Leik lokið!
Váááááá
93. mín
Gummi Kri með svakalegan sprett í 93 mín, þegar Már og Atli ætla í skyndisókn.
92. mín
Ægir Jarl með háa sendingu inn í teig en sendingin er yfir markið.
90. mín
Dauðafæri
Þorri með sendingu inn í teig á Bjarka sem nær boltanum og er alveg komin við stöngina en skotið er lélegt og beint á Viktor.
Þarna var tækifærið!
Þarna var tækifærið!
90. mín
+4 mín, ekki að flækja þetta.
89. mín
11 skot hjá Stjörnunni og Fram með 13.
Mér líður eins og Fram er búin að vera með töluvert fleiri skot.
Mér líður eins og Fram er búin að vera með töluvert fleiri skot.
87. mín
Virtist soft við fyrstu sýn en þegar kveikt er á sjónvarpinu þá var þetta klárt rautt, reynir ekki við boltann.
Rautt spjald
Bjarki Hauksson
Bjarki sparkar aftan í Atla þegar hann er að breika í skyndisókn, dómarinn segir beint rautt.Virtist soft við fyrstu sýn en þegar kveikt er á sjónvarpinu þá var þetta klárt rautt, reynir ekki við boltann.
85. mín
Gult spjald
Freyr Sigurðsson
85. mín
Már Ægisson skellur í Sindra.
Sindri fer niður á jörðina, en stígur fljótt upp aftur.
Sindri fer niður á jörðina, en stígur fljótt upp aftur.
85. mín
Lítið svo sem að gerast, báðir þjálfarar með skiptingar.
84. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtFrederico Bello Saraiva
Vá hvað Fred er búin að vera góður í dag.
82. mín
InnMár Ægisson
ÚtRóbert Hauksson
82. mín
InnBenjamín Björnsson
ÚtDamil Serena Dankerlui
80. mín
Gult spjald
Israel Garcia Moreno
79. mín
Örvar rífur í treyjuna hjá Fred sem missti boltann fyrir brotið segir dómarinn, heppin að fá ekki gult þarna.
76. mín
Þorri með skalla úr horni sem fer yfir markið.
75. mín
Það er nóg að gera. Sjáum til hvernig Stjarnan svarar en þetta er búið að vera mikið þrot hjá þeim.
72. mín
InnIsrael Garcia Moreno
ÚtJakob Byström
72. mín
InnAtli Þór Jónasson
ÚtKyle Douglas Mc Lagan
71. mín
Gult spjald
Jökull I Elísabetarson
Jölli, þjálfari Stjörnunnar fær gult fyrir að kvarta yfir markinu.71. mín
Freyr pikkar boltann upp á miðsvæðinu og kemst framhjá Birni og Örvari og er alveg einn á hægri kantinum.
Rennur svo boltanum framhjá markinu og á Róbert sem er alveg einn og potar honum inn
MAAAARK!
Róbert Hauksson (stoðsending: Freyr Sigurðsson)
Það hlaut að koma, þeir eiga þetta skilið.Freyr pikkar boltann upp á miðsvæðinu og kemst framhjá Birni og Örvari og er alveg einn á hægri kantinum.
Rennur svo boltanum framhjá markinu og á Róbert sem er alveg einn og potar honum inn
70. mín
InnBjarki Hauksson
ÚtHaukur Örn Brink
70. mín
InnBjarki Hrafn Garðarsson
ÚtAndri Rúnar Bjarnason
70. mín
Andri Rúnar tekinn niður í teignum af tveimur Fram leikmönnum, dómarinn segir nei við víti.
69. mín
Kennie kemur með háa fyrirgjöf inn í teig en Fred rétt missir af honum, boltinn dettur svo á Frey sem lætur vaða nema beint í Fred, óvart auðvitað.
68. mín
Kennie kemur með boltann inn í teiginn en það er enginn Framari til þess að pota honum inn.
67. mín
Gult spjald
Haukur Örn Brink
65. mín
Kennie með skot í hliðarnetið.
65. mín
InnÞorri Mar Þórisson
ÚtDaníel Finns Matthíasson
64. mín
Dauðafæri
Róbert aftur.
Árni sendir á McLagan klaufalega sem sendir Róbert einn á móti Árna, Róbert skýtur svo á markið en Árni ver og boltinn fer rétt framhjá.
Árni sendir á McLagan klaufalega sem sendir Róbert einn á móti Árna, Róbert skýtur svo á markið en Árni ver og boltinn fer rétt framhjá.
62. mín
Kennie með háan á Róbert Hauks sem er galopin og einn í teignum, flottur skalli en beint á Árna sem ver fyrir horn.
Hornið fer svo ekki neitt.
Hornið fer svo ekki neitt.
61. mín
Mark dæmt af
Fred keyrir inn í teiginn og kemst framhjá Gumma, Fred endar svo að missa boltann og tæklar Jóhann Árna sem fer niður og boltinn fer svo á Róbert sem skorar en dómarinn dæmir brot á Fred.
59. mín
Gult spjald
Haraldur Einar Ásgrímsson
57. mín
Jóhann Árni með skot frá aukaspyrnu rétt fyrir utan D bogann, skotið er að fara læðast inn í neðra vinstra hornið en Viktor ver framhjá.
56. mín
Sigurjón fær tiltal fyrir að rífa í Andra.
55. mín
Fred með horn, boltinn fer beint á Sigurjón sem skallar yfir.
54. mín
Dauaðfæri
Dankerlui kemst framhjá vörn Fram og er komin við endalínuna.
Dankerlui kemur svo boltanum fram fyrir markið á Andra sem reynir hælskotið með galopið markið en Sigurjón nær að blokka boltann og Viktor tekur boltann upp.
Dankerlui kemur svo boltanum fram fyrir markið á Andra sem reynir hælskotið með galopið markið en Sigurjón nær að blokka boltann og Viktor tekur boltann upp.
52. mín
Haukur Brink fær boltann við D bogann og er að leika listir við vörn Fram, en Fram nær svo að stoppa hann og koma boltanum burt.
50. mín
Örvar kemur með háa sendingu inn í teig, sendingin er skölluð burt en boltinn dettur á Danna Finns sem tekur volley en yfir markið.
48. mín
Gult spjald
Daníel Finns Matthíasson
47. mín
Danni Finns kemur með háan inn í teiginn sem Viktor grípur.
47. mín
Byrjar hægt. Bæði lið mjög róleg.
46. mín
Ég vil MARK!
46. mín
Seinni hálfleikur
Stjörnumenn byrja.
45. mín
Sjáumst eftir korter. Ég var að vona eftir meiri markaleik.
45. mín
Birnir á vinstri kantinum kemur með sendingu inn í teig, boltinn er að skoppa inn í teignum og Stjarnan nær ekki að nýta sér færið og að skjóta á markið.
45. mín
+1
Dómarinn er ekki að flækja þetta.
Dómarinn er ekki að flækja þetta.
42. mín
Haukur Brink keyrir inn í teig Fram. Kemur svo með sendingu fyrir markið en Viktor lemur hann burt.
Boltinn dettur svo á Danna Finns sem lætur vaða langt frá, en boltinn fer langt langt framhjá.
Boltinn dettur svo á Danna Finns sem lætur vaða langt frá, en boltinn fer langt langt framhjá.
38. mín
Algjör ping pong bolti núna þar sem bæði lið eru að missa boltann til hvorn annan aftur og aftur.
Róbert Hauks í fínu færi en missir boltann þegar hann komst í boxið.
Róbert Hauks í fínu færi en missir boltann þegar hann komst í boxið.
37. mín
Danni Finns að keyra á vörn Fram, sendir svo á Birni sem missir boltann.
35. mín
Hár bolti á Róbert sem nær boltanum og lætur vaða en skotið fór í varnarmann og fyrir horn.
Hornið fer beint á D bogan þar sem Freyr er, Freyr tekur svo skotið sem fer yfir markið.
Hornið fer beint á D bogan þar sem Freyr er, Freyr tekur svo skotið sem fer yfir markið.
34. mín
Jóhann Árni með sendingu inn í teiginn, Viktor lemur hann burt en endar á Þorra sem fór niður en stóð upp svo fljótt aftur.
31. mín
Fred sendir Róbert Hauks í gegn.
Róbert með pressu frá Sindra nær samt að skjóta en Árni ver.
Róbert með pressu frá Sindra nær samt að skjóta en Árni ver.
29. mín
Byström kemur með háa sendingu inn í teigin sem er svo skölluð af Gumma.
Boltinn fer svo á Sigurjón sem lætur vaða en skotið fór framhjá.
Boltinn fer svo á Sigurjón sem lætur vaða en skotið fór framhjá.
25. mín
Haukur Brink að komast í skyndisókn en Þorri stoppar hann.
24. mín
Boltinn er að skoppa inn í teig Stjörnunnar.
Byström ætlar að taka hjólhestaspyrnu en missir af boltanum og endar á að sparka í Gumma sem kippir sér ekki við það.
Byström ætlar að taka hjólhestaspyrnu en missir af boltanum og endar á að sparka í Gumma sem kippir sér ekki við það.
22. mín
Dauðafæri
Freyr á hægri kantinum kemur með sendingu inn í teig á Byström sem rétt missir af boltanum.
22. mín
McLagan keyrir upp hægri kantinn og kemur með háa sendingu beint á Kennie inn í teig, sem skallar á markið en Árni ver þægilega.
21. mín
Haraldur tekur aukaspyrnuna, beint á hausinn hans Þorra sem skallar yfir.
20. mín
Fred er að leika sér inn á vellinum, ótrúlegur leikmaður. Danni Finns hrindir svo honum niður og Framarar fá auka nálægt teignum.
17. mín
Rétt framhjá
Stjarnan að fá færi hérna.
Andri fær boltann og sendir á Dankerlui sem keyrir inn í teig og lætur vaða. Skotið fór rétt framhjá stönginni.
Andri fær boltann og sendir á Dankerlui sem keyrir inn í teig og lætur vaða. Skotið fór rétt framhjá stönginni.
15. mín
15 mínútna skýrslan
Þetta er mikið þrot hjá Stjörnunni, Framarar eru búnir að vera miklu betri.
14. mín
Fred kemur með boltann inn í teiginn, hann fer á Róbert sem nær ekki skotinu og er blokkaður af Sindra.
12. mín
Fram fær aukaspyrnu sem Haraldur tekur stutt, sendir svo á Fred sem kemur boltann inn í teiginn sem Gummi sparkar burt.
9. mín
Danni Finns er að spila mjög ofarlega á vellinum og Dankerlui líka þegar Stjarnan fer í sókn.
8. mín
Færi aftur
Örvar keyrir upp vinstri kantinn, sendingin er blokkuð af varnarmanni.
Boltinn dettur svo á Birni sem dansar inn í teignum og skýtur svo rétt framhjá markinu.
Boltinn dettur svo á Birni sem dansar inn í teignum og skýtur svo rétt framhjá markinu.
7. mín
Færi!
Stjarnan missir boltann klaufalega, Kennie fær boltann og sendir á Fred sem er hjá D boganum, Fred tekur skotið yfir markið.
5. mín
Andri Rúnar reynir skotið frá miðjunni en Viktor var í teignum, Andri skýtur samt framhjá.
4. mín
Framarar taka hornið stutt.
Haraldur kemur með sendinguna inn í teiginn og Þorri skýtur yfir.
Haraldur kemur með sendinguna inn í teiginn og Þorri skýtur yfir.
4. mín
Kennie komin á miðsvæðið og reynir skot langt frá.
Skotið er í bakið hjá Sindra og fyrir horn.
Skotið er í bakið hjá Sindra og fyrir horn.
3. mín
Gummi Kri sendir langa úr vörninni á Ægi Jarl sem setur Róbert í gegn, en Sindri nær að pressa hann við endalínuna og gefur boltann til baka.
Róbert að sýna hraðann sinn.
Róbert að sýna hraðann sinn.
1. mín
Andri Rúnar fær boltann við teiginn og setur hann svo á Birni sem endar svo á því að missa boltann.
1. mín
Fred byrjar þetta með skot á markið.
Fær boltann á kassan og tekur svo volley, en skotið er beint á Árna sem er þægilegur með þennan.
Fær boltann á kassan og tekur svo volley, en skotið er beint á Árna sem er þægilegur með þennan.
1. mín
Framarar byrja.
Fyrir leik
5 min í leik
Spennar er í hámarki, persónulega segi ég markaleikur og 3-2 Stjarnan. En það er aldrei að vita hvernig þessi leikur fer.
Andri Rúnar með eitt það segi ég.
Andri Rúnar með eitt það segi ég.
Fyrir leik
Stjarnan yfir 2 mörk hefur ekki verið að tapast hingað til á heimavelli, er á stuðlinum 2,17 á Epic.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) May 22, 2026
Fyrir leik
Hvernig Stjarnan spilar
Jökull er með áhugaverða breytingar í dag og það virðist vera að hann ætli að spila þetta svona, getur gerst að Danni Finns verði djúpur eða verður í vörninni og þá fimm manna.
Árni
Danerklui - Gummi Kri - Sindri - Örvar Logi
Jóhann Árni - Guðmundur - Danni Finns
Birnir Snær - Andri Rúnar - Haukur Brink
Árni
Danerklui - Gummi Kri - Sindri - Örvar Logi
Jóhann Árni - Guðmundur - Danni Finns
Birnir Snær - Andri Rúnar - Haukur Brink
Fyrir leik
Hvernig Fram spilar
Miðað við hvernig Rúnar teflar þessu í kvöld, þá myndi ég giska að Fram sé að spila svona.
Viktor
Chopart - Þorri - McLagan - Sigurjón - Haraldur
Fred - Ægir Jarl - Freyr
Byström - Róbert Hauks
Viktor
Chopart - Þorri - McLagan - Sigurjón - Haraldur
Fred - Ægir Jarl - Freyr
Byström - Róbert Hauks
Fyrir leik
Birnir snær aftur orðinn nr 11
Eftir að hafa verið skráður með númerið 14 í síðasta leik gegn Keflavík virðist Birnir Snær vera kominn með númerið 11 aftur.
Fyrir leik
Byrjunarliðið eru komin í hús
Jökull gerir tvær breytingar hjá Stjörnunni. Haukur Örn Brink og Damil Dankerlui koma inn í byrjunarliðið. Emil Atla og Örvar Eggerts eru ekki í hóp, en þeir byrjuðu síðasta leik.
Rúnar Kristinsson gerir fjórar breytingar hjá Fram. Mclagan, Róbert Hauksson, Jakob Byström og Freyr Sigurðsson byrja leikinn. Atli Þór og Már Ægisson fara á bekkinn eftir að hafa byrjað síðasta leik. Tibbling og Vuk Dimitrijevic ekki í hóp.

Dómarakvartett
Þórður Þorsteinsson Þórðarson verður með flautuna, Patrik Freyr Guðmundsson og Guðmundur Ingi Bjarnason verða með flöggin. Hreinn Magnússon verður með skiltið.

Fyrir leik
Svekkjandi árangur Stjörnunnar í deildinni
Stjarnan hefur ekki unnið leik síðan 17. apríl, það var gegn FH á Samsungvellinum. Eftir síðasta leik var Jökull, þjálfari Stjörnunnar spurður um hvort að hann hafi áhyggjur af þessu.
„Það er ekki gott að fá eitt stig í fimm leikjum. Það er aðallega bara svekkjandi. Við erum búnir að vinna okkur inn fyrir meiru en það. Skagaleikurinn var lélegur og þessi var 50/50. Að öðru leyti höfum við spilað vel. Við þurfum að jafna okkur og gera okkur klár í næsta."

Framarar fyrstir til þess að taka stig af KR
Fyrir leik
Eftir bikar sigur gegn KR, gerði Stjarnan jafntefli í Keflavík
Fyrir leik
Besta Deildin kallar
Velkomin á Samsungvöllinn í Garðabæ. Stjarnan fær Fram í heimsókn í áttundu umferð Bestu Deildarinnar.

Dagurinn í dag.
föstudagur 22. maí
18:00 KA-Valur (Greifavöllurinn)
18:00 Keflavík-Þór (HS Orku völlurinn)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Fram (Samsungvöllurinn)
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)

Dagurinn í dag.
föstudagur 22. maí
18:00 KA-Valur (Greifavöllurinn)
18:00 Keflavík-Þór (HS Orku völlurinn)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Fram (Samsungvöllurinn)
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)

Pressa á Jölla? Hver veit.
Viðtöl á leiðinni.