Leik lokið!
Allt lokið.
Valur vinnur, staðreynd.
Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
94. mín
Þórdís kemur með fyrirgjöf sem víkingar rétt missa af og ná ekki að pota boltanum inn.
93. mín
Há fyrirgjöf inn í teig á Jasmín sem nær að pota í hann en Tinna gríður boltann af öryggi.
92. mín
Margrét Brynja komin við endalínuna og nær að sóla vörnina en hún missir svo boltann.
90. mín
+4 mín.
88. mín
InnElísa Birta Káradóttir
ÚtBergdís Sveinsdóttir
Bergdís fer meidd af velli eftir að hafa fengið boltann í hausinn. Við óskum henni batakveðjur.
84. mín
Valskonur gera vitlaust innkast og Víkingar fá að taka innkastið.
83. mín
Ísfold fær boltann í höndina og skellur í Ísabellu. Fær aukaspyrnu á sig en skotið fer beint á McClellan.
Klárt gult að mínu mati en Twana dæmir ekki.
80. mín
InnÁgústa María Valtýsdóttir
ÚtNadía Atladóttir
80. mín
InnArna Ísold Stefánsdóttir
ÚtDagný Rún Pétursdóttir
80. mín
InnÞórhildur Þórhallsdóttir
ÚtBirta Birgisdóttir
78. mín
Freyja Stefáns fær boltann inn í teignum og hún nær að snúa sér en skotið er yfir markið.
75. mín
Kimberley með góða tæklingu á Bergdísi.
72. mín
InnFreyja Stefánsdóttir
ÚtKristín Erla Ó Johnson
71. mín
Þórdís tekur aukaspyrnuna við teiginn.
Tinna grípur skotið þægilega.
70. mín
Gult spjald
Margrét Brynja Kristinsdóttir
Valskonur missa boltann klaufalega og Margrét fer í tæklinguna að aftan, fer ekkert í boltann og þetta var alltaf gult.67. mín
Dauðafæri
Hár bolti á Jasmínu sem er í teignum, alveg ein en skallinn fer framhjá markinu.
Fyrsti alvöru sjensinn hjá Víkingum í dag.
64. mín
Ísabella nær að sóla tvo leikmenn en skotið er blokkað af þriðja leikmanni.
63. mín
Kimberley að sóla allt liðið nánast á misðvæðinu.
Kimberley sendir svo á Ísabellu sem kemur með fyrirgjöf sem Víkingar ná að verjast.
61. mín
Ísabella fær aukaspyrnu við varamannabekkinn.
Ísabella kemur með fasta sendingu inn í teig sem Víkingar verjast.
59. mín
InnKolbrá Una Kristinsdóttir
ÚtSnæfríður Eva Eiríksdóttir
58. mín
Nadía fær boltann rétt fyrir utan teiginn og lætur vaða en skotið fer framhjá.
56. mín
Bergdís kemur með háa fyrirgjöf inn í teiginn sem Ísfold Marý nær í en skallinn er framhjá.
56. mín
InnJóhanna Elín Halldórsdóttir
ÚtEmma Steinsen Jónsdóttir
55. mín
Jasmín kemst í gegn eftir frábæra sendingu frá Kristínu Erlu en varnarmenn Vals koma boltanum fyrir horn.
53. mín
Víkingar fá horn sem Valskonur ná að verja, Daný fær svo boltann við D bogann en hún fær boltann í höndina og fær aukaspyrnu á sig.
51. mín
Begdís með fyrir utan teiginn sem Tinna ver.
Einar vill brot en fær ekki.
48. mín
Bergdís lætur vaða langt frá og Tinna þarf að dýfa sér og ver fyrir horn.
Hornið fer ekki neitt.
47. mín
MAAAARK!
Nadía Atladóttir (stoðsending: Ísabella Sara Tryggvadóttir)
Ísabella er á hægri kantinum og kemur með bolta fyrir markið á Nadíu sem potar boltanum inn í markið. Alls ekki flókið markið.46. mín
Nadía kemur með fyrirgjöf sem McClellan grípur.
46. mín
Seinni hálfleikur
Valskonur byrja.
45. mín
Twana er ekki að flækja þetta.
Sjáumst eftir korter.
43. mín
Dauðafæri
Sóley með innkast þar sem tveir víkingar missa af honum.
Innkastið fer beint á Nadíu sem kemst inn í teiginn en skotið er beint á markmannin.
Mögulega fyrsta skotið á markið í leiknum.
43. mín
Sóley kemur með háan bolta inn í teig Víkinga, beint á Nadíu sem tekur hann niður en missir hann svo.
40. mín
Þetta er nú orðið frekar dauft og rólegt.
Víkingar að reyna að komast í gegn en ekkert virkar.
35. mín
Jasmín mjög nálægt því að setja takkana í Málfríði þegar þær eru að berjast við háan bolta.
33. mín
Rangstaða aftur
Nú er það Ísabella sem kemst í 1v1 stöðu gegn markmanni en hún er röng líka, hún nær að koma boltanum í netið samt.
33. mín
Rangstaða
Ísabella setur Nadía í gegn en Nadía er röng.
32. mín
Sláin
Ísabella á hægri kantinum, cuttar inn og tekur skotið.
Skotið fer beint á slána og inn í teig.
Ísfold kemur boltanum burt.
30. mín
Ísfold Marý fær boltann ekki langt frá D boganum.
Einar segir ,,skjóttu" og hún gerir það en boltinn fer framhjá markinu.
25. mín
Hár bolti inn í teig sem Tinna grípur, gripið var samt ekki sannfærandi og hún var búin að missa hann þangað til að hún tekur boltann aftur.
25. mín
Málfríður í veseni við endalínuna og Jasmín er að fara taka boltann þangað til að Málfríður tæklar boltann út af.
23. mín
Ísabella með hornið sem fer beint á Bryndísi sem skýtur yfir markið.
22. mín
Nadía er við það að sleppa í gegn en Áslaug nær í boltann og setur hann fyrir horn.
21. mín
Tinna kemur með afleita sendingu sem fer beint á Þórdísi sem endar á því að koma með afleita sendingu í gegnum vörn Vals sem Tinna grípur.
20. mín
Bergþóra kemur með fyrirgjöf sem Tinna grípur.
18. mín
Færi
Þórdís Hrönn keyrir upp hægri kantinn og ætlar að renna boltanum fyrir markið á Bergdísi en sendingin var misheppnuð.
17. mín
Rangstaða
Hár bolti á Bergdísi sem er komin í góða stöðu og nær að vippa honum yfir Tinnu en það er rangstaða.
Veit ekki með það, þetta var tight.
15. mín
Dagný á visntri kantinum kemur með fyrirgjöf á vinstri kantinum, en varnarmenn Vals ná að koma boltanum fyrir horn.
Þær taka hornið stutt og missa boltann klaufalega.
13. mín
Nadía fær boltann inn í teignum og setur hann á Arnfríði sem er við D bogann.
Arnfríður tekur skotið sem fer yfir.
12. mín
Pressa frá Val og Víkingar næstum því missa boltann til Vals við teiginn, en Ísfold nær að redda sér.
11. mín
Gult spjald
Emma Steinsen Jónsdóttir
10. mín
Kristín Erla kemur með fyrirgjöf inn í teig sem er skölluð burt.
9. mín
Víkingar eru meira með boltann þessar mundir.
5. mín
Einar að skamma bekk Vals, Twana þarf ekki að skerast í leikinn.
3. mín
Ísabella Sara kemur með fyrirgjöf inn í teig af hægri kantinum, Grace tekur boltann upp.
2. mín
Margrét Brynja og Sóley Edda með flott spil við hvor aðra.
Sóley kemur svo með fyrirgjöf inn í teiginn sem varnarmenn Víkings koma burt.
Góð byrjun á leiknum.
1. mín
Valur í svartri treyju með rauðu letri, Víkingar auðvitað í heimatreyjunni sinni.
Þetta gæti kannski orðið ruglingslegt, vonandi ekki.
1. mín
Dagný Rún keyrir upp hægri kantinn og kemur með fyrirgjöf sem er spörkuð fyrir fyrsta horn leiksins.
Jasmín Erla nær skallanum en hún skallar yfir.
1. mín
Víkingar byrja.
0. mín
Byrjunarliðs tíðindi
Einar, þjálfari Víkinga gerir þrjár breytingar. Jóhanna Elín, Helena Ósk og Freyja Stefánsdóttir fara á bekkinn. Þórdís Hrönn, Dagný og Birta koma inn í byrjunarliðið.
Matti, þjálfari Vals kemur mep tvær breytingar þær Kolbrá Una og Ágústa María fara á bekkinn. Snæfríður Eva byrjar leikinn. Fyrrum fyrirliði Víkings, Nadía Atladóttir byrjar leikinn líka.

0. mín
Jóhann Fjalar er spámaðurinn
Víkingur R. 2 - 1 Valur
,,Vikes vinna þennan leik nokkuð öruggt setja bæði mörkin í fyrri, Bergdís og Freyja með mörkin. Valur mun samt sýna takta og minnka þegar 10 eru eftir en það er of seint. Fáum eitt rautt í þennan leik líka, verður ein glórulaus tækling!"

0. mín
Dómarakvartettinn
Twana Khalid verður með flautuna, Kristofer Bergmann og Daníel Örn Arnarsson verða með flöggin. Arnar Ingi Arnarsson verður með skiltið.

0. mín
Jasmín Erla gegn fyrrum liðsfélögum
Í vetur nýtti Jasmín Erla riftunarákvæði í samningi sínum við Val og skrifaði undir við Víking út tímabilið.
Jasmín hefur spilað fyrir Fylki, FH, Stjörnuna og Val, en líka spilaði hún í Kýpur með Apollon Limassol.
Á síðasta tímabili spilaði hún 19 leiki og skoraði eitt mark fyrir Val.
Jasmín var markahæst í Bestu deildinni 2022, þá var hún að spila með Stjörnunni og skoraði hún 11 mörk.


0. mín
Valur með 1 stig í síðustu fjórum leikjum
Valur hefur bara unnið einn leik á mótinu sem var gegn Grindavík/Njarðvík í fyrstu umferð. Grindavík/Njarðvík sem hefur verið á miklu flugi, unnu Val í Mjólkurbikarnum 2-3.
Valur hefur tvívegis komist í 2-1 stöðu gegn ÍBV og Breiðabliki á Kópavogsvelli en hafa svo tapað forystunni niður í 3-2 tap. Gegn Breiðabliki þá voru þær að spila mjög vel þangað til að Hrafnhildur Salka fékk rautt fyrir klaufalegt hártog.
Arnfríður Auður Arnarsdóttir og Margrét Brynja Kristinsdóttir eru báðar markahæstar í liðinu með tvö mörk.


0. mín
Víkingar í erfiðleikum
Víkingar sitja í sjötta sæti með sex stig, þær hafa unnið tvo leiki gegn Stjörnunni og Fram en hafa tapað öllum hinum leikjunum.
Síðasti leikur var gegn Þrótti, Þróttur fór heim með öll stigin þrjú og unnu leikinn 1-4.
Jasmín Erla er markahæst í liðinu með fjögur mörk og hefur hún skorað í tveimur leikjum í röð.


0. mín
Annar í Hvítasunnu stemmari
Veriði velkomin í Fossvoginn, þar sem Víkingar fá Val í heimsókn í 6. umferð Bestu Deildarinnar.
Umferðin
Mán 25. maí 16:00 Fram - Þór/KA
Mán 25. maí 16:00 ÍBV - Grindavík/Njarðvík
Mán 25. maí 19:15 Þróttur R. - Stjarnan
Mán 25. maí 19:15 Breiðablik - FH
Mán 25. maí 19:15 Víkingur R. - Valur







