SKÝRSLAN: Frábær skemmtun á Vivaldi vellinum
Hvað réði úrslitum?
Sterkur karakter Gróttumanna skilaði þessum þremur punktum. Allt momentumið var með Vestra en Grótta svaraði því með tveimur mörkum. Mjög sterkur sigur.
Bestu leikmenn
1. Mattías Kjeld
Mattías var allur í öllu, skoraði tvennu og kom sér og liðinu oft í mjög góðar stöður. Aldrei spurning um mann leiksins.
2. Guðmundur Rafn Ingason
Það verður að gefa honum kredit fyrir þennan leik. Mjög pottþéttur þrátt fyrir 3 mörk á sig, hann gat lítið gert í þeim. Gerði góðar vörslur og steig upp þegar þörf var á honum.
Atvikið
Mark Thibang Phete opnaði þennan leik og gerði hann að góðri skemmtun. Þetta urðu 4 mörk á 12 mínútum.
Hvað þýða úrslitin?
Grótta lyftir sé frá fallsvæðinu og nálgast pakkann. Vestri nær ekki að koma sér upp við hlið efstu liða. Pakkinn þéttist í Lengjudeildinni.
Vondur dagur
Vörn Vestra. Að fá á sig 5 mörk er aldrei gott merki. Þeir stigu upp of hátt í stöðunni 3-3 þegar allt leit út fyrir að Vestri væri að fara að stela þessu. Þá var allt opið og Grótta nýtti sér það.
Dómarinn - 6
Ekkert mikið að setja á dómarann þó að hann hefði mátt spjalda fyrir tímasóun fannst mér. Vestri vildi víti í síðari hálfleik en ekki var dæmt, get ekki sagt til um hvort það hafi verið rétt eða ekki. Fínt dæmdur leikur.



