Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetAlexander Tonini
Alexander Tonini
Breiðablik
Breiðablik
Besta kvenna
Kópavogsvöllur
9 stig sól og hvasst
3 - 2
Valur
Valur
Líf Joostdóttir van Bemmel 3'1 - 01 - 110' Margrét Brynja Kristinsdóttir1 - 217' Margrét Brynja KristinsdóttirSunna Rún Sigurðardóttir 91'2 - 2Málfríður Anna Eiríksdóttir (sjm) 95'3 - 2
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
Valur átti meira skilið
En fótboltinn spyr ekk svoleiðis og Blikar fara á topinn
Breiðablik
95. mín
Hvað er að gerast!!

Málfríður Anna Eiríksdóttir (sjm)

Við nánari sýningu er þetta því miður sjálfsmark og Blikar stela þessu
94. mín
Nú eru Blikar að reyna að stela þessu
Hver sóknin á fætur annarri, af hverju byrjuðu þær ekki fyrr á þessu
Breiðablik
91. mín
Dramatík í lokin

Sunna Rún Sigurðardóttir (stoðsending: Agla María Albertsdóttir )

Blikar jafna og það má deila um sanngirni lengi vel. Agla með góða aukaspyrnu inn í teig og þarna klikkaði vörnin og Sunna er ódekkuð og skallar í markið af stuttu færi.
Valur
90. mín
InnNadía Atladóttir
ÚtMargrét Brynja Kristinsdóttir
89. mín
Margrét Brynja nálægt því að skora þrennu
Vinnur boltann þarna á vinstri kantinn. Ákveður bara að halda áfram og áfram og er allt í einu komin inn í teig en færið þröngt og Elín Helga lokar líka vel á hana.
Breiðablik
89. mín
InnLilja Þórdís Guðjónsdóttir
ÚtKristín Dís Árnadóttir
87. mín
Hrafnhildur Ása aftur nærri því búin að jafna
Aukaspyrna frá Öglu Maríu á hættulegan stað og þar er Hrafnhildur mætt. En frábær varsla hjá Tinnu sem er hér að bæta upp fyrir mistökin áðan.
85. mín
Helga með góða björgun
Hrafnhildur Ása vöknuð til lífsins og aftur hætta á ferðinni. Núna vinstra megin og sendir fast inn í teig en þar er Helga mætt og bjargar í horn.
83. mín
Hrafnhildur Ása með skot í stöng
Loksins eitthvað að gerast og kemur eftir hornspyrnu. Fákastið dettur inn í teig og Edith að mér sýnist nær frákastinu og getur sett hann í markið. En það vill ekki betur til en að hún rennur og hittir varla boltann sem fer til hliðar og markspyrna.
77. mín
Fyrsta hálfæri í langan tíma hjá heimakonum
Agla María með fínan bolta inn í teig á Karítas sem snýr sér við og á hörkuskot og fast var það, en framhjá fór það. En þetta var alla veganna eitthvað.
Valur
76. mín
InnÁgústa María Valtýsdóttir
ÚtÍsabella Sara Tryggvadóttir
Flottur leikur hjá henni Ísabellu hér í kvöld Verðskulduðu hvíld
74. mín
Agla María er ekki sjón að sjá í þessum leik
Ég man aldrei eftir eins lélegri frammistöðu hjá Öglu María og hér í kvöld. Hún virkar þreytt og er ítrekað að reyna misheppnaðar háar sendingar án tilgangs.
Breiðablik
73. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtKatelyn Duong
69. mín
Ekkert að gerast
Tíminn vinnur með gestunum og það er allt eins og það á að vera valsmegin
Breiðablik
63. mín
InnSunna Rún Sigurðardóttir
ÚtBarbára Sól Gísladóttir
Ian búinn að sjá nóg og breytir þessu Tekur báða bakverðina út, athyglisvert
Breiðablik
63. mín
InnÓlöf Sigríður Kristinsdóttir
ÚtElísa Viðarsdóttir
57. mín
Sama vesen hjá Blikum
Það gengur hreinlega ekkert hjá þeim. Valsvörnin étur gjörsamlega allar þessar tilraunir. Ian hlýtur að vera að hugsa um breytingar fyrr en síðar.
50. mín
Vandræðagangur hjá Blikum
Seinni er ekki að fara af stað, þessi bolti hentar Val mun betur. Hægur og hugmyndasnauður og gæti verið stutt í pirring.
46. mín
Seinni hafinn
Valskonur leiða og byrja með boltann
45. mín
Gestirnir leiða í hálfleik. Valskonur hafa ekki verið slakari aðilinn og hvað þá miðað við að þær séu konu færri.
39. mín
Hrafnhildur Ása með dauðfæri
Er sloppin í gegn hægra megin en skýtur naumlega framhjá. Þarna hefði hún átt að gera betur.
34. mín
Fín sókn hjá Valskonum
Góð hröð sókn hægra megin sem endar með löngu skoti frá Arnfríði en nokkuð þægilegt fyrir Herdísi í markinu Gestirnir eru að bíta frá sér þrátt fyrir að vera einungis 10 á vellinum.
32. mín
Blikar meira með boltann og líklegri
En ná ekki alveg að skapa sér almennilegt færi.
28. mín
Mjög hvasst hér í kvöld
Það sést langar leiðir og hefur smá áhrif á leikinn
Breiðablik
22. mín
Gult spjald

Elísa Viðarsdóttir

22. mín
Hrafnhildur Ása með færi
Góður undirbúningur frá Öglu Maríu sem gefur inn í teig og munaði engu að Hrafnhildur Ása næði til boltans. En frábær varnar hjá Helgu að mér sýndist sem bjargar á síðustu stundu í horn.
Valur
18. mín
Hártog og beint rautt

Hrafnhildur Salka Pálmadóttir

Þetta var glórulaust og algjör óþarfi. Barbara Sól með boltann í í vinstri bakvarðarstöðunni og gabbar Hrafnhildi upp úr skónum og Hrafnhildur ákveður að stöðvar hana með því að rífa í hárið hennar. Gunnar sá þetta vel og var ekki lengi að rífa upp rauða spjaldið
Valur
17. mín
Margrét aftur þetta er rosalegt

Margrét Brynja Kristinsdóttir (stoðsending: Ísabella Sara Tryggvadóttir)

Ætli Blikar sjái eftir því núna að hafa látið hana fara? Og aftur er það Ísabella með stoðsendingu í gegn á Margréti sem keyrir bara áfram inn í teig og leggur hann laglega framhjá Herdísi í markinu.
15. mín
Blikarnir með góða sókn
Agla sendir á Edith á hægri sem reynir sendingu inn í teig en valsvörnin ver í horn. Ekkert kemur úr horninu.
Valur
10. mín
Fyrrum Bliki jafnar

Margrét Brynja Kristinsdóttir (stoðsending: Ísabella Sara Tryggvadóttir)

Sending þarna frá Ísabellu á Margréti sem tekur laglegan snúning inni í teig og þrumar honum með vinstri í hornið fjær. Gott svar frá gestunum.
8. mín
Málfríður með hörkutæklingu
Kemur þarna í veg fyrir dauðfæri hjá Líf sem hefði annars sloppið í gegn. Þetta var tækling af gamla skólanum
6. mín
Flott sókn hjá Breiðablik
Hrafnhildur Ása fær boltann á miðjunni og tekur sprett upp völlinn og á stungu á Líf sem er komin í gegn hægra megin. En hún reynir sendingu á Öglu Maríu í stað þess að skjóta bara og sendingin fer framhjá öllum.
Breiðablik
3. mín
Hrikaleg mistök hjá Tinnu Brá í markinu

Líf Joostdóttir van Bemmel

Kemur laus sending frá hægri kantinum og Tinna af einhverjum óskiljanlegum ástæðum nær ekki að gripa boltann. Hann fer á milli fóta hennar og þar beið Líf og skorar varla auðveldara mark en þetta. Autt mark af eins metra færi. Ekki byrjunin sem gestir vonuðust eftir.
1. mín
Það eru heimakonur sem sparka þessu af stað.
Fyrir leik
Spákona vikunnar
Aldís Kara Lúðvíksdóttir, leikmaður Hauka, spáir í leiki 4. umferðar. Hún eins og flestir sparksérfræðingar sjá fátt sem getur stöðvað Blika. Hún spáir þægilegum 4-1 sigri.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
Ian Jeffs gerir engar breytingar á sínu liði enda eflaust óþarfi. Eins og sagt er ef eitthvað virkar til hvers breyta eða reyna að laga. Matti gerir tvær breytingar á sínu liði Nadía Atladóttir og Ágúst María Valtýsdóttir setjast á bekkinn á meðan Hrafnhildur Salka Pálmadóttir og Ísabella Sara Tryggvadóttir byrja leikinn.
Fyrir leik
Dómarateymið í kvöld
Dómari kvöldsins er Gunnar Oddur Hafliðason. Aðstoðardómarar eru Jón Reynir Reynisson og Tryggvi Elías Hermannsson. Fjórði dómari er Bríet Bragadóttir og eftirlitsmaður Þóroddur Hjaltalín.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Valur á tímabilinu
Valskonur eru að byrja ekki ósvipað og í fyrra eða hægt. Einungis einn sigur í fyrstu þremur umferðunum og í 8. sæti með 3 stig. Þær byrjuðu vel á tímabilinu og unnu nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur 2-1 á Hlíðarenda. Mættu þar fyrrum stjörnu liðsins Natöshu Anasi. Í annarri umferð töpuðu þær fyrir Stjörnunni 0-2 á Samsungvellinum og í síðustu umferð töpuðu þær 2-3 fyrir nýliðum ÍBV á Hlíðarenda. Ekki verður verkefnið auðveldara í fjórðu umferð það er nokkuð ljóst. Spennandi leikmaður í liði Vals er Kolbrá Una Kristinsdóttir sem átti flottan lokasprett á tímabilinu í fyrra en nú þarf hún að taka næsta skref.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Kolbrá í baráttunni við Thelmu Karen Pálmadóttur í fyrra
Fyrir leik
Breiðablik á tímabilinu
Íslandsmeistarar Breiðabliks eru á sama róli og í fyrra, þrír leikir búnir og fullt hús stiga. Þær fara aftur á topinn með sigri hér í kvöld. Í fyrstu umferð unnu þær Þrótt 2-0 á Kópavogsvelli, í annarri umferð unnu þær Fram líka 2-0 og í síðustu umferð unnu þær Víking 4-2 á útivelli. Agla María Albersdóttir landsliðskona er án efa einn allra besti leikmaður deildarinnar og hefur spilað 65 leiki fyrir A-landslið Íslands. En núna er hugsanlega ný stjarna að fæðast sem heitir Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og er fædd 2006. Hún hefur spilaði í gegnum öll yngri landslið Íslands og nú gæti tíminn hennar verið komin. Í fyrra fékk hún einn og einn leik og spilaði alltaf vel þegar hún fékk tækifærið en í ár verður hún í aðalhlutverki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrafnhildur Ása hefur verið í liði vikunnar tvisvar í sumar
Fyrir leik
Valur fyrir mót
Það er óhætt að segja að tímabilið í fyrra hjá Val hafi verið talsvert undir væntingum og þegar þessu tvö lið mættust í fyrra voru yfirburðir Blika algjörir. En nú er komið nýtt ár og nýtt tækifæri, en spáin gerir hins vegar bara rétt svo ráð fyrir því að liðið endi í efri hluta eftir skiptingu. Komnar Ísabella Sara Tryggvadóttir frá Rosengård Margrét Brynja Kristinsdóttir frá FH Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir frá Þór/KA Sonja Björg Sigurðardóttir frá Þór/KA Eyrún Vala Harðardóttir frá Fram Sigrún Ísfold Valsdóttir frá HK Ágústa María Valtýsdóttir frá Haukum (var á láni) Hrafnhildur Salka Pálmadóttir frá Tindastóli (var á láni) Glódís María Gunnarsdóttir frá Haukum (var á láni) Farnar Fanndís Friðriksdóttir hætt Elísa Viðarsdóttir í Breiðablik Jordyn Rhodes Jasmín Erla Ingadóttir í Víking Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir Helena Ósk Hálfdánardóttir í Víking Arna Sif Ásgrímsdóttir í Þór/KA Natasha Anasi í Grindavík/Njarðvík
Fyrir leik
Íslandsmeistarar Breiðabliks
Fyrir mótið var ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Blika spáð efsta sæti á ný. Kannski eini munurinn í ár og í fyrra er að liðinu er ekki spáð jafnmiklum yfirburðum og í fyrra. Komnar Bryndís Arna Níelsdóttir frá Svíþjóð Taylor Kane frá Bandaríkjunum Elísa Viðarsdóttir frá Val Katelyn Duong frá Bandaríkjunum Mikaela Nótt Pétursdóttir frá FHLk Olga Ingibjörg Einarsdóttir frá Fram (var á láni) Farnar Andrea Rut Bjarnadóttir til Anderlecht Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir til Parma Birta Georgsdóttir til Genoa Heiða Ragney Viðarsdóttir til Eskilstuna Heiðdís Lillýardóttir hætt Jakobína Hjörvarsdóttir alfarið í Stjörnuna (var á láni) Helga Rut Einarsdóttir í Val Katherine Devine Katrín Ásbjörnsdóttir hætt Kyla Elizabeth Burns í KR Samantha Smith til Boston Legacy Sara Svanhildur Jóhannsdóttir alfarið í Fram (var á láni) Kristín Magdalena Barboza í Fram (var á láni hjá Haukum) Berglind Björg Þorvaldsdóttir ólétt
Fyrir leik
Velkomin í Kópavoginn
Fjórðu umferðinni í Bestu deild kvenna lýkur með þremur leikjum í kvöld. Hér verður bein textalýsing þegar Breiðablik fær Val í heimsókn og byrjar fjörið klukkan 18.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir aðrir leikir eru á dagskrá í kvöld: 19:15 Þróttur R. - Grindavík/Njarðvík 19:15 Fram - Víkingur R
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.