Fotbolti.net
Einar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
GPG völlurinn
Sól og blíða eins og alltaf á Húsavík
Völsungur
Völsungur
0 - 1
Fylkir
Fylkir
0 - 129' Guðmundur Tyrfingsson (víti)
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson
Leik lokið!
Afar tíðindalitlum leik lokið með sigri Fylkismanna. Sigurmarkið kom úr vægast sagt umdeildri vítaspyrnu. Fylkir er kominn á topp Lengjudeildarinnar.
94. mín
Fylkismenn enn nálægt því að bæta við. Held að varnarmenn Völsungs hafi náð að blokka 4 skot í sömu sókninni. Nú eiga gestirnir hornspyrnu.
91. mín
Eyþór Wöhler í dauðafæri
Frábær fyrirgjöf frá hægri og Eyþór er einn og óvaldaður á markteig og skallar að marki en Stefán í markinu varði afar vel. Fátt sem bendir til annars en sigur Fylkis.
90. mín
Fylkismenn fá aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Eyþór tekur en spyrnan er slök og Stefán handsamar boltann.
Völsungur
88. mín
InnTryggvi Grani Jóhannsson
ÚtDagbjartur Búi Davíðsson
Fylkir
88. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtKári Sigfússon
Völsungur
87. mín
Gult spjald

Bjarki Fannar Helgason

82. mín
Þarna var færi Völsungs!
Arnar Pálmi var kominn uppað endalínu vinstra megin og sendi boltann út í teiginn þar sem Bjarki var í dauðafæri en hann hitti boltann skelfilega. Þarna var sénsinn til að jafna.
80. mín
Bjarki Steinsen með rosalegt langskot af 30 metrum sem stefndi uppí þaknetið en Stefán í marki Völsungs náði að blaka boltanum yfir.
Fylkir
78. mín
Gult spjald

Nikulás Val Gunnarsson

Byrjar með stæl!
Fylkir
77. mín
InnTheodór Ingi Óskarsson
ÚtGuðmundur Tyrfingsson
Fylkir
77. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
Fylkir
77. mín
InnBirkir Eyþórsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
75. mín
Þetta er búið að vera ákaflega rólegt undanfarnar mínútur. En heimamenn áttu markskot rétt í þessu. Bjarki með fínan sprett en skot hans laust og Ólafur í engum vandræðum í markinu.
Völsungur
67. mín
InnDavíð Leó Lund
ÚtAndri V. Bergmann Steingrímsson
Fylkir
63. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtDagur Traustason
Stórsöngvarinn Eyþór Wöhler kemur inná.
57. mín
Fylkismenn eru búnir að taka yfirhöndina hér í seinni hálfleik og eru búnir að vera talsvert betri.
56. mín
Fylkir fær afbragðsfæri. Boltinn berst á Dag sem er við markteig í góðri stöðu en setur boltann framhjá. Þarna hefði hann átt að skora.
50. mín
Stöngin
Fylkir fær aðra hornspyrnu og einhver á skalla sem endar í stönginni! Meira líf á fyrstu 5. mínútum seinni hálfleiks en í nánast öllum fyrri hálfleik.
48. mín
Hornspyrna Fylkismanna er góð, Stefán missir af boltanum en af einhverjum fór boltinn yfir markið.
47. mín
Hornspyrnan er hins vegar ekki góð og Ólafur grípur boltann. Fylkismenn snöggir fram og fá hornspyrnu hinum megin
46. mín
Tómas kemur inn með látum og á fínan sprett upp kantinn og vinnur hornspyrnu
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn.
Völsungur
45. mín
InnTómas Bjarni Baldursson
ÚtFernando Jimenez Arranz
45. mín
Þetta var vægast sagt rólegur fyrri hálfleikur. Fylkismenn eru með yfirhöndina en hafa þannig séð ekki skapað neitt. Ég þarf að kíkja á Livey og skoða vítið betur en við fyrstu sýn var þetta mjög ódýrt.
Heimamenn hafa ekkert skapað fram á við.
45. mín
45+2
Heimamenn fá aukaspyrnu á hættulegum stað. Dagbjartur gefur fyrir en boltinn flýgur ósnertur afturfyrir.
45. mín
Fylkismenn fá hornspyrnu hér undir lok hálfleiksins en það verður ekkert úr henni.
38. mín
Kári Sigfússon á fínan sprett upp vinstri vænginn en fyrirgjöf hans er ekki góð. Nánast það eina markverða sem hefur gerst eftir mark Fylkis.
Völsungur
32. mín
Gult spjald

Elfar Árni Aðalsteinsson

Elfar Árni er brjálaður út í dómarann og fær gult spjald.
Fylkir
29. mín
Fylkismenn leiða

Guðmundur Tyrfingsson

Guðmundur Tyrfingsson gerir enginn mistök á punktinum og skorar af öryggi.
28. mín
Fylkir fær víti!!
Tumi leikur inn í teig og lætur sig detta við minnstu snertingu og fær víti. Aldrei víti frá mér séð
Völsungur
28. mín
Gult spjald

Fernando Jimenez Arranz

Fernando fær fyrsta spjald leiksins.
25. mín
Sennilega hættulegasta atvikið hingað til eiga Fylkismenn. Kári fær boltann út í teig í mjög góðri stöðu en Arnar Pálmi hendir sér fyrir skot hans og bjargar.
20. mín
Völsungur fær aukaspyrnu einhverja 25-30 metra frá marki. Arnar Pálmi lætur vaða og spyrnan er fín en Ólafur ver vel.
19. mín
Aftur fá Fylkismenn hornspyrnu og taka hana stutt í þetta skiptið. Eins og 99,9% af hornspyrnum sem eru teknar stutt kemur ekkert úr henni.
15. mín
Fyrsta álitlega sókn heimamanna. Bjarki á góðan sprett upp völlinn og sendir út til hægri á Andra Val sem gefur fyrir en Ólafur markmaður grípur boltann.
14. mín
Fín spyrna en Stefán í marki Völsungs gerir vel og kýlir boltann frá.
13. mín
Fyrstu hornspyrnu leiksins fá Fylkismenn.
Völsungur
11. mín
InnAron Bjarki Kristjánsson
ÚtSteinþór Freyr Þorsteinsson
Steinþór fer meiddur útaf.
9. mín
Þetta fer rólega af stað og ekkert markverkt gerst. En nú liggur Steinþór Freyr er að fá aðhlynningu. Spurning hvort heimamenn neyðist til að gera breytingu strax.
5. mín
Jafnræði með liðunum til að byrja með og menn að þreifa fyrir sér. Jákvætt fyrir Völsung að vera ekki enn búnir að fá á sig mark en í síðustu tveim leikjum fengu þeir á sig mark strax í byrjun leiks.
1. mín
Bergvin dómari flautar í flautu sína og leikurinn er hafinn.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari í dag er Bergvin Fannar Gunnarsson og honum til aðstoðar eru Sigurjón Þór Vignisson og Arnþór Helgi Gíslason. Eftirlitsmaður er hinn eini sanni Bragi Bergmann.
Fyrir leik
Þjálfari Fylkis
Þjálfara Fylkis þekkja allir. Heimir Guðjónsson er þrautreyndur og margfaldur Íslandsmeistari bæði sem leikmaður og þjálfari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þjálfari Völsungs
Það er nýr þjálfari tekinn við hjá Völsungi, hinn spænski Borja Martin Iglesias. En þar sem að hann kom bara til landsins í gær skilst mér að Bjarki Baldvins og Elfar Árni muni stýra liðinu í dag.

Mynd: Völsungur

Fyrir leik
Spáin
Baldvin Borgars spáði í 5. umferð Lengjudeildarinnar og hann spáir öruggum Fylkissigri:

"Völsungur 0 - 3 Fylkir (14:00 á morgun)
Hér kemur einn sannfærandi sigur, brasilíski bílastæðafótboltinn sem nýja spænska þjálfarateymi Völlara vill spila verður ekki alveg búið að síast inn hjá heimamönnum, Theodór Ingi fagnar Englandsmeistaratitli Arsenal með stjörnuleik."


Fyrir leik
Gengi liðanna
Völsungar eru enn í leit að sínum fyrsta sigri þetta sumarið. Liðið hefur gert tvö jafntefli og tapað tveimur leikjum, nú síðast gegn Grindavík á útivelli. Völsungur er í 11. sæti deildarinnar.

Fylkismenn hafa byrjað mótið vel. Þeir hafa unnið þrjá af fjórum fyrstu leikjum sínum. Sigrarnir hafa þó allir komið á heimavelli en þeir töpuðu sínum eina leik á útivelli. Fylkir situr í 3. sæti deildarinnar en getur komist á toppinn með sigri hér í dag.
Fyrir leik
Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá GPG-vellinum á Húsavík. Hér í dag mætast Völsungur og Fylkir í 5. umferð Lengjudeildar karla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.