SKÝRSLAN: Vaxvængir KR bráðnuðu í Kópavogi
Hvað réði úrslitum?
Blikar byrjuðu leikinn frábærlega og leiddu eftir rúma mínútu. Þó svo að KR-ingar höfðu haldið betur í boltann þá fannst manni Vesturbæingar sjaldan komast í takt. Upplegg Blika gekk fullkomlega upp, maður á mann pressan og sóttu vel upp kantana. Þá nýttu þeir sér mistök KR-inga, sem voru allt of mörg, og refsuðu þeim trekk í trekk. KR-ingar voru einfaldlega vanstilltir og minntu mun meira á KR-liðið frá 2025 en það lið sem hefur sést á þessu tímabili.
Bestu leikmenn
1. Anton Logi Lúðvíksson
Eitt mark og tvær stoðsendingar, einfaldlega frábær í dag. Frábær tíðindi fyrir Blika að hann sé að hrökkva í gang og heill heilsu.
2. Kristófer Ingi Kristinsson
Tvö mörk frá Kristófer í dag og hefði eflaust átt að fá vítaspyrnu. Nú kominn með sex mörk í deildinni.
Atvikið
Óskar Hrafn vitnaði í söguna af Daedalus og Íkarus, eina þekktustu sögu í grískri goðafræði, í viðtali eftir leik. Sagan fjallar um Deadalus sem smíðaði vaxvængi til að flýja úr prísund á Krít. Deadalus varaði son sinn, Íkarus, við að fljúga ekki of hátt eða of lágt þar sem hann færi of hátt myndi sólin bræða vaxið, en ef hann færi of lágt gæti sjórinn bleytt fjaðrirnar og yrðu þá of þungar. Íkarus fór þó ekki af ráðum föður síns og flaug of nálægt sólinni svo hún bræddi vaxið og hrapaði hann til bana í hafið, sem var síðar nefnt Íkaríuhaf (e. Icarian sea). Spurning hvort að vaxvængir KR-inga hafi farið of nálægt sólinni í upphafi móts?
Hvað þýða úrslitin?
Fyrsta tap KR í deild og þeir tapa með stæl. Vesturbæingar eru þó enn í 2. sæti, nú þremur stigum fyrir aftan Víkinga. Breiðablik er í fjórða sæti með jafn mörg stig og Valur en betri markatölu.
Vondur dagur
Hvar á maður að byrja? Auðvitað fær allt KR liðið þetta án bolta. Þeir sem voru hvað slakastir voru þó Michael Akoto og Finnur Tómas, báðir þokkalega vanstilltir í vörninni. Auk þess var þetta lang slakasti leikur Arnórs Ingva í treyju KR
Dómarinn - 6
Þó að dómgæslan hafi ekki skipt sköpum í leiknum var sumt sem stakk í augað. Sigurður Hjörtur leyfði leiknum að fljóta, sem ég er mjög hrifinn af, en hann gekk mögulega fulllangt og sleppti nokkrum augljósum brotum. Í stöðunni 6-2 féll Kristófer Ingi við í teignum og við fyrstu sín var það augljós vítaspyrna en ekkert dæmdi Sigurður. Spurning hvort a hann var að hlífa KR-ingum.




