SKÝRSLAN: Tvenna Orra sendi ÍR-inga í 5. sætið
Hvað réði úrslitum?
ÍR-ingar komu bara ákveðnari út í síðari hálfleikinn og gengu á lagið eftir fyrsta markið.
Bestu leikmenn
1. Orri Bjarkason
Skoraði tvö góð mörk í kvöld og var heilt yfir mjög sprækur. Virkilega gott kvöld hjá unga manninum
2. Bergvin Fannar Helgason
Var mjög ógnandi allan leikinn og var nálægt því að skora. Gaf góða stoðsendingu í þriðja marki ÍR
Atvikið
Fyrsta markið brýtur ísinn í þessum leik. Liðin höfðu verið stál í stál fram að því en eftir markið ná ÍR-ingar aðeins tökum á leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða einfaldlega það að ÍR-ingar hoppa upp í 5. sæti deildarinnar og HK-ingar fara niður í 4. sætið þar til umferðin klárast á morgun.
Vondur dagur
Enginn einn átti mjög slakan dag en hægt er að setja bara liðsheild HK-inga hér. Komu svolítið á hælunum út í síðari hálfleikinn og því fór sem fór.
Dómarinn - 7
Fín frammistaða hjá dómaratríóinu í dag. Hefði mögulega mátt gefa HK víti þegar Jóhann féll í teignum snemma í síðari hálfleik en það er erfitt fyrir mig að fullyrða nokkuð með mitt sjónarhorn.


