Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spáin fyrir Lengjudeild kvenna: 7. - 4. sæti
Kvenaboltinn
ÍA fagnar marki síðasta sumar.
ÍA fagnar marki síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Erna Björt í leik með ÍA.
Erna Björt í leik með ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
FHL fékk reynslu í Bestu deildinni síðasta sumar.
FHL fékk reynslu í Bestu deildinni síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björgvin Karl stýrir FHL áfram.
Björgvin Karl stýrir FHL áfram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrafnhildur Eik er spennandi leikmaður.
Hrafnhildur Eik er spennandi leikmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík átti ekki gott sumar í fyrra.
Keflavík átti ekki gott sumar í fyrra.
Mynd: Keflavík/Instagram
Aníta Lind er lykilmaður.
Aníta Lind er lykilmaður.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Haukum er spáð fjórða sæti.
Haukum er spáð fjórða sæti.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Valgerður Ósk er mætt í Hauka frá erkifjendunum í FH og mun styrkja liðið mikið.
Valgerður Ósk er mætt í Hauka frá erkifjendunum í FH og mun styrkja liðið mikið.
Mynd: Haukar
Á laugardaginn fer Lengjudeild kvenna af stað. Við á Fótbolta.net fengum alla þjálfara og fyrirliða í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.

Næst er komið að því að fara yfir liðin sem er spáð um miðja deild, frá sætum sjö til fjögur.

7. ÍA (81 stig)
Lokastaða í fyrra: 7. sæti í Lengjudeildinni
ÍA er spáð 7. sæti eftir tímabil í fyrra sem stóðst ekki alveg væntingar. Fyrir mótið þá var liðinu spáð 2. sæti og talið líklegt til að berjast um sæti í efstu deild, en þegar upp var staðið náðu Skagakonur sér aldrei almennilega á flug og enduðu einmitt í 7. sæti – sama sæti og þeim er spáð núna. Það var ákveðin vonbrigðabragur yfir síðasta sumri, sérstaklega í ljósi þess að liðið hafði árið áður farið fram úr væntingum sem nýliði og sýnt að það gæti verið í toppbaráttu. Það er sterk hefð fyrir fótbolta á Akranesi og ÍA hefur áður sýnt að það getur byggt upp samkeppnishæft lið á þessu stigi. Spurningin fyrir komandi tímabil er hvort liðið nái að endurheimta þann kraft sem sást áður. Ef ÍA finnur taktinn á ný gæti liðið vel blandað sér í efri hluta deildarinnar, en miðað við síðasta sumar er skiljanlegt að væntingarnar séu hófstilltari að þessu sinni.

Lykilmenn: Erna Björt Elíasdóttir og Madison Brooke Schwartzenberger
Erna Björt er öflugur sóknarmaður sem fer fyrir íslenska kjarnanum í liði ÍA. Hún skoraði fimm mörk í 17 leikjum síðasta sumar og þarf helst að finna aðeins betri takt í sumar ef ÍA ætlar að gera betur. Madison er þá öflugur varnarsinnaður miðjumaður sem hefur leikið stórt hlutverk á Skaganum undanfarin ár og mun eflaust gera það áfram í sumar.

Gaman að fylgjast með: Nadía Steinunn Elíasdóttir
Stelpa fædd 2010 sem hefur verið að taka að sér nokkuð stórt hlutverk í liðinu á undirbúningstímabilinu. Hún kom við sögu í tólf leikjum í Lengjudeildinni í fyrra þrátt fyrir ungan aldur. Á að baki þrjá leiki með U16 landsliðinu og á klárlega framtíðina fyrir sér.

Þjálfarinn segir - Skarphéðinn Magnússon
„Þetta er bara flott – spá er jú bara spá. Við einbeitum okkur að því sem við getum stjórnað og mætum vel undirbúin til leiks. Við förum inn í mótið með öflugt og samheldið lið sem ætlar sér að vera samkeppnishæft í hverjum einasta leik."

6. FHL (87 stig)
Lokastaða í fyrra: 10. sæti í Bestu deildinni
FHL er spáð um miðja deild eftir að hafa kynnst efstu deild í fyrsta sinn á síðasta tímabili. Það var dýrmæt reynsla fyrir félagið, sem hefur verið á uppleið síðustu ár og lagt mikið í að byggja upp öflugt starf á Austurlandi. Fallið niður aftur þýðir þó ákveðna endurstillingu. Nokkrir íslenskir leikmenn hafa yfirgefið hópinn sem er högg fyrir liðið, en á móti eru spennandi leikmenn að stíga upp og fá stærra hlutverk. Þá gæti framlag erlendu leikmannanna ráðið miklu um hvernig tímabilið þróast, líkt og áður þegar Emma Hawkins og Samantha Smith fóru fyrir liðinu og voru lykilþáttur í því að FHL fór upp um deild. Grunnurinn er til staðar og félagið hefur sýnt að það getur byggt upp samkeppnishæft lið. Spurningin er hversu hratt liðið nær að stilla sig inn á nýjan veruleika í Lengjudeildinni. Ef allt smellur gæti FHL verið í baráttunni ofarlega, en miðað við breytingarnar er eðlilegt að staðsetja liðið í kringum miðja deild að þessu sinni.

Lykilmenn: Celia Maria Ruano Trujillo og Brooklyn Mae Nelson
Celia Trujillo er reynslumikill sóknarmaður sem stimplaði sig heldur betur inn í FHL liðið á dögunum er hún gerði fernu gegn Völsungi í Mjólkurbikarnum. Það er klárlega leikmaður sem vonir eru bundnar við fyrir sumarið. Brooklyn Nelson er að koma úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum þar sem hún hefur verið fyrirliði, og var hún með bandið hjá FHL í bikarnum á dögunum. Fjölhæfur miðjumaður sem þarf að vera leiðtogi fyrir Austfirðinga í sumar.

Gaman að fylgjast með: Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir
Fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað á kanti og á miðju. Hún er fædd 2009 og spilaði mikið með liðinu í Bestu deildinni síðasta sumar. Eftir tímabilið fór hún á reynslu til spænska félagsins Real Betis. Klárlega leikmaður til að hafa augun á þetta sumarið.

Þjálfarinn segir - Björgvin Karl Gunnarsson
„Að okkur sé spáð 6.sæti kemur á óvart miða við leikina okkar í vetur þar sem við mætum með nýtt lið til leiks 2026, við erum 17 leikmönnum fátækari eftir síðasta tímabil, þannig við erum með lítinn hóp sem myndar tvö lið meistaraflokks og U20. Verður mjög krefjandi fyrir unga leikmenn sem hafa þurft að taka við keflinu fyrr en áætlað var, við eigum sem betur fer efnilega leikmenn sem fá dýrmæta reynslu í sumar annað hvort með U20 eða meistaraflokki. Við höfum náð að styrkja okkur með Erlendum leikmönnum sem munu hjálpa okkur í sumar, við vonumst líka eftir góðum stuðningi frá okkar fólki það gæti hjálpað okkur að ná þessu 6. sæti eða jafnvel örlítið ofar."

5. Keflavík (102 stig)
Lokastaða í fyrra: 8. sæti í Lengjudeildinni
Keflavík fer inn í þetta tímabil eftir vonbrigðasumar í fyrra. Liðið féll úr Bestu deildinni 2024 og var talið líklegt til að fara beint upp aftur, en þegar upp var staðið var staðan allt önnur. Keflvíkingar áttu í basli stóran hluta tímabilsins og voru um tíma nær en einhvers konar toppbaráttu, sem kom mörgum á óvart. Það segir sitt um hversu krefjandi deildin getur verið, jafnvel fyrir lið með reynslu úr efstu hæð. Fall hefði þýtt annað högg í röð og sett liðið í sömu stöðu og Selfoss og KR lentu í þegar þau féllu tvö ár í röð niður um deildir. Keflavík hefur þó áður sýnt að það kann að bregðast við mótlæti og félagið býr yfir reynslu og umgjörð sem ætti að nýtast vel. Nú snýst verkefnið um að finna aftur sjálfstraustið sem þarf til að vera í toppbaráttu. Eftir síðasta sumar er ljóst að ekkert kemur af sjálfu sér og liðið þarf að sanna sig á ný.

Lykilmenn: Anita Lind Daníelsdóttir og Ariela Lewis
Aníta Lind er Keflvíkingur í húð og hár, gífurlega reynslumikill leikmaður sem mun bera fyrirliðabandið í sumar. Hún er með mikla reynslu úr Bestu deildinni og ætti geta drifið liðið áfram innan sem utan vallar í sumar. Ariela er öflugur markaskorari sem þarf að reima á sig markaskóna þetta sumarið. Hún skoraði fjögur mörk gegn KÞ í Mjólkurbikarnum á dögunum og tekur það vonandi með sér inn í sumarið.

Gaman að fylgjast með: Anna Arnarsdóttir
Það eru margar efnilegar að koma upp hjá Keflavík en markvörðurinn Anna Arnarsdóttir er spennandi leikmaður sem fékk eldskírn sína á síðasta tímabili. Er einn efnilegasti markvörður landsins og hefur spilað 21 leik fyrir yngri landsliðin.

Þjálfarinn segir - Vedran Medenjak
„Ég sé þessa deild sem gríðarlega jafna þar sem hver einasti leikur getur fallið á hvorn veginn sem er. Hjá okkur er fókusinn á að þróa unga leikmenn og ná stöðugu tímabili. Við munum mæta í hvern leik með ástríðu og sigurvilja. Við trúum því að við getum náð árangri, en að lokum mun tíminn leiða í ljós hvar við endum."

4. Haukar (112 stig)
Lokastaða í fyrra: 6. sæti í Lengjudeildinni
Haukum er spáð 4. sæti eftir að hafa komið upp fyrir síðasta tímabil og staðið sig býsna vel í endurkomunni. Liðið virðist hafa fest sig betur í sessi en margir áttu von á og byggt ofan á þann sterka grunn sem var lagður þegar það vann 2. deildina árið áður. Uppbyggingin innan félagsins hefur skilað sér og hópurinn virðist bæði dýpri og samkeppnishæfari nú en áður. Haukar eru nú taldir geta verið í efri hluta deildarinnar frekar en að berjast fyrir lífi sínu eins og fyrir síðasta tímabil. Stærsta umræðuefnið í kringum liðið er þó möguleg endurkoma Söru Bjarkar Gunnarsdóttur á Ásvelli í sumar. Ef af því verður myndi það gjörbreyta stöðu liðsins og lyfta bæði gæðum og væntingum upp á allt annað stig. Hvort sem það gengur eftir eða ekki virðast Haukar á góðum stað. Ef liðið nær að halda áfram á sömu braut og byggja ofan á síðasta tímabil er vel raunhæft að það verði í baráttunni í efri hluta deildarinnar og jafnvel láti meira að sér kveða en spáin gerir ráð fyrir.

Lykilmenn: Halla Þórdís Svansdóttir og Valgerður Ósk Valsdóttir
Halla Þórdís er hrikalega öflugur kantmaður sem Haukar fengu frá Fram árið 2023. Hún hefur verið í lykilhlutverki á Ásvöllum síðustu ár og blómstrað í Haukaliðinu. Á síðasta tímabili skoraði hún átta mörk í 18 leikjum í Lengjudeildinni. Það var þá stórt fyrir Hauka að fá Valgerði Ósk frá erkifjendunum í FH. Valgerður er öflugur miðjumaður sem er með mikla leiðtogahæfni og mun reynast mikill liðsstyrkur fyrir rauða liðið í Hafnarfirðinum.

Gaman að fylgjast með: Aldís Kara Lúðvíksdóttir
Þó það séu margir efnilegir leikmenn í Haukaliðinu þá verður eiginlega mest spennandi að fylgjast með endurkomu Aldísar Köru á fótboltavöllinn. Hún hefur verið í nokkurra ára fríi frá fótbolta en snýr núna aftur og er nú þegar búin að láta að sér kveða þar sem hún skoraði fernu í leik í Mjólkurbikarnum á dögunum.

Þjálfarinn segir - Hörður Bjarnar Hallmarsson
„Við erum svo sem ekki mikið að velta okkur upp úr því hvar okkur er spáð. Það er eðlilegt að sum lið séu spáð ofar enda erum við á öðruvísi vegferð en flest önnur félög."

„Okkar markmið er að halda áfram að byggja upp öflugan hóp sem samanstendur að stórum hluta af uppöldum Haukastelpum – hóp sem á eftir að komast upp í efstu deild á einhverjum tímapunkti og festa sig þar í sessi sem lið sem spilar hugrakkan og sóknarsinnaðan fótbolta."

„Það hefur sýnt sig í þessari deild að þau lið sem velja að stytta sér leið að árangri eru oftast verðlaunuð, og þau lið sem eru með flesta útlendinga enda gjarnan á að fara upp um deild. Við viljum hins vegar sýna að það sé hægt að ná árangri með því að gefa ungum leikmönnum tækifæri, þróa okkar leikstíl áfram og byggja á sterkri liðsheild."

„Ég er ótrúlega þakklátur og stoltur af því að fá að þjálfa þennan hóp. Í vetur lögðum mikla áherslu á að búa til hóp af öflugum karakterum og góðum manneskjum sem setja liðið alltaf í fyrsta sæti."

Slapp
banner
banner