SKÝRSLAN: FH-ingar fyrstar til að leggja Blika af velli
Hvað réði úrslitum?
Ákefð FH-inga. Í tvígang lenda FH undir og í tvígang jafna þær á erfiðum útivelli og skora loks sigurmark.
Bestu leikmenn
1. Ingibjörg Magnúsdóttir - FH
Skoraði gott mark og vann vítið. Var sífellt ógnandi og hefði hæglega getað sett annað mark.
2. Ída Marín Hermannsdóttir - FH
Var mjög sterk í dag, stýrði spilinu vel á miðjunni og voru varnarmenn Blika í stökustu vandræðum með hana. Gerði engin mistök í vítinu.
Atvikið
Jöfnunarmark FH. Eftir að FH jafnaði leikinn þá tóku þær yfir hann algjörlega og hættu ekki fyrr en þær skoruðu sigurmarkið.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik er enn í fyrsta sæti en FH fer upp í annað sætið og nú munar einungis tveimur stigum á þeim eftir 6 umferðir.
Vondur dagur
Þetta var hörkuleikur og erfitt að pikka út einhverja eina sem átti verri leik en önnur, en ég set þetta á Barbáru Sól fyrir það eitt að hafa brotið af sér innan teigs og gefið víti.
Dómarinn - 8
Stefán Ragnar komst mjög vel frá þessum leik. Var öruggur í sínum aðgerðum, vítadómurinn var réttur og var með öll vafaatriði á hreinu.



