Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
ÍBV
ÍBV
Besta kvenna
Hásteinsvöllur
Vindur á annað markið.
1 - 1
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/​Njarðvík
0 - 136' Natasha Moraa AnasiAllison Patricia Clark 92'1 - 1
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Nýliðarnir skiptu með sér stigum

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum var auðvitað jöfnunamark ÍBV í blálokin. Grindavík/Njarðvík voru töluvert sterkari í fyrri hálfleik og fengu helling af góðum tækifærum til að koma sér í betri stöðu en 0-1 í hálfleik. ÍBV pressaði mjög stíft í síðari hálfleik og náðu að knýja fram jafntefli með góðu marki.

Bestu leikmenn

1. Natasha Moraa Anasi

Klettur í vörn Grindavík/Njarðvík og stýrði liðinu vel. Hún er bara svo ótrúlega örugg í öllum aðgerðum og á boltann. Skorar svo auðvitað mark liðsins eftir fast leikatriði.

2. Allison Patricia Clark

Gerir jöfnunarmarkið mikilvæga og skilaði heilt yfir flottri frammistöðu á miðunni/sókninni. Var mjög duglega með og án bolta eins og oftast.

Atvikið

Jöfnunarmark ÍBV. Allt stefndi í góðan útisigur Grindavík/Njarðvík en jöfnunarmark ÍBV kom í blálokin og tóku þar með tvö stig af gestunum. Eins má nefna færi sem rann út í sandinn hjá Grindavík/Njarðvík. Ása Björg Einarsdóttir fékk þá boltann hægra megin í markteig ÍBV en fyrsta snertingin svíkur hana og þær náðu ekki að gera sér mat úr því.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV er enn í öðru sæti eins og stendur með 13 stig. Liðin í fyrsta og þriðja sæti eigast við í kvöld. Þar getur FH jafnað ÍBV að stigum með sigri gegn taplausu liði Breiðabliks. Grindavík/Njarðvík heldur fimmta sæti og eru með átta stig. Tveir sigrar, tvö jafntefli og tvö töp hjá þeim í sex leikjum.

Vondur dagur

Mjög erfitt að taka einhvern einn leikmann út eftir þessa viðureign. Frekar jafn leikur hjá öllum leikmönnum liðanna fyrir utan þær tvær sem ég nefndi sem bestu leikmenn.

Dómarinn - 7

Fínn leikur hjá Guðmundi Páli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.