SKÝRSLAN: Fylkir á toppinn með sigri á Húsavík
Hvað réði úrslitum?
Vítaspyrnan sem Fylkir skoraði úr. Það gerðist afar lítið í leiknum og 0-0 jafntefli hefði sennilega verið bara nokkuð sanngjörn niðurstaða.
Bestu leikmenn
1. Orri Sveinn Segatta
Það sköruðu voðalega fáir fram úr í dag en fyrirliði Fylkis var rocksolid og steig ekki feilspor í vörninni.
2. Bjarki Fannar Helgason
Þrátt fyrir að hafa klúðrað besta færi heimamanni þá var hann lang líflegastur þeirra og þegar eitthvað var nálægt því að gerast átti hann þátt í því.
Atvikið
Vítaspyrnudómurinn. Mér fannst þetta alls ekki vera víti og eflaust eru flestir húsvíkingar sammála mér þar. Fylkismönnum fannst flestum þetta hins vegar vera víti.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkismenn tilla sér á topp deildarinnar með 12 stig eftir 5 leiki. Völsungur er enn án sigurs með 2 stig í 11. sæti.
Vondur dagur
Þetta var vondur dagur fyrir okkur áhorfendur sem vilja horfa á líflegan og skemmtilegan fótbolta og sjá mikið af mörkum. Þetta var svona með daufari leikjum sem maður hefur séð.
Dómarinn - 4
Þetta var frekar auðveldur leikur að dæma því það gerðist lítið og ekki mikill hasar eða harka. En hins vegar tók hann eina stóra ákvörðun sem var sennilega röng og hún réði úrslitum.


