Leik lokið!
KA tapar fyrir botnliði Lengjudeildar á heimavelli
Þvílík vonbrigði fyrir heimamenn.
95. mín
Horn frá hægri
Síðasti möguleiki KA? en Ómar grípur örugglega.
94. mín
Hraðaupphlaup
Ægismenn komast tveir á tvo. Kristinn er hins vegar stiginn út af Markúsi.
92. mín
Dauðafæri - KA
Hallgrímur á snyrtilega fyrirgjöf inn í miðjan teig þar sem Sveinn Margeir rís hæst og skallar í slána. Enn bjargar sláin Ægi
Leik lokið!
KA tapar fyrir botnliði Lengjudeildar á heimavelli
Hræðileg úrslit fyrir KA sem hefur verið sterkt í bikarkeppninni undanfarin ár.
Frábært hjá Ægi. Þeir börðust eins og ljón og lögðu allt í sölurnar.
90. mín
Uppbótartími og færi
5 mínútur í uppbótartíma og Sveinn Margeir á um leið og hann er sýndur skalla framhjá.
90. mín
Hálffæri
Jakob Snær kemst upp hægra megin leikur á tvo Ægismenn en á svo skot hátt yfir.
86. mín
Brot við miðju - færi og loks horn
Markús Máni Pétursson
Eftir mikið klafs inni í markteig Ægis berst boltinn á Jordan sem kemst upp völlinn og Markús brýtur /varla/ á honum. EFtir aukaspyrnuna kemur fyrirgjöf þar sem Ægir á þrjú skot á markið en inn vill boltinn ekki en endar í horni85. mín
Aukaspyrna
Benedikt Þór Viðarsson
KA fær aukaspyrnu sem Hallgrímur tekur 8 metra utan teigs. Spyrnan fer beint í vegginn og hann fær hann aftur. Aukaspyrnan var frekar ódýr83. mín
Víti ?
Kristinn kemst inn fyrir vörn KA og inn í teig þar sem hann virðist vera rifinn niður en ekkert dæmt. Ægismenn ósáttir.
82. mín
Horn KA
Horn sem Samuel vinnur fyrir KA. Ómar grípur hornið örugglega.
80. mín
Leikaraskapur
Jordan Adeyemo
Skrítin ákvörðun hjá Jordan. Kemst inn í teig og ístað þess að halda boltanum þá lætur hann sig detta við afskaplega litla snertingu.80. mín
InnBenedikt Þór Viðarsson
ÚtSigurður Óli Guðjónsson
Ægir skiptir
Ferskir fætur inn hjá Ægi
79. mín
Dauðafæri
KA kemur boltanum inn í teig og Ómar missir af honum. Jóan nær skalla en bjargað á línu og rangstaða dæmd.
76. mín
Langar mínútur
15 mínútur eftir og nokkuð ljóst að KA mun leggjast þyngra og þyngra á sunnanmennina.
75. mín
InnJakob Snær Árnason
ÚtJakob Héðinn Róbertsson
Skipting KA
Jakob Héðinn fer út af eftir aðhlynningu og inn kemur nafni hans.
74. mín
Brot
Hallgrímur rífur Ægismann niður og flestir hefðu séð gult þarna.
73. mín
Þung pressa.
KA pressar stíft og Ægismenn reyna að dúndra boltanum fram til að sækja hratt en KA vinnur hann jafnan aftur og heldur pressunni. Að lokum kemur skot framhjá og Jakob Héðinn leggst niður og þarf aðhlynningu.
70. mín
Horn - KA
hornið tekið stutt og Ægir kemst fyrir sendingu og aftur horn frá hægri. Eftir hornið berst boltinn eftir nokkuð bras hátt inn í teig þar sem KA á skalla að marki en Ómar ver vel.
68. mín
Horn - KA
Enn eitt hornið nú frá hægri. Snúið á fjær en brot hjá KA
66. mín
InnMarko Panic
ÚtBjarki Rúnar Jónínuson
Horn - KA og skipting hjá Ægi
Horn núna frá vinstri sem fer yfir hópinn og skot langt yfir.
66. mín
Horn - KA
Hornið skallað frá í innkast
63. mín
InnSnorri Kristinsson
ÚtValdimar Logi Sævarsson
Aftur tvöföld skipting hjá KA
Haddi setur aukinn þunga í sóknina og skiptir varnar og sóknarmanni útaf fyrir miðju og sóknarmann
63. mín
InnSveinn Margeir Hauksson
ÚtKári Gautason
Aftur tvöföld skipting hjá KA
Haddi setur aukinn þunga í sóknina og skiptir varnar og sóknarmanni útaf fyrir miðju og sóknarmann
61. mín
Færi KA og horn
Samuel fær boltann upp í vinstra hornið, rennir honum á Hallgrím sem á skot í varnarmann og aftur fyrir. Hornið tekið inn í markteig og að lokum hreinsa Ægismenn
58. mín
Skrautlegt
KA menn bakka með boltann og senda aftur á Ívar sem hittir hann furðulega en nógu furðulega til að Willard missir af honum. Ívar kemur honum svo á samherja.
57. mín
Sókn Ægir
Paul hristir Jeppe af sér og stingur hann af með boltann. Á svo fyrirgjöf sem er hreinsuð í innkast sem ekkert verður úr.
55. mín
Skot Ægir og aftur
Ægismenn rjúka upp völlinn, brotið á þeim en halda boltanum sem berst til Jordan sem á skot sem er varið. KA kemur boltanum í leik en Ægir vinnur hann strax og aftur fær Jordan boltann og á skot framhjá fjær stönginni. KA heppnir þarna.
54. mín
Skot KA
Boltanum er komið hratt fram völlinn á Samuel sem á skot rétt utan markteigs vel yfir markið
54. mín
Skot
Willard ber boltann upp völlinn og hristir miðjumenn KA af sér eins og flugur. Á svo skot sem Ívar ver.
52. mín
Fyrirgjöf
Samuel kemur boltanum fyrir og Ómar fer út að grípa en missir hann. Hann er samt fyrstur að átta sig og nær honum aftur
51. mín
Bjargað á línu
Montiel kemur upp með boltann hægra meginn og kemur honum fyrir á Hallgrím sem leggur hann út á Valdimar sem á skot sem er varið á línu.
48. mín
Klafs
Nenad Zivanovic
Hornið berst til Ívars sem kemur boltanum í leik og þá er brot sem Nenad er ósáttur við48. mín
Horn
Paul kemst upp hægra meginn og fær horn
45. mín
InnJordan Adeyemo
ÚtMarkús Máni Jónsson
Ægir skiptir
45. mín
InnDiego Montiel
ÚtOliver Heiðarsson
Tvöföld skipting hjá KA
Haddi tekur Djuric og Oliver út af. Inn koma Jóan og Diego
45. mín
InnJóan Símun Edmundsson
ÚtDanijel Dejan Djuric
Tvöföld skipting hjá KA
Haddi tekur Djuric og Oliver út af. Inn koma Jóan og Diego
45. mín
KA og bikarkeppnin
KA hefur svo gríðarlega bikarreynslu og veit hve stutt vegferð er í Evrópusæti að þeir hljóta að rífa sig upp á rassgatinu (má segja þetta :-) )og koma dýrvitlausir í seinni hálfleikinn.
45. mín
Ægilega góður fyrri hálfleikur
Fyrri hálfleikur var jafnari en maður bjóst við fyrir leikinn. Ægismenn hafa haldið vel í sitt skipulag og barist eins og ljón. KA menn hafa aftur á móti pressað á gestina en þeir hafa náð að leysa þessa pressu, bæði fremst og á miðjunni og spilað í gegnum KA margoft.
45. mín
Hálfleikur
Ægir er yfir 2 - 1 í leiknum. Nú eru þeir búnir að skora meira en í öllum þremur leikjunum sínum í Lengjubikarnum.
Það er ljóst að verkefnið í seinni hálfleik verður erfitt fyrir bæði lið. Ægir að halda fengnum hlut og KA að rífa sig upp.
45. mín
Uppbótartími
Uppbótartími 2 mín
42. mín
Meiðsl
Bjarki liggur á vellinum eftir samstuð við KA mann.
41. mín
Skot - Ægir
Bjarki fær boltann út fyrir teig hjá KA og leggur hann fyrir sig og á gott skot en framhjá. Þetta var vænlegt hjá Ægi eftir pressu undanfarnar mínútur.
40. mín
Pressa
KA menn eru vaknaðir og pressa núna mjög á Ægi
39. mín
Dauðafæri KA
Kári leggur boltann út á Oliver sem á skot í slá og niður. Sumir héldu boltann vera inni en ekki dómarinn og það skiptir mestu máli.
37. mín
Dauðafæri hjá KA
Jeppe vinnur boltann við vítateig eftir klafs hjá varnarmönnum Ægis. Boltanum er komið fyrir þar sem Hallgrímur skallar í slána.
35. mín
Dauðafæri - eða næstum því
Ægir tekur útspark stutt og boltanum er komið fram á Kristinn sem á sendingu inn fyrir í fyrsta og Markús virðist vinna kapphlaupið við nafna sinn í vörn KA. Markús Máni nær hins vegar að tækla boltann frá honum og Ægir vill víti. Það hefði verið hart og rangt.
31. mín
Stoppar hraða sókn
Hans Viktor Guðmundsson
Ægir fer upp hægra megin og Hans tekur Kristinn niður31. mín
KA minnkar muninn
Jakob Héðinn Róbertsson
Mér sýndist Hallgrímur Mar koma með sendingu inn í markteig þar sem Jakob mætti og stýrði boltanum framhjá Ómari í markið. Þetta léttir aðeins á heimamönnum.30. mín
Fyrirgjöf
Kári með fyrirgjöf frá vinstri sem er skölluð framhjá.
27. mín
Horn KA
KA fær horn vinstra megin og það siglir yfir hópinn og er skallað í útspark
26. mín
InnStefan Dabetic
ÚtBaptiste Gateau
Skipting hjá Ægi
Ægir skiptir um varnarmann. Það hljóta að vera meiðsli.
23. mín
Færi hjá Ægi og mark í framhaldinu
Nikola Kristinn Stojanovic
Bjarki kemst upp vinstra megin, tapar boltanum en Ægir vinnur hann aftur og Bjarki fær hann, kemst upp að endalínu og rennir honum fyrir. KA bjargar í horn. Það er tekið yfir pakkann þar sem Nikola fær hann og setur hann utan úr teig í fjær hornið. Þetta er óvænt svo vægt sé til orða tekið21. mín
Vinnsla í Valda
Valdimar vinnur boltann af Ægismönnum úti við vítateigshornið, sleppur í gegn en tapar boltanum í tæklingu við markteig og Ómar hirðir hann. Þarna skall hurð nærri hælum.
20. mín
færi
Hallgrímur laumar boltanum inn á Jakob en Ómar kemur út og hirðir boltann af tánum á honum.
17. mín
Harley Willard skorar
Harley Bryn Willard
Eftir mikið bras á varnarmönnum KA dettur boltinn fyrir Willard sem setur hann í hornið fjær15. mín
Sókn KA
Kári kemst í gegnum Ægismenn og leggur út á Djuric sem á skot. KA menn hirða frákastið og koma honum aftur á Djuric sem er þá rangstæður, hefði átt að gera betur þarna.
14. mín
Hröð sókjn
Ægir tekur útsparkið hratt og spilar í gengum pressu upp vinstra megin og uppskera horn sem ekkert kemur út úr.
13. mín
Skot
Hallgrímur Mar og Valdimar standa yfir boltanum en Valdimar fær að taka og setur hann rétt yfir.
12. mín
Aukaspyrna
Markús Máni Jónsson
Markús aðeins of seinn í Kára og KA fær aukaspyrnu rétt utan teigs11. mín
Vel spilað
KA missir boltann upp við endalínu og Ægismenn spila sig snyrtilega í gegnum pressu heimamanna og ná að byggja upp álitlega sókn sem endar með misheppnuðu skoti, eiginlega með báðum fótum.
9. mín
Sókn hjá KA
Oliver fær boltann uppi hægra megin en hreinsað út af í innkast.
KA heldur boltanum vel og lætur hann fljóta á milli kanta. Þetta verða langar 90 mínútur fyrir Ægismenn
6. mín
Markvarsla
Jakob Héðinn fær boltann inni í teig en Ómar kemur vel út og ver.
5. mín
Hröð sókn
Ægir brunar upp og koma boltanum á Willard sem er stiginn út.
5. mín
Fyrirgjöf
KA sækja upp vinstra megin og koma honum fyrir á fjærstöngina þar sem Oliver Heiðarsson er en nær ekki almennilegum skalla.
4. mín
Taktíkin
Ægismenn beita hinni hefðbundnu taktík "litla liðsins" liggja til baka og sækja hratt upp kantana.
2. mín
Stungusending
Valdimar laumar boltanum inn á Oliver sem er rangstæður.
1. mín
KA byrjar með boltann
KA spilar til vesturs í dökkbláum bolum og bláum buxum. Ægir eru í gulum og svörtum búning.
Fyrir leik
Gengi liðanna
Gengi liðanna er ólíkt.
Eftir brösuga byrjun KA manna hafa þeir spilað betur að undanförnu og uppskorið stig sem hafa fært þá hægt og bítandi upp töfluna í Bestu deildinni. Þeir eru núna komnir í 6. sætið með 7 stig eftir tvo sigra gegn Þór og Vestmannaeyjum.
Ægir hefur aftur á móti byrjað afleitlega í Lengjudeildinni og tapað öllum þremur leikjum sínum þar það sem af er, gegn Fylki, Gróttu og HK.
Það er nokkuð ljóst að Ægir mun ekki gefa þumlung eftir og reyna að ná sínum fyrsta sigri í dag til að snúa gengi liðsins við. Að sama skapi ætla KA menn að halda í sigurleikjahrinuna sína og ná þriðja sigrinum í röð í hús.
En bikarleikir eru óútreiknanlegir þannig að við bíðum og sjáum hvað gerist (en ekki hvað).
Fyrir leik
Ungir leikmenn í KA
KA stillir upp sterku liði gegn Ægi og ætlar greinilega ekki að falla í einhverja vanmatsgryfju. Þeir tefla reyndar fram þremur leikmönnum fæddum 2006. Markmaðurinn Ívar sem var á láni hjá Völsungi í fyrra er að spila sinn annan leik með meistaraflokki KA, hann spilaði einn í lengjubikarnum áður. Hann hefur staðið sig vel á æfingum og fær því sjensinn. Jóhann varamarkmaður er svo ári yngri á bekknum.
Markús Máni og Valdimar Logi báðir 2006, eða tvítugir, eru í byrjunarliðinu.
Á bekknum eru tveir 2007, einn 2008 og einn, Snorri Kristinsson, 2009.
Fyrir leik
Hefur spilað með báðum liðum
Harley Bryn Willard í liði Ægis hefur komið víða við á ferlinum á Íslandi.
Hann hóf ferilinn með Vikingi Ólafsvík, og var góður þar. Fyrir Ólsarana skoraði hann 35 mörk. Það vakti athygli á honum.
Árið 2022 spilaði hann á Akureyri en reyndar hinum megin við ána, með Þór. Þegar hann var með Þór skoraði hann 11 mörk í öllum keppnum.
Árið eftir prófaði hann hinum megin Glerár og spilaði 2023 með gulum og bláum KA mönnum. Þar skoraði hann minna.
Eftir að hann yfirgaf Þór hefur hann spilað með KA, Selfossi og núna Ægi. Markaskórnir urðu eftir í Þorpinu því að hann hefur aðeins skorað 13 mörk samtals fyrir þessi þrjú félög á þremur árum.
Það er spurning hvort hann setji eitt á sínum gamla heimavelli.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Hvorki Stubbur sem er reyndar ekki í hóp, né Sveinn Margeir eru í byrjunarliðinu þannig að Hallgrímur er sá eini KA megin sem byrjar þessa báða leiki sem liðin hafa spilað.
Ægismenn hafa einnig einn leikmann, Bjarka Rúnar Jónínuson sem byrjaði leikinn 2022.
Þannig að þó svo að liðin hafi mæst einu sinni þá má leiða líkur að því að leikmennirnir í liðunum hafi ekki mæst.
Fyrir leik
Fyrri leikir / leikur
KA og Ægir hafa einu sinni mæst áður skv. Fotmob. Það var 2022 í bikarnum og þá var eins og núna spilað á Akureyri. En þá var væntanlega spilað á Greifavellinum sem sorglega er fallinn út af sakramentinu sem knattspyrnuvöllur þar sem þetta vallarstæði er eitt það fallegasta á landinu. Það hefði verið draumur að gera það að almennilegum velli og bæði Þór og KA hefðu hann sem heimavöll. Æfingaaðstaða svo að Hamri og hér á KA svæðinu. En svona er pólitíkin. Gul og rauð. En ekki appelsínugul eins og besta lið landsins er. :-)
Sá leikur endaði 3 - 0 fyrir KA. Þorri skoraði 2 og Sveinn Hauks eitt.
Liðin eru að sjálfsögðu gerbreytt síðan 2022 en samt eru 3 af byrjunarliðinu 2022 sem gætu byrjað í dag, Stubbur í markinu, Hallgrímur Mar og fyrrnefndur Sveinn Margeir Hauksson.
Ægisliðið er ekki komið inn þannig að ég sé ekki strax hvort þar séu einhverjar kempur sem spiluðu leikinn fyrir fjórum árum.
Fyrir leik
Bikardagur á Uppstigningardegi
16-liða úrslitum lýkur með þremur leikjum:
14:00 KA-Ægir (Greifavöllurinn)
14:00 Vestri-Grótta (Kerecisvöllurinn)
15:00 Fylkir-FH (tekk VÖLLURINN)
Sjáðu mörkin og úrslitin úr leikjum gærdagsins:
14.05.2026 00:10
Hvenær verður dregið?
Það verður dregið í 8-liða úrslit í beinni útsendingu í samantektarþættinum á RÚV2 en hann fer í loftið eftir leik Fylkis og FH. Áætlað er að hann hefjist 16:55.Sjáðu öll bikarmörkin: Stjarnan stöðvaði sigurgöngu KR
Fyrir leik
Velkomin á Brekkuna
KA fær Ægi úr Þorlákshöfn í heimsókn í dag í bikarnum. Veðrið er mjög flott fyrir fótbolta. Um 10 stiga hiti og nánast logn.



