SKÝRSLAN: Engin hamingjustund í hamingjunni
Hvað réði úrslitum?
Þetta var frekar lélegur leikur, bæði lið áttu erfitt með að ógna marki andstæðingsins. Valur var bara aðeins betri í dag og skoraði úr besta færinu sínu.
Bestu leikmenn
1. Ísabella Sara Tryggvadóttir
Af öllum leikmönnunum þá ógnaði hún mest. Hún var að koma með flottar fyrirgjafir sem Víkingar voru stundum í basli að koma burt.
2. Málfríður Anna Eiríksdóttir
Þetta var varnarleikur og þá er tilvalið að gefa annað sætið til varnarmann. Hún var eins og klettur í vörninni, skallaði og sparkaði allt burt.
Atvikið
Markið hjá Nadíu breytti leiknum, Valur fer þá hægt og rólega meira í vörn og í síðustu tíu mínútunum keyra Valskonur rútunni inn á völlinn og fyrir markið.
Hvað þýða úrslitin?
Valskonur loksins sigra eftir eyðimerkargöngu. Valur er kominn yfir Víkinga og sitja í 7. sæti með sjö stig. Víkingar falla niður í 8. sæti með sex stig.
Vondur dagur
Jasmín Erla fékk gott skallafæri sem fór framhjá markinu. Fyrir utan það gerði hún lítið og átti erfitt með að koma sér í leikinn. Í markinu á Áslaug Dóra að gera betur og reyna að koma fyrir boltann þegar Ísabella kemur með fyrirgjöfina fram fyrir markið. En Víkingsliðið í heild var lélegt.
Dómarinn - 5
Skrýtin lína í dag, Ísfold Marý átti t.d. að fá gult þegar hún fékk í hendina og skellur í Ísabellu. Var ekki að flauta þegar hann átti að flauta.




