Fotbolti.net
@fotboltinetSigurður Bibbi Sigurðarson
Mjólkurbikar karla
Greifavöllurinn
KA
KA
1 - 2
Ægir
Ægir
0 - 117' Harley Bryn Willard0 - 223' Nikola Kristinn StojanovicJakob Héðinn Róbertsson 31'1 - 2
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Ótrúleg seigla Ægis sem sló út KA

Hvað réði úrslitum?

Barátta og vilji Ægismanna skein úr andlitum þeirra frá fyrstu mínútu. Þeir héldu skipulaginu út leikinn. Þegar upp var staðið þá er ljóst að fyrrum Þórsarar skoruðu mörk Ægis og fyrrverandi markmaður úr Þór varði eins og herforingi. Góður dagur fyrir Þórsara. KA menn vanmátu Ægi heldur betur og héldu að þetta kæmi að sjálfu sér.

Bestu leikmenn

1. Ómar C. Einarsson

Markmaðurinn hjá Ægi var mjög góður, öruggur í öllum sínum aðgerðum og hirti boltann oft af tám KA manna.

2. Nikola Stojanovic og Harley Willard

Skoruðu sitt hvort markið og komu þannig Ægi áfram. Það hefði verið hægt að velja miklu fleiri Ægismenn hérna.

Atvikið

90 mínútna barátta með blóði, svita og tárum. Þetta var eitt risastórt augnablik þessar 90 mínútur fyrir Ægi.

Hvað þýða úrslitin?

Ægir er komið í 8 liða úrslit en KA úr leik og draumur þeirra um auðvelda leið í Evrópukeppni úr sögunni.

Vondur dagur

Hræðilega vondur dagur fyrir sóknarmenn KA. Þeir höfðu eflaust vonað að hér væri tækifæri til að koma sér í markaskóna en þeir voru rækilega pakkaðir niður í tösku og inni í skáp. Djuric og Oliver voru teknir út af í hálfleik þar sem ekkert var að frétta hjá þeim. Þessir rándýru framherjar og aðrir hjá KA verða að sætta sig við það að botnliðið í Lengjudeildinni varðist öllum þeirra aðgerðum mjög vel.

Dómarinn - 6

Missti smá tökin á leiknum á tímabili en náði sér aftur á strik. Sleppti ýmsum augljósum brotum og gulum spjöldum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.