Fotbolti.net
@fotboltinetSigurjón Árni Torfason
Njarðvík
Njarðvík
Lengjudeild karla
JBÓ völlurinn
0 - 0
Ægir
Ægir
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Markalaust jafntefli, í rokinu í Njarðvík

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið gátu tekið öll 3 stigin með sér. Njarðvík voru heilt yfir sterkari aðilinn sérstaklega í fyrri hálfleik. Ægir hefðu samt heldur betur geta stolið þessu Jordan Adeyemo, fékk tækifæri þegar hann var sloppinn í gegn en Guy Smith, varði vel frá honum. Svo þegar Kristinn Ásgeir, átt skot í þverslánna og svo þegar Atli Rafn, átti skalla í þverslánna. Njarðvík fengu svo fullt af sénsum til að klára þetta.

Bestu leikmenn

1. Freysteinn Ingi Guðnason

Fannst Freysteinn, mjög góður í þessum leik reyndi að skapa mikið í erfiðum aðstæðum. Efnilegur strákur.

2. Kristinn Ásgeir Þorbergsson

Kristinn, fannst mér koma sér vel frá þessum leik átti eitt sláar skot og skapaði hættur í þessu fáu skipti sem ægir ógnuðu marki Njarðvíkur.

Atvikið

Ég ætla setja það á bara þegar Njarðvík þjörmuðu á Ægi síðustu mínúturnar og áttu alltaf að klára leikinn þar.

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða að Ægir er komið með sitt fyrsta stig á töfluna og spurning hvort það geri eitthvað fyrir þá í framhaldinu? En núna er Njarðvík komið í 10 sætið og hafa byrjað þetta tímabil afskaplega illa.

Vondur dagur

Verð að gefa því miður Gumma Magg, þetta átti erfitt uppdráttar ekki mikið af boltum fyrir hann og var bara í basli með vörn Ægis.

Dómarinn - 8

Fannst Jóhann Ingi dæma þennan leik mjög vel Njarðvík vildu víti ég sá ekkert að því. Svo þegar Halldór Geir Heiðarsson, aðstoðarþjálfari fékk rautt ég bara get ekki dæmt um það veit ekki hvað gerðist.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.