Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetAlexander Tonini
Alexander Tonini
Besta kvenna
Kópavogsvöllur
9 stig sól og hvasst
Breiðablik
Breiðablik
3 - 2
Valur
Valur
Líf Joostdóttir van Bemmel 3'1 - 01 - 110' Margrét Brynja Kristinsdóttir1 - 217' Margrét Brynja KristinsdóttirSunna Rún Sigurðardóttir 91'2 - 2Málfríður Anna Eiríksdóttir (sjm) 95'3 - 2
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Meistaraheppni í Kópavogi

Hvað réði úrslitum?

Meistaraheppni réði úrslitum í þessum leik þegar Blikar skoruðu tvö mörk í uppbótartíma og stálu sigrinum. Þrátt fyrir að vera manni fleiri frá 18. mínútu náðu þær ekki að brjótast almennilega í gegnum vel skipulagða vörn Vals. Að lokum þurfti sjálfsmark til að færa Blikum sigurinn.

Bestu leikmenn

1. Margrét Brynja Kristinsdóttir

Sú átti stórleik hér í kvöld gegn mörgum af betri leikmönnum deildarinnar. Fyrir utan þessi tvö mörk sem hún skoraði vann hún fjölda bolta á miðjunni og lét vel fyrir sér fara. Vonandi sleppur hún við meiðsli í sumar og annað sem vakti athygli er hvað hún er mikill leiðtogi á miðjunni.

2. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir

Valið var erfitt á milli hennar og Ísabellu Söru Tryggvadóttur sem átti virkilega flotta spretti og lagði upp tvö mörk. En þar sem Blikar stálu þessu þá verð ég að gefa Hrafnhildi þetta. En að því sögðu þá hefur hún átt mun betri leiki en það sýnir bara hvað hún er hæfileikaríkur leikmaður. Þegar Blikum tókst ekkert að skapa færi í seinni hálfleik var hún sú eina sem stafaði ógn af.

Atvikið

Atvikið er klárlega þjófnaðurinn á 95. mínútu þegar Málfríður reynir að stoppa Bryndísi inni í teig en vill ekki betur til en að hún tæklar boltann í eigið net. Þetta reyndist flautumark og ekki verðskuldað.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar fara aftur á topp deildarinnar með jafn mörg stig og ÍBV en betri markatölu. En úrslitin þýða líka að ef Valur spilar eins og þær gerðu hér í kvöld þá munu stigin klárlega fylgja í kjölfarið en þær enda við neðri mörk töflunnar að fjórum umferðum loknum.

Vondur dagur

Þennan óheiður hlýtur Hrafnhildur Salka Pálmadóttir sem af einhverjum óskiljanlegum ástæðum togar í hárið á Barböru þegar lítið sem engin hætta var á ferðinni. Reglan er einföld og rautt spjald fór á loft. Að því sögðu voru Valskonur alls ekki síðri eftir þetta atvik.

Dómarinn - 8

Vel dæmt hjá Gunnari Oddi hér í kvöld. Hárrétt rautt spjald fyrir glórulaust hártog. Leyfði leiknum að fljóta og var alls ekki að dæma að óþörfu. Flott frammistaða verð ég að segja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.