Fotbolti.net
Besta deildin
Hafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Besta karla
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Breiðablik
3 - 3
FH
FH
Ásgeir Helgi Orrason 25'1 - 0Kristófer Ingi Kristinsson 45'2 - 02 - 149' Gils Gíslason2 - 264' Kjartan Kári Halldórsson (víti)2 - 369' Gils GíslasonHöskuldur Gunnlaugsson (víti) 78'3 - 3
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
+8
Hörkuleikur og 3-3 jafntefli staðreynd! Takk fyrir mig! Viðtöl og skýrsla koma á eftir
90. mín
+7
Ábyggilega komið þangað. Breiðablik pressar og pressar í lokin
90. mín
+6
Börurnar komnar inná. Úlfur Águst lýkur hér með leik. Óskum honum góðs bata
90. mín
+4
Varnarmaður FH liggur niðri, sýnist hann halda um hnéð og sjúkraþjálfari hleypur inná
90. mín
+3
Horn fyrir Blika!!

DAUÐAFÆRI!!!!!! KRISTÓFER MEÐ SVAKALEGAN SKALLA SEM JÖKULL VER!!!
90. mín
+1
Höskuldur reynir lágt skot úr þessari aukaspyrnu en boltinn fer af varnarmanni og Jökull stekkur á hann!
90. mín
+1
Dómarinn bætir 4 við
FH
90. mín
Gult spjald

Tómas Orri Róbertsson

Glæfraleg tækling rétt fyrir utan teig!
FH
88. mín
InnArngrímur Bjartur Guðmundsson
ÚtBaldur Kári Helgason
FH
88. mín
InnArnór Borg Guðjohnsen
ÚtGils Gíslason
86. mín
Blikar fá horn
Dómarinn dæmir síðan aukaspyrnu fyrir FH nær um leið og Höskuldur tekur hana
Breiðablik
85. mín
InnGabríel Snær Hallsson
ÚtAron Bjarnason
Breiðablik
85. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtViktor Karl Einarsson
82. mín
DAUÐAFÆRI FYRIR BLIKA
Ágúst reynir sendinguna inn fyrir en FH reynir að hreinsa, fer af varnarmanni og Tobias Carlsson rétt nær að hreinsa burt, hefði annars ábyggilega verið mark!
81. mín
Horn fyrir FH
Blikar hreinsa
FH
78. mín
InnAron Jónsson
ÚtKristján Snær Frostason
Kristján fór útaf fyrir vítapyrnuna og sýndist mér fá gult fyrir að tefja
Breiðablik
78. mín
ÞEIR JAFNA!!!!!!!!!!!!!

Höskuldur Gunnlaugsson

77. mín
BREIÐABLIK FÆR VÍTI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Úlfur Ágúst brýtur á Kristófer. Höskuldur tekur þetta
75. mín
Gils kominn aftur með boltann, nær ekki sendingunni sem fer af varnarmanni á Tómas Orra sem reynir skot af löngu færi en þrumar honum yfir
74. mín
Það er greeeeenjandi rigning hérna í Kópavoginum! Alltaf gaman að horfa á rennblautan fótbolta!
FH
73. mín
InnBenjamín Bæring Þórsson
ÚtKristján Flóki Finnbogason
72. mín
Horn fyrir Blika
FH skallar frá
Breiðablik
69. mín
InnAnton Logi Lúðvíksson
ÚtAndri Rafn Yeoman
FH
69. mín
HVAÐ ER AÐ GERAST?!?!?!?

Gils Gíslason (stoðsending: Úlfur Ágúst Björnsson)

FRÁBÆR SÓKN HJÁ FH!!! ÚLFUR MEÐ FULLKOMNA SENDINGU Á GILS SEM STINGUR HONUM INN!!!!
66. mín
Aron Bjarna reynir skot úr D-boganum en hann fer yfir
Breiðablik
65. mín
InnViktor Örn Margeirsson
ÚtÍvar Örn Árnason
Ívar tekinn útaf eftir þetta mark, en hann var dæmdur brotlegur. Hann var heppinn að fá ekki annað gult
FH
64. mín
ÞEIR JAFNA!!!!

Kjartan Kári Halldórsson

KJARTAN SMELLIR HONUM VINSTRA MEGIN EN ANTON NÆR EKKI Í BOLTANN!!! ÞETTA ER ALVÖRU LEIKUR HÉR Á BÆ
63. mín
VÍTI FYRIR FH
Gunnar bendir á punktinn!
61. mín
Horn fyrir FH
Kjartan Kári sendir boltann á Úlf sem skallar hann afturábak að marki, virtist vera frekar hættulegt
55. mín
Blikar eru búnir að pressa soldið eftir þetta mark, en FH var í hörkufæri núna! Kristján Flóki með flott skot sem Anton Ari ver, og FH fær horn!
FH
49. mín
ÞEIR MINNKA MUNINN!!!!

Gils Gíslason

Það eru einhverjir krakkar fyrir sjónarhorninu mínu, en ég sá að hann Gils þrumaði honum inn! Við erum með leik!!
47. mín
FH fær hornspyrnu
Boltinn lendir í einhverju skrambli, Baldur Kári tekur síðan skotið sem Anton ver í hliðarnetið, þannig annað horn fyrir gestina, en það verður ekkert úr því
46. mín
Seinni hafinn
Spurning hvað FH getur gert í seinni hálfleik
45. mín
Tölfræði úr fyrri hálfleik
Með boltann: 65% - 35%
Marktilraunir: 9-6
Á mark: 3-1
Heppnaðar sendingar: 208-97
45. mín
XB

Sturluð staðreynd: Framsókn í Kópavogi hefur setið í meirihluta í sveitafélaginu í 54 ár af síðustu 64 árum og á þ.a.l. ansi stóran þátt í í að gera Kópavog að framúrskarandi sveitafélag og íþróttaaðastaðan í Kópavoginum ber þess merki.
XB

- Auglýsing -
45. mín
+1
Held það hafi verið bætti við einni mínútu, en það er kominn hálfleikur! Ég ætla að fá mér kaffibolla og við sjáumst eftir rúmt korter!
Breiðablik
45. mín
2-0!!!!

Kristófer Ingi Kristinsson

Höskuldur reynir skotið, boltinn smeygist af varnarmanni FH en Kristófer er réttur maður á réttum stað og smeygir honum inn!
44. mín
FRÁBÆR VARSLA FRÁ JÖKLI
Jökull með frábæra vörslu! Kristófer sendir boltann á Davíð sem er kominn einn í gegn, reynir skotið en Jökull er fljótari að boltanum og ver frábærlega!
Breiðablik
43. mín
Gult spjald

Aron Bjarnason

Ég sá ekki alveg hvað gerðist en Kristján Snær liggur niðri haldandi um andlitið. Aron vill meina að þetta hafi verið öxl í öxl
41. mín
Davíð með gott hlaup, sendir fastan bolta á Kristófer Inga, reynir skotið af löngu færi en nær ekki að stjórna honum að markinu og FH fær markspyrnu
40. mín
Hvernig fóru þeir nú að því að klúðra þessu? Gils sendir fyrirjgöfina inn, sóknarmaður FH annaðhvort hittir ekki boltann með kollinum eða lætur hann fara, boltinn lendir á Tómasi Orra sem reynir skotið en það er arfaslakt og fer útaf!
38. mín
Og það er annað horn fyrir Blika
Höskuldur spilar þetta stutt, fær boltann snyrtilega til baka, reynir skotið en Jökull ver þetta út fyrir í annað horn!
36. mín
Fh fær hornspyrnu
Hornspyrnutalan hlýtur að vera komin samanlagt upp í 10!

FH-ingar ná samt ekki að nýta þetta
34. mín
Flott sókn hjá Blikum, Davíð fær boltann frá Aroni Bjarna en Davíð nær ekki fyrirgjöfinni og boltinn endar út í horn sem FH ná svo að hreinsa
Breiðablik
32. mín
Gult spjald

Ívar Örn Árnason

Ívar Örn fær gult fyrir tæklingu á Baldur Kára, en hægt er að deila um hvort þetta hafi verið boltinn, og stuðningsmenn Blika syngja ,,bara boltinn''
28. mín
Blikar með hættulega sókn. Davíð fær boltann vinstra megin, en varnarmaður FH nær að hreinsa í annað horn fyrir Blika.

Ekkert sem verður úr þessu
FH
26. mín
Gult spjald

Kristján Flóki Finnbogason

Flóki fær gult fyrir glæfralega tæklingu
FH
26. mín
Gult spjald

Úlfur Ágúst Björnsson

Fyrir mótmæli
Breiðablik
25. mín
BLIKAR LEIÐA

Ásgeir Helgi Orrason

Breiðablik fær annað horn sem Höggi vippar inn, úr því koma tvö skot frá Blikum sem Jökull ver en Ásgeir klárar þetta vel!
23. mín
Blikar fá horn
Frábært hlaup hjá Óla Val, sendir boltann á Viktor Karl sem er á hægri kantinum, en fyrirgjöfin fer í varnarmann og út
18. mín
Horn fyrir FH
Mikið skrambl í þessu horni en boltinn endar að lokum útaf í annað horn fyrir FH.

Mjög fastur bolti þarna sem Grétar Snær nær að skalla prýðivel en Anton Ari ver þetta
17. mín
Kristján Snær hreinsar í annað horn fyrir Blika

Boltinn endar á kollinn hjá Kristófer Inga sem skallar að marki, myndast einhver darraðardans en FH nær að hreinsa!
15. mín
Baldur Kári hreinsar í horn fyrir Blika eftir slaka fyrirgjöf hjá Davíð Ingvarssyni.

Aron Bjarnar fær boltann eftir stutt spil fyrir utan teig en hamrar honum svo yfir markið
10. mín
Hörkusókn hjá FH!
Gils kemst í gegn á vinstri kanti, reynir skotið sem Anton Ari ver frábærlega, Kjartan Kári nær frákastinu en skýtur honum framhjá!
6. mín
Glöggir lesendur hafa kannski séð að Kristján Snær Frostason sé á bekknum, en í raun er hann inná. Ástæðan er sú að Birkir Valur meiddist í upphitun og verður ekki með í kvöld. Óskum honum góðs bata
3. mín
Aukaspyrna fyrir Breiðablik í þeirra eigin teig eftir að Gils brýtur á varnarmanni FH
1. mín
Það eru gestirnir sem byrja þetta!
Fyrir leik
Þess má geta að Andri Rafn Yeoman er að spila sinn 500. leik fyrir Breiðablik! Það er mikill áfangi og ég held að það séu ekekrt margir hér á landi sem hafa náð þeim árangri þá með einu liði!
Fyrir leik
Anton Logi Lúðvíksson hefur spilað 100 leiki fyrir Breiðablik, en hann náði þeim áfanga í seinasta leik gegn ÍBV! Hann er heiðraður hér fyrir leik! Til hamingju!
Fyrir leik
Liðin eru mætt inn á völl, þessi veisla fer alveg að hefjast!
Fyrir leik
10 í leik, liðin byrjuð að fara af vellinum og það er verið að spila mikið af nýju plötunni hjá Hnetunni og smá af Blaz á milli!

Býst við hörkuleik!
Fyrir leik
Hvað segir Kristalkúlan?
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Óli Skúla gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliðinu, en Aron Bjarnason kemur inn í stað Antons Loga Lúðvíkssonar, en Aron er að byrja sinn fyrsta leik í Bestu Deildinni þetta tímabilið.

Jói Kalli gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu í kvöld. Inn koma Tobias Carlsson, eftir að hafa ekki spilað seinustu tvo leiki FH, Gils Gíslason og Viktor Nói Viðarsson.

Fyrir leik
FH
FH hefur aðeins nælt sér í eitt stig eftir 5 umferðir, sóttu jafntefli í Eyjum og tapað rest. Þeir sitja þá í 11. sæti með 1 stig, jafnir ÍBV í fallsæti. FH þurfti að bíta í það súra epli að tapa á heimavelli 3-4 gegn Fram, en FH komst í 3-1 í fyrri hálfleik, en fengu svo á sig þrjú í seinni hálfleik.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Blikar
Eftir 5 umferðir hefur Breiðablik unnið þrjá leiki og gert tvö jafntefli og sitja í þriðja sæti með 11 stig. Í síðustu umferð tóku þeir þyrluflug til Eyja og sóttu þrjú stig þar með 1-2 sigri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spá fyrir leik
Júlíus Mar Júlíusson, leikmaður Kristiansund í Noregi spáði í spilin fyrir komandi umferð og hafði þetta að segja um leikinn
Breiðablik 2 - 1 FH (19:15 í kvöld)
Hörkuleikur í Kópavogi. Adolf Daði kominn í markaskóna og kemur Hafnfirðingum yfir eftir glæsilegan samleik við Tómas Orra. Ágúst Orri verður reiður og skorar næsta mark og jafnar leikinn fyrir Blika. Gulldrengurinn úr Grafarvogi Jónatan Guðni kemur svo inn og klárar þetta fyrir Blika.

Fyrir leik
FH keypti Kára Kristjáns í vetur frá uppeldisfélaginu sínu Þrótti en síðastliðna þriðjudag kom það í ljós að Kári hefði verið seldur aftur til Þróttar
Fyrir leik
Á þriðju mínútu uppbótartíma í leik FH og Fram í gær skullu þeir Ísak Óli Ólafsson, Sverrir Páll Hjaltested og Sigurjón Rúnarsson saman. FH-ingar voru í leit að jöfnunarmarki og kom langur bolti upp að vítateig Framara. Sigurjón komst í boltann og þeir Sverrir og Ísak skullu harkalega saman.
Fyrir leik
Enginn Dagur Fjeldsted
Dagur Fjeldsted, sem kom til Breiðabliks á láni frá FH, mun ekki hafa tækifærið til að mæta sínum gömlu liðsfélögum. Hann meiddist á ökkla á æfingu, liðböndin sködduðust, og hann spilar ekki fyrr en í fyrsta lagi í næsta mánuði.
Fyrir leik
Gluggamál FH
Margir leikmenn komnir inn hjá FH og margir farnir frá liðinu
Komnir
Jökull Andrésson frá Aftureldingu
Adolf Daði Birgisson frá Stjörnunni
Sverrir Páll Hjaltested frá ÍBV
Tobias Carlsson frá Svíþjóð
Viktor Nói Viðarsson frá Belgíu
Aron Jónsson frá Aftureldingu
Kristján Snær Frostason frá HK
Arnór Borg Guðjohnsen frá Vestra (var á láni)
Gils Gíslason frá ÍR (var á láni)

Farnir
Sigurður Bjartur Hallsson til Spánar
Björn Daníel Sverrisson hættur og tekinn við Sindra
Böðvar Böðvarsson í ÍA
Ahmad Faqa til AIK (var á láni)
Bjarni Guðjón Brynjólfsson í Þór á láni
Bragi Karl Bjarkason í Njarðvík
Einar Karl Ingvarsson í Hauka
Jóhann Ægir Arnarsson í Njarðvík á láni
Dagur Traustason í Fylki
Mathias Rosenörn
Dagur Örn Fjeldsted í Breiðablik (var á láni)
Ísak Atli Atlason í ÍR á láni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gluggamál Breiðabliks
Ef farið er yfir gluggamál, þá hafa bæði lið verið virk, en kíkum fyrst á heimamenn í Kópavogi.
Komnir
Ívar Örn Árnason frá KA
Jónatan Guðni Arnarsson frá Svíþjóð
Dagur Örn Fjeldsted frá FH (var á láni)
Jón Sölvi Símonarson frá ÍA (var á láni)

Farnir
Damir Muminovic í Grindavík
Guðmundur Magnússon í Njarðvík (var á láni frá Fram)
Tobias Thomsen til Danmerkur
Þorleifur Úlfarsson til Bandaríkjanna
Brynjar Atli Bragason til Svíþjóðar
Gunnleifur Orri Gunnleifsson til Grindavíkur
Egill Valur Karlsson til Keflavíkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómaramál
Dómari leiksins er Gunnar Oddur Hafliðason.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Honum til halds og trausts eru Birkir Sigurðarson og Kristján Már Ólafs, fjórði dómarinn er Hreinn Magnússon og eftirlitsmaður er Hjalti Þór Halldórsson
Fyrir leik
Gott kvöld, kæru lesendur og verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Kópavogsvelli, þar sem Breiðablik tekur á móti FH!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.