Leik lokið!
Þá er þessari skemmtun lokið
92. mín
InnÞór Andersen Willumsson
ÚtAron Bjarnason
92. mín
InnBjartur Orri Jónsson
ÚtViktor Karl Einarsson
90. mín
Þremur mínútum bætt við
89. mín
InnGaldur Guðmundsson
ÚtSigurður Breki Kárason
88. mín
Sigurður Breki var enn inni á vellinum og hefði getað fullkomnað þrennuna hefði hann farið á punktinn.
Amin skorar!
Amin Cosic
Anton í boltanum en inn fer hann!Sigurður Breki var enn inni á vellinum og hefði getað fullkomnað þrennuna hefði hann farið á punktinn.
88. mín
KR-ingar fá víti!
Boltinn fer í hendina á Ívari Erni.
83. mín
Gabríel Hrannar slær greinilega í andlitið á Ágústi Orra en ekkert dæmir Sigurður Hjörtur.
Ágúst liggur síðan eftir og Sigurður Hjörtur skipar Ágústi að bíða í mínútu fyrir utan völlinn þó að hann hafi ekki fengið aðhlynningu. Væntanlega vegna þess að það voru um væg höfuðmeiðsli að ræða.
Ágúst liggur síðan eftir og Sigurður Hjörtur skipar Ágústi að bíða í mínútu fyrir utan völlinn þó að hann hafi ekki fengið aðhlynningu. Væntanlega vegna þess að það voru um væg höfuðmeiðsli að ræða.
81. mín
Nokkuð skrítin orka yfir þessum leik eftir 6-2 markið, bæði lið temmilega kærulaus.
80. mín
Amin með skemmtilega takta og gefur fyrir en Blikar ná að hreinsa.
78. mín
InnArnór Gauti Jónsson
ÚtAnton Logi Lúðvíksson
78. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtKristófer Ingi Kristinsson
76. mín
Blikar vilja víti
Kristófer Ingi fellur við í teignum. Leit út fyrir að hafa verið púra víti. Mögulega er Sigurður Hjörtur að hlífa KR-ingum.
76. mín
Amin með skot framhjá marki Blika.
74. mín
Stuðningsmenn KR byrjaðir að syngja: „Áfram HK“ og ná að æsa í stuðningsmönnum Breiðabliks.
HK-ingar eru þó að tapa 1-0 gegn ÍR þessa stundina.
HK-ingar eru þó að tapa 1-0 gegn ÍR þessa stundina.
72. mín
InnGuðmundur Andri Tryggvason
ÚtLuke Morgan Conrad Rae
72. mín
InnAlexander Rafn Pálmason
ÚtAron Sigurðarson
71. mín
Aron með skot rétt framhjá marki Blika.
70. mín
Sjálfum sér verstir
Finnur Tómas rúllar bara boltanum á Aron Bjarna sem fer illa með gott færi. KR-ingar einfaldlega sjálfum sér verstir.
69. mín
Taktar!
Ágúst Orri með frábæra takta úti á hægri vængnum, kemur boltanum fyrir á Viktor Karl sem skýtur yfir úr frábæru færi.
68. mín
Lúmskt var það!
Aron Sig með mjög svo lúmska marktilraun sem Anton Ari ver vel í hornspyrnu.
65. mín
Blikar ógna
Davíð Ingvars með skemmtilega takta og á skot sem fer af varnarmanni og rétt framhjá marki KR.
64. mín
Ágúst Orri með skemmtilegan snúning og sendingu fyrir mark KR-inga en enginn Bliki mættur til að pota boltanum í netið.
62. mín
KR-ingar fá aukaspyrnu á milli hliðarlínu og vítateigs. Aron Sig lætur vaða á nærsvæðið en Bliki skallar frá.
59. mín
Orri Hrafn með skot sem fer rétt framhjá marki Blika.
59. mín
Amin Cosic keyrir á vörn Blika, með flöktandi sárabindi vafið um höfuðið, lætur vaða en boltinn af varnarmanni og í lúkurnar á Antoni Ara.
57. mín
InnBirgir Steinn Styrmisson
ÚtArnór Ingvi Traustason
Óskar gerir tvöfalda breytingu
57. mín
InnHjalti Sigurðsson
ÚtMichael Osei Akoto
56. mín
Gult spjald
Davíð Ingvarsson
54. mín
KR-ingar að vesenast með boltann í öftustu línu og missa hann. Anton Logi finnur strax Kristófer sem klárar frábærlega!
KRISTÓFER AÐ KLÁRA ÞETTA!
Kristófer Ingi Kristinsson (stoðsending: Anton Logi Lúðvíksson)
Varnarleikur KR-inga verið ægilegur!KR-ingar að vesenast með boltann í öftustu línu og missa hann. Anton Logi finnur strax Kristófer sem klárar frábærlega!
52. mín
Gult spjald
Michael Osei Akoto
Akoto brýtur á Kristófer Inga og fær réttilega gult.50. mín
Gult spjald
Amin Cosic
50. mín
KR-ingar ekki mætt út í þennan síðari hálfleik. Ég er á vellinum en sé ekki vörnina.
49. mín
SAMSKEYTIN!
Aron Bjarna sleppur einn í gegn og setur boltann í samskeytin og út!
48. mín
'
Anton Logi með boltann í utarlega í teignum og gefur hælsendingu á Ívar Örn sem hittir boltann stórfurðulega en í netið fór hann!
KIXAÐI HANN INN!
Ívar Örn Árnason (stoðsending: Anton Logi Lúðvíksson)
Þvílík stoðsending!'
Anton Logi með boltann í utarlega í teignum og gefur hælsendingu á Ívar Örn sem hittir boltann stórfurðulega en í netið fór hann!
47. mín

Myndir frá Hafliða

47. mín
Aron Bjarna sleppur í gegn, kominn í góða stöðu í teignum en Finnur Tómas kemur þá á harðaspretti og hreinsar í hornspyrnu.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
KR-ingar sparka þessu af stað.
Bæði lið óbreytt en Amin Cosic er kominn með góðan vafning um höfuðið.
Bæði lið óbreytt en Amin Cosic er kominn með góðan vafning um höfuðið.
45. mín
Tveir lögregluþjónar mættir í stúkuna í hálfleik. Annar þeirra gefur einum stuðningsmanni KR gott faðmlag.

45. mín
Hálfleikstölfræði
Tölfræðimolar í boði Opta.
Breiðablik 4-2 KR
37.1% - Með bolta - 62.9%
1.94 - Xg - 1.4
8 - Skot - 7
6 - Skot á mark - 2
17 - Snertingar í teig - 10
Breiðablik 4-2 KR
37.1% - Með bolta - 62.9%
1.94 - Xg - 1.4
8 - Skot - 7
6 - Skot á mark - 2
17 - Snertingar í teig - 10
45. mín
Svona á fótbolti að vera!
Sigurður Hjörtur flautar til hálfleiks. Stórskemmtilegur fyrri hálfleikur að baki.
KR-ingar hafa haft takmarkaðan áhuga á varnarleik en góðu fréttirnar fyrir Vesturbæinga eru þær að þeir hafa mikinn áhuga á sóknarleik.
Blikar mæta KR-ingum maður á mann og hafa refsað þeim vel. Blikar verið með yfirhöndina og leiða sanngjarnt.

+3
Kristófer Ingi sleppur í gegn en réttilega flaggaður rangstæður.
Kristófer Ingi sleppur í gegn en réttilega flaggaður rangstæður.
45. mín
+2
Óli Valur keyrir á Aron Sig, sker á vinstri fótinn og lætur vaða en tilraun hans fer yfir mark gestanna.
Óli Valur keyrir á Aron Sig, sker á vinstri fótinn og lætur vaða en tilraun hans fer yfir mark gestanna.
45. mín
Fjórum mínútum bætt við!
Ég og eflaust allir áhorfendur fögnum því.
45. mín
Amin og Höskuldur skullu saman og fá þeir báðir aðhlynningu. Liðin leika tíu á tíu næstu mínútuna.
42. mín
Anton Ari gefur beint á Sigurð Breka sem keyrir í átt að marki Blika og rennir honum þægilega framhjá Antoni!
Engu að síður vel klárað hjá Sigurði, lét það ekkert trufla sig að hafa nægan tíma.
ÞETTA VAR GJÖF!
Sigurður Breki Kárason
Við erum með leik!Anton Ari gefur beint á Sigurð Breka sem keyrir í átt að marki Blika og rennir honum þægilega framhjá Antoni!
Engu að síður vel klárað hjá Sigurði, lét það ekkert trufla sig að hafa nægan tíma.
38. mín
Halldór Snær búinn að vera með boltann í sirka hálfa mínútu að fikra sig framar og framar á völlinn. Hann er nánast kominn að miðlínu. Greinilegt að Blikar vilja ekki pressa hann.
37. mín
InnHöskuldur Gunnlaugsson
ÚtAndri Rafn Yeoman
Höskuldur kemur inn
Andri eitthvað meiddur.
33. mín
Óli Valur með fyrirgjöf á Davíð sem Halldór Snær ver í þverslána. Boltinn berst þó aftur á Davíð sem setur boltann í autt netið af stuttu færi.
Blikar að fara langt með það að klára þetta. Ef það er eitt lið sem getur þó komið til baka þremur mörkum undir þá er það KR.
ERU BLIKAR AÐ GANGA FRÁ KR-INGUM?
Davíð Ingvarsson
Ja hérna hér!Óli Valur með fyrirgjöf á Davíð sem Halldór Snær ver í þverslána. Boltinn berst þó aftur á Davíð sem setur boltann í autt netið af stuttu færi.
Blikar að fara langt með það að klára þetta. Ef það er eitt lið sem getur þó komið til baka þremur mörkum undir þá er það KR.
32. mín
Arnór Ingvi leggst niður og þarf að fá aðhlynningu.
30. mín
KR-ingar leika sér að eldinum
Aron Sig með stórhættulega sendingu inn á miðju sem aftasti maður. Anton Logi kemst inn í sendinguna og reynir að þræða Kristófer Inga í gegn en sem betur fer fyrir KR-inga gengur það ekki upp.
27. mín
Aron Bjarna með boltann við endalínu, lyftir honum á pönnuna á Ágústi sem stýrir honum snyrtilega í fjærhornið.
Ágúst tekur síðan skemmtilegt og stórskrítið fagn.
Markaveisla!
Ágúst Orri Þorsteinsson (stoðsending: Aron Bjarnason )
Ágúst bætir þriðja marki Blika við!Aron Bjarna með boltann við endalínu, lyftir honum á pönnuna á Ágústi sem stýrir honum snyrtilega í fjærhornið.
Ágúst tekur síðan skemmtilegt og stórskrítið fagn.
25. mín
Ívar Örn stekkur aftur inn á. Veit ekki hvað hann var að brasa, skipta um sokka eða eitthvað álíka. Fór í hið minnsta úr skónum.
24. mín
Ívar Örn að fá aðhlynningu, Blikar manni færri næstu mínútuna.
23. mín
Halldór Snær leikur sér að eldinum. Tekur boltann upp á vítateislínunni.
21. mín
KR-ingar ógna!
Luke Rae í góðri stöðu og lætur vaða en boltinn rétt framhjá marki Blika. Það er ekki dauð stund hér á Kópavogsvelli!
20. mín
Aron Sig gefur fyrir á fjær á Eið Gauta sem er í góðri stöðu en hann hittir boltann illa og Anton Ari handsamar boltann þægilega.
20. mín
Gult spjald
Viktor Örn Margeirsson
Rífur hressilega í Eið Gauta og fær verðskuldað gult spjald að launum.16. mín
Amin með frábæran undirbúning, leikur á Óla Val og gefur fyrir. Boltinn á Eið Gauta sem á skot sem fer af varnarmanni en hinn sextán ára Sigurður Breki mætir næstur og setur boltann í netið af stuttu færi!
KR-INGAR SVARA UM HÆL!
Sigurður Breki Kárason
Sæmilegi leikurinn!Amin með frábæran undirbúning, leikur á Óla Val og gefur fyrir. Boltinn á Eið Gauta sem á skot sem fer af varnarmanni en hinn sextán ára Sigurður Breki mætir næstur og setur boltann í netið af stuttu færi!
14. mín
Eftir gott uppspil Blika fær Aron Bjarnason boltann við endalínu. Hann sker boltann út á Anton Loga, sem er við vítateig, og stýrir boltanum þægilega í netið.
ANTON TVÖFALDAR FORYSTUNA!
Anton Logi Lúðvíksson (stoðsending: Aron Bjarnason )
Laglegt spil!Eftir gott uppspil Blika fær Aron Bjarnason boltann við endalínu. Hann sker boltann út á Anton Loga, sem er við vítateig, og stýrir boltanum þægilega í netið.
8. mín
Luke Rae kemst í góða stöðu en heldur of lengi í boltann og sókn KR-inga rennur út í sandinn.
8. mín
HALLDÓR SNÆR!
Þvílík varsla!
Blikar komast aftur fyrir varnarlínu KR-inga. Boltinn kemur fyrir á Ágúst Orra sem á gott skot á markið en Halldór Snær ver meistaralega!
Þarna mátti engu muna.
Blikar komast aftur fyrir varnarlínu KR-inga. Boltinn kemur fyrir á Ágúst Orra sem á gott skot á markið en Halldór Snær ver meistaralega!
Þarna mátti engu muna.
7. mín
Amin með skot sem fer af varnarmanni og aftur fyrir endalínu eftir góðan undirbúning Eiðs Gauta.
Aron Sig tekur hornspyrnuna sem fer yfir allan pakkann og aftur fyrir.
Aron Sig tekur hornspyrnuna sem fer yfir allan pakkann og aftur fyrir.
6. mín
Luke Rae með frábæra takta og klobbar Anton Loga en á slaka sendingu sem Blikar komast inn í.
2. mín
Viktor Karl fær bolta í gegn, keyrir í átt að teignum og gefur fyrir á Kristófer Inga sem klárar fagmannlega!
ÞETTA TÓK EKKI LANGAN TÍMA!
Kristófer Ingi Kristinsson (stoðsending: Viktor Karl Einarsson)
Blikar leiða!Viktor Karl fær bolta í gegn, keyrir í átt að teignum og gefur fyrir á Kristófer Inga sem klárar fagmannlega!
1. mín
Viktor Karl sparkar þessu í gang!
Blikar sækja í átt að Hamraborginni fögru.
Fyrir leik
Andri Rafn Yeoman heiðraður!
Spilaði sinn 500. leik fyrir Breiðablik á dögunum. Eyjólfur Héðinsson færir honum blómvönd og treyju.
Fyrir leik
Vel mætt í stúkuna
Bóas er á sínum stað með rauða spjaldið, Arnar Grétarsson fylgist vel með gangi mála og Ólafur Gunnar Þorsteinsson er mættur að styðja bróður sinn Ágúst.
Fyrir leik
2.15 á KR er frábært veðmál með Höskuld ekki með og einnig KR yfir 2 mörk þar sem vörn Blika hefur verið slök í síðustu leikjum.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) May 22, 2026
Fyrir leik
KR vann stórsigur í síðustu viðureign liðanna
KR vann Breiðablik 5-1 hér á Kópavogsvelli í æfingaleik skömmu fyrir mót. Staðan var 4-0 fyrir KR-ingum í hálfleik og sáu Blikar aldrei til sólar.
Fyrir leik
Uppstilling Breiðabliks

Fyrir leik
Uppstilling KR

Fyrir leik
KR endurheimtir lykilmenn
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá 2-2 jafntefli gegn Fram síðastliðinn sunnudag.
Arnór Ingvi Traustason, Michael Akoto og Finnur Tómas Pálmason snúa allir aftur inn í liðið eftir að hafa glímt við meiðsli. Þá kemur Eiður Gauti Sæbjörnsson jafnframt inn í liðið.
Úr liðinu víkja þeir Hrafn Tómasson, Alexander Rafn Pálmason, Hjalti Sigurðsson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson.

Höskuldur á bekknum!
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, gerir eina breytingu á liði sínu frá 3-2 tapi gegn Val í síðustu umferð.
Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson tekur sér óvænt sæti á bekknum. Í hans stað kemur Anton Logi Lúðvíksson.

Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson tekur sér óvænt sæti á bekknum. Í hans stað kemur Anton Logi Lúðvíksson.

Fyrir leik
Sprellað í KR-ingum
ChatGPT búið að græja nýjar markamyndir fyrir strákana!???? pic.twitter.com/CBDakdJ7tz
— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) May 22, 2026
Fyrir leik
KR-ingar endurheimta lykilmenn

Fyrir leik
Fara Blikar í þriggja manna vörn?

Fyrir leik
Ekki hægt að kvarta
Luke Rae er ánægður með stöðuna á KR. Liðið er í 2. sæti með jafn mörg stig og Víkingur en með lakari markatölu. Hann ræddi við Fótbolta.net í vikunni.
„Við getum ekki kvartað, ef þú hefðir sagt fyrir mig fyrir tímabilið, horfandi á síðasta tímabil, að við myndum vinna sex af fyrstu sjö og værum á toppnum (ásamt öðru liði), þá hefði ég glaður tekið því. Eftir að hafa átt svolítið erfitt uppdráttar í fyrra er gott að sjá gengið núna, við höfum haldið plani og það er að ganga eins og er. Það er góð tilfinning," sagði Luke í viðtali við Sæbjörn Steinke.

Blikar þurfa að svara fyrir tap
Breiðablik tapaði gegn Val, 3-2, á Hlíðarenda í síðustu umferð. Þar áður gerði liðið 3-3 jafntefli við fallbaráttulið FH.
Blikar eru nú í fjórða sæti, sjö stigum frá toppnum.

Blikar eru nú í fjórða sæti, sjö stigum frá toppnum.

Fyrir leik
Húsið ekki lengur fullt
Eftir draumabyrjun KR-inga er húsið ekki lengur fullt eftir að liðið gerði 2-2 jafntefli við Fram um síðustu helgi.
Staðan var 1-1 í hálfleik en á 84. mínútu kom Luke Rae KR yfir og virtust KR-ingar ætla að fara sigla enn einum sigrinum heim. Sigurjón Rúnarsson var þó ekki á sama máli og jafnaði hann metin á 90. mínútu.

Föstudagsfjör!
Velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem Breiðablik tekur á móti KR í stórleik kvöldsins í Bestu deildinni.
Besta karla
18:00 KA-Valur (Greifavöllurinn)
18:00 Keflavík-Þór (HS Orku völlurinn)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Fram (Samsungvöllurinn)
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)

Besta karla
18:00 KA-Valur (Greifavöllurinn)
18:00 Keflavík-Þór (HS Orku völlurinn)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Fram (Samsungvöllurinn)
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)

Viðtöl og skýrsla væntanleg.