Pálsdóttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.