SKÝRSLAN: Grótta vann stórsigur á ríkjandi bikarmeisturum
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag voru einfaldlega yfirburðir Gróttu og hvernig þeir komu inn í þennan leik. Leikurinn var frekar jafn alveg fram að fyrsta marki Gróttu, þá hægðist mikið á Vestramönnum og Grótta einfaldlega kláruðu leikinn í fyrri hálfleik með því að skora fjögur góð mörk.
Bestu leikmenn
1. Tristan Freyr Ingólfsson.
Tristan var stórkostlegur hér í dag, hann skorar tvö frábær mörk og var góður báðum megin á vellinum.
2. Björgvin Brimi Andrésson
Björgvin lék á vinstri kanti hér í dag og gerði það rosalega vel hann sótti mikið á Gabríel í bakverðinum hjá Vestra sem átti erfitt með hann. Björgvin skorar einnig mark númer tvö hjá hjá Gróttu sem var rosalega mikilvægt fyrir þá.
Atvikið
Annað mark Gróttu var stórt atvik vegna þess að eftir það þá brotnuðu Vestramenn alveg og áttu ekki séns eftir það. Vestramenn voru mjög ósáttir við þetta mark vegna þess að þeim fannst Grímur Ingi fyrirliði Gróttu leika boltann með hendinni í aðdraganda marksins.
Jóhann var nýbúinn að dæma hendi á mark sem Þórður Gunnar skoraði sem gerði Vestramenn ennþá æstari
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða einfaldlega það að Grótta er komið í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins og verða í pottinum þegar það verður dregið seinna í dag.
Titilvörn Vestramanna er á enda og þeir geta farið að einbeita sér á Lengjudeildinni og Evrópu.
Vondur dagur
Daniel Badu fær þennan stimpil eftir að mínu mati illa uppsettan leik. Badu gerir sex breytingar á liðinu sínu í dag og skilur lykilmenn eftir utan hóps. Svo fær Badu einnig rautt spjald í hálfleik sem var nákvæmlega það sem liðið hans þurfti ekki eftir erfiðan hálfleik.
Dómarinn - 7
Jóhann og hans teymi voru flottir í dag. Þeir tóku tvær stórar ákvarðanir sem voru flóknar að dæma vegna þess að það er alltaf þessi stóra spurning um hvað er hendi og hvað ekki. Þeir taka mark af Vestra sem var líklega rétt, en síðan á mjög svipað atvik sér stað þar sem Grímur Ingi virðist hafa handleikið boltanum. Jóhann stóð með þessum dómum og leikurinn var yfir höfuð vel dæmdur.


