Fotbolti.net
Magnús Atlason
Magnús Atlason
Grótta
Grótta
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
12°, skýjað og létt gola
5 - 3
Vestri
Vestri
Mattías Kjeld 21'1 - 01 - 145' Chriss-Albin MörfeltMattías Kjeld (víti) 51'2 - 1Andri Freyr Jónasson 68'3 - 13 - 282' Thibang Sindile Theophilius3 - 388' Guðmundur Páll EinarssonBjörgvin Brimi Andrésson 90'4 - 3Alexander Emil Stefánsson 94'5 - 3
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Leik lokið!
Alvöru leikur sem við fengum hér. Góður karaktersigur hjá Gróttumönnum. Skýrsla og viðtöl væntanleg.
Grótta
94. mín
Þeir eru að ganga frá þessu

Alexander Emil Stefánsson

Kristófer með gott hlaup, sendir fyrir og þar er Alexander sem getur ekki klúðrað þessu færi. Þarf ekki að vera flókið.
91. mín
FÆRI
Góð fyrirgjöf en skallinn ekki nógu góður hjá Vestra. Beint á Guðmund.
Grótta
90. mín
HA?!

Björgvin Brimi Andrésson

Ótrúlegar mínútur. Upp úr engu er Björgvin Brimi kominn inn í teiginn og kemur með öruggt skot niður í hægra hornið þar sem Marvin nær ekki til hans. Gegn gangi leiksins.
Vestri
88. mín
ALLT JAFNT

Guðmundur Páll Einarsson

Þvílíkur leikur. Sending inn fyrir á Guðmund sem klárar niður fast niður í hægra hornið.
87. mín
Vestri vilja gult fyrir tímasóun en leikurinn heldur áfram.
86. mín
Vestramenn eiga leikinn í augnablikinu.
Vestri
82. mín
Erum við með leik?

Thibang Sindile Theophilius

Vestri fær hornspyrnu sem er tekin á fjær þar sem Phete er óvaldaður og setur hann niður í hornið.
Grótta
79. mín
InnEinar Tómas Sveinbjarnarson
ÚtTristan Freyr Ingólfsson
Grótta
79. mín
InnElmar Freyr Hauksson
ÚtHalldór Hilmir Thorsteinson
Tvöföld Gróttuskipting. Halldór Hilmir heldur um haminn og er tekinn af velli.
77. mín
Guðmundur enn og aftur
Guðmundur Páll sloppinn einn í gegn og reynir að koma sér framhjá nafna sínum í markinu en Guðmundur Rafn gerir vel.
74. mín
Vestri vilja víti
Vestramenn brjálaðir, þeir vilja hendi en fá ekkert nema horn.
Vestri
70. mín
InnEmmanuel Agyeman Duah
ÚtSergine Modou Fall
Vestri
70. mín
InnPétur Bjarnason
ÚtChriss-Albin Mörfelt
Vestri
70. mín
InnGuðmundur Páll Einarsson
ÚtChriss-Albin Mörfelt
Vestri að gera þrefalda breytingu
Grótta
68. mín
Þriðja markið komið

Andri Freyr Jónasson

Frábært horn á nær þar sem Andri Freyr rífur sig lausan og skallar í nærhornið. 3-1
67. mín
Grótta fær horn
61. mín
Hættuleg fyrirgjöf sem ratar beint á kollinn á Andra Frey. Góður skalli en Marvin nær að setja höndina í boltann. Þarna mátti engu muna.
60. mín
Mattías með fínasta hlaup og kemur með hættulega sendingu fyrir markið en hún rétt missir af samherja. Grótta fær horn.
58. mín
Guðmundur sterkur í loftinu og kýlir boltann frá.
57. mín
FÆRI
Skyndisókn hjá Vestra sem endar með fínu skoti Selvéns sem Guðmundur ver vel. Hornspyna
55. mín
Konstantin með skot lengst fyrir utan teig langt framhjá.
Grótta
51. mín
Öruggur

Mattías Kjeld

Sendir Marvin til vinstri og skýtur til hægri. Grótta komnir yfir að nýju.
50. mín
GRÓTTA FÆR VÍTI
Gróttumaður felldur innan teigs, Matthías stígur á punktinn
46. mín
Komið af stað að nýju
45. mín
Allt jafnt á Vivaldi vellinum. Vestri hafa verið að vinna sig inn í leikinn en hefur mætt nýta færin sín betur. Sterkt að ná inn marki rétt fyrir hálfleik.
Vestri
45. mín
Rétt fyrir hálfleik

Chriss-Albin Mörfelt

Boltinn berst til Mörfelt inn í teignum sem setur hann snyrtilega með vinstri niður í hægra hornið. Þetta kom á hárréttum tíma.
Vestri
43. mín
InnKonstantin Cheshmedjiev
ÚtGunnar Jónas Hauksson
Högg fyrir Vestra
Gunnar getur ekki haldið leik áfram og biður um skiptingu. Þeir eru búnir að missa tvo menn í meiðsli í þessum fyrri hálfleik.
40. mín
Rangstaða
Enn og aftur er Vestri komið í góða stöðu en nú er flaggað á Ibrahim og rangstaða dæmd.
39. mín
Hann virðist geta haldið leik áfram.
36. mín
Nú fær Gunnar Hauks aðhlynningu. Hann haltrar út fyrir hliðarlínu, ekki góður fyrri hálfleikur fyrir Vestra.
33. mín
BALDE
Ibrahima Balde vinnur boltann rétt fyrir utan teig, þríhyrningsspil og svo skot sem er enn og aftur beint á Guðmund. Þeir verða að nýta stöðurnar betur.
30. mín
Hættulegt
Johannes keyrir inn í teiginn og ætlar að senda fyrir en sendingin ónákvæm og ekkert varð úr þessu.
Vestri
29. mín
InnJohannes Selvén
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
Við vonum að þetta sé ekki alvarlegt.
27. mín
Hann virðist ekki getað haldið leik áfram. Johannes Selvén að gera sig kláran.
24. mín
Vestri fær horn sem endar með skoti sem Guðmundir á í engum erfiðleikum með. Þórður liggur eftir
Grótta
21. mín
Þvílíkt mark!

Mattías Kjeld

Mattías með skot fyrir utan vítateigshornið upp í fjærhornið. Frábær afgreiðsla, Marvin átti ekki séns í þennan.
17. mín
Fyrsta færi Vestra
Sergine Fall þræðir sig inn í vítateig Gróttu en beint á Guðmund í markinu.
15. mín
Grótta að fá fimmtu hornspyrnuna. Þeir eru töluvert líklegri.
12. mín
FÆRI
Grótta með sendingu út í teiginn á Björgvin Brima sem skýtur í varnarmann og afturfyrir. Besta færi leiksins hingað til.
10. mín
Frábær tækling
Tristan Freyr með frábæra tæklingu sem endar með markspyrnu hjá Gróttu, Vestramenn ósáttir en sennilegast hárrétt.
8. mín
Grímur Ingi með hörkuskot eftir seinni hornspyrnuna fyrir utan D-bogann en yfir markið.
7. mín
Horn
Grótta fær hornspyrnu. Lítið að frétta þessar fyrstu mínútur. Hún fer yfir pakkann en þeir fá aðra hornspyrnu hinum megin frá
1. mín
Farið af stað
Grótta sparkar þessu af stað!
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Grótta heldur sínu liði óbreyttu frá tapi þeirra gegn Aftureldingu. Vestri gerir 4 breytingar frá sigurleiknum gegn Ægi. Pétur Bjarnason, Johannes Selvén, Konstantin Chesmedjiev og Guðmundur Páll Einarsson verma bekkinn. Inn fyrir þá koma Jacob Stensson, Þórður Gunnar Hafþórsson, Breki Þór Hermannsson og Sergine Fall. Liðin rétt að klára upphitun, korter í Kick Off.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Spámaður vikunnar spáir 2-1 sigri Gróttu í dag. Þetta hafði Baddi Borgars að segja: "Vestramenn hafa harma að hefna eftir bikarleikinn um daginn en ná ekkert að hefna, Grímur Ingi verður maður leiksins og fagnar svo þessum sigri í Skútuvoginum, gera það að hefð."
Fyrir leik
Tríóið
Dómari leiksins er Gunnar Freyr Róbertsson og honum til aðstoðar eru Tomasz Piotr Zietal og Ragnar Arelíus Sveinsson. Eftirlitsmaður KSÍ er Jón Magnús Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Vestri
Vestramenn fóru illa af stað en hafa nú tengt saman tvo sigra gegn HK og Ægi en þeir sitja í 5. sæti með 7 stig fyrir umferðina.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fyrir leik
Grótta
Nýliðar Gróttu hafa farið brösuglega af stað en þeir hafa nælt sér í 3 stig og sitja í 10. sæti deildarinnar fyrir umferðina. Þeir sóttu sigur til Þorlákshafnar gegn Ægi í þriðju umferðinni en hafa tapað rest.
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Fyrir leik
Mættust í Mjólkurbikarnum
Gróttumenn fóru illa með Vestra fyrir vestan í 4-0 sigri í 16 liða úrslitum bikarsins. Tristan Freyr Ingólfsson setti þá tvennu og Daniel Badu þjálfari Vestra fékk að líta á rauða spjaldið. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Vestramenn svara fyrir sig í dag.
Mynd: Grótta
Fyrir leik
Leikdagur út á nesi
Verið velkomin í beina textalýsingu frá Vivaldivellinum þar sem Grótta tekur á móti Vestra.
Mynd: Lengjudeildin
5. umferð Lengjudeildar karla lýkur í dag. Föstudagur 22. maí Afturelding 4-3 Þróttur ÍR 3-1 HK Leiknir 0-0 Grindavík Laugardagur 23. maí Grótta - Vestri 14:00 Njarðvík - Ægir 14:00 Völsungur - Fylkir 14:00
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.