SKÝRSLAN: Andstæðan við flugeldasýningu
Hvað réði úrslitum?
Mjög rólegur leikur og skiljanlega þar sem bæði lið hafa fengið mikið af mörkum á sig í síðustu leikjum og vilja þá ekki fara í eitthverja flugeldasýningu. Víkingur skora einu sinni og sigla þessu heim, en voru samt óheppnar að skora ekki fleiri í seinni hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Jasmín Erla Ingadóttir
Sigurmark eða sjálfsmark. Annars var hún flott og var óheppin að skora ekki tvö í dag.
2. Bergdís Sveinsdóttir
Mjög góð og mikil orka. Horn og aukaspyrnurnar voru allar hættulegar og var óheppin að vera ekki með tvær stoðsendingar í dag.
Atvikið
Eftir mark Víkings, þá fara Framarar að herja á mark Víkings, en fyrirgjafirnar í flestum tilvikum voru ekki góðar og Víkingar sigla þessu heim.
Hvað þýða úrslitin?
Fram eru enn þá á botninum með 0 stig en Víkingur eru komnar í 6. sæti með 7 stig. Næst er það bikarinn á Föstudaginn og Fram fá ÍA í heimsókn og Víkingar fara til Keflavíkur.
Vondur dagur
Báðir markmenn voru ekki góðar í dag og báðar voru heppnar að fá ekki fleiri mörk á sig, þær voru báðar með klaufamistök sem andstæðingurinn nýtti sér ekki.
Dómarinn - 7
Meira álag á fjórða dómaranum með skiltið.




