Fotbolti.net
@fotboltinetViktor Ingi Valgarðsson
Fylkir
Fylkir
Mjólkurbikar karla
tekk VÖLLURINN
Eintóm blíða
5 - 0
FH
FH
Baldur Kári Helgason (sjm) 6'1 - 0Hlynur Sævar Jónsson 19'2 - 0Máni Austmann Hilmarsson 24'3 - 0Dagur Traustason 48'4 - 0Máni Austmann Hilmarsson 54'5 - 0
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: FH fékk kennslu hjá gamla þjálfaranum sínum

Hvað réði úrslitum?

Þvílíkur yfirgangur sem tók yfir hjá Fylki eftir að fyrsta markið kom. Þeir FH-ingar sáu aldrei til sólar en ótrúleg frammistaða Fylkis var heldur betur nóg til að skila liðinu sanngjarnt áfram í bikarnum.

Bestu leikmenn

1. Kári Sigfússon

Veit að Heimir Guðjónsson fékk þetta frá stúkunni en Kári var frábær á vellinum. Nánast allt sem hann gerði á hægri kantinum endaði í marki ef ekki þá dauðafæri. Frábær stoðsendingar og á fyrsta markið þó það hafi verið sjálfsmark.

2. Máni Austmann Hilmarsson

Hægt að velja mjög marga hér en Máni fær þetta í dag fyrir sín tvö mörk

Atvikið

Mér fannst innkoma liðanna í seinni hálfleik verið atvik leiksins. FH voru 3-0 undir en það var eins og Fylkir liggi meira á að koma tilbaka. Í staðan setja þeir tvö fljót mörk og dimmalim leik lokið 5-0.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir er komið í 8-liða úrslit og Heimir varð að ósk sinni með heimaleik þar. Búið er að draga og Fylkir mætir Gróttu í 8-liða úrslitum. Bikarferð FH lýkur þetta tímabilið og þá er bara fullur fókus á Bestu Deildina.

Vondur dagur

FH liðið. Það hefði mögulega getað reddað tímabilinu að fara í einhverskonar bikar ævintýri þar sem ferðalag þeirra í Bestu Deildinni er ekki að byrja vel. En virkilega vondur dagur hjá FH í dag og þeir vita það best.

Dómarinn - 7

Ekkert að setja út á frammistöðuna í dag
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.