Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Stjarnan
Stjarnan
Besta karla
Samsungvöllurinn
0 - 1
Fram
Fram
0 - 171' Róbert Hauksson
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson

SKÝRSLAN: Þrot í Garðabæ

Hvað réði úrslitum?

Framarar voru betri, þegar er litið yfir öll færin þá voru Framarar að skapa sér betri færi. Þetta var tímaspurs mál hvenær Framarar mundu skora, sem þeir gerðu á endanum. Frekar klaufalegt hjá Stjörnunni að fá svona mark á sig. Shout out á Gumma Kri að taka sprettinn á 90 mín, það var ótrúlegt.

Bestu leikmenn

1. Freyr Sigurðsson

Með stoðsendingu og var með alvöru impact á vellinum. Var með mikla orku allan leik og spilaði 90 mín.

2. Fred Saraiva

Það er alltaf skemmtilegt að sjá Fred spila og hann var að leika á vörn Stjörnunnar, þeir áttu erfitt með hann.

Atvikið

Það er þegar Róbert Hauks brýtur ísinn, er alveg galopin þegar Freyr rennur boltanum á hann fyrir framan markið. Framarar áttu þennan leik skilið, alveg hundrað prósent.

Hvað þýða úrslitin?

Fram eru í þriðja sæti með 17 stig en Stjarnan er í níunda sæti með 7 stig, síðustu sex leikir hjá Stjörnunni hafa þeir bara safnað einu stigi og var það gegn Keflavík. Það gerist ekkert auðveldara næst fyrir bæði lið, Stjarnan tekur á móti Víkingi á þriðjudaginn og næsta föstudag fær Fram, Breiðablik í heimsókn.

Vondur dagur

Auðvelt að segja að Bjarki Hauksson er skúrkurinn og hausinn fór þegar hann fékk rauða spjaldið. En Birnir Snær og Haukur Brink áttu verri dag, þeir gerðu sára lítið og voru mjög lítið að ógna. Danni Finns spilaði ofarlega í dag eftir að hafa spilað mikið í vörninni, hann gerði frekar lítið og missti oft á tíðum boltann. Framarar sigldu þessu svo þægilega heim.

Dómarinn - 8

Góð vakt í dag, rétt að gefa Bjarka rautt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.