Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 2
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
0 - 136' Sophia Faith Romine0 - 239' Rakel SigurðardóttirAlexia Marin Czerwien 53'1 - 2
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai

SKÝRSLAN: Nýliðarnir stálu senunni og stigunum þremur í Laugardalnum

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum í dag er bara frábær fyrri hálfleikur hjá Grindavík/Njarðvík og seiglan í þeim að halda þetta út án þess að Þróttur næði að jafna.

Bestu leikmenn

1. Rakel Sigurðardóttir

Mjög góð frammistaða hjá Rakel í kvöld, var mjög spræk í wingback, stoðsending í fyrsta markinu og setti svo sjálf seinna markið og hennar fyrsta mark í Bestu deildinni!

2. Tinna Hrönn Einarsdóttir

Margar sem gera tilkall hér en Tinna heillaði mig mikið í kvöld! Var frábær fram á við fyrir Grindavík/Njarðvík. Var ótrúlega lunkin í að komast í góðar stöður og var óheppin að ná ekki inn marki! Sophia Faith Romine átti líka hörkuleik

Atvikið

Set þetta á fyrsta mark Grindavíkur /Njarðvíkur, Voru búnar að hóta markinu nokkrar sóknir í röð og stórt að komast yfir gegn Þrótti á heimavelli! Rakel gerir vel í að setja boltann fyrir þar sem Sophia Romine rennir sér á boltann og inn.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Grindavík/Njarðvík vinnur sinn fyrsta útisigur og er nú komin með 6 stig í 5. sæti deildarinn! Ekki slæmt fyrir nýliða sem spáð var falli! Þróttur hins vegar tapa á heimavelli en halda 4. sætinu með 6 stig líka en betri markatölu.

Vondur dagur

Það var ekkert spes dagur hjá sóknarkonum Þróttar (fyrir utan Mist Funadóttur sem var svona þeirra ljói punktur), sérstaklega í fyrrihálfleik. Þanni ég set þetta á Kaylu Rollins, bara man varla eftir henni í fyrri hálfleik hún sást svo lítið.

Dómarinn - 6

Bara fínasta verk í dag hjá dómurunum í dag, ekkert stórvægilegt sem kom upp en hann hélt línunni fínt bara.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.