Leik lokið!
FH-ingar eru fyrstar til að sigra Blika í ár
Skýrsla og viðtöl innan skamms
92. mín
Áhorfendamet á Kópavogsvelli í dag
1232 áhorfendur í dag takk fyrir!
90. mín
+4
90. mín
Dauðafæri Ingibjörg Magnúsdóttir
Þarna hefði Ingibjörg getað gert út um leikinn!
FH-ingar léku vel á milli sín og fékk Ingibjörg Magnúsdóttir sendingu inn fyrir vörnina. En skotið í hliðarnetið
FH-ingar léku vel á milli sín og fékk Ingibjörg Magnúsdóttir sendingu inn fyrir vörnina. En skotið í hliðarnetið
89. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
89. mín
InnLilja Þórdís Guðjónsdóttir
ÚtElísa Viðarsdóttir
Þriðja skipting Blika
88. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
Önnur skpting FH
84. mín
Hornspyrnur Blika
Tvær hornspyrnur í röð hjá Blikum. Boltinn berst á fjær í seinni spyrnunni þar sem leikmaður Blika fellur við en Stefán Ragnar gerir rétt og dæmir ekkert, því ekkert var brotið.
81. mín
Bryndís Arna strax í dauðafæri
Fær boltann inn fyrir vörn FH en er of lengi að hlaða í skotið, gefur á samherja sem á skot af varnarmanni og aftur fyrir. Horn.
Ekkert varð úr horninu.
Ekkert varð úr horninu.
79. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtBarbára Sól Gísladóttir
Önnur skipting Blika
75. mín
InnSunna Rún Sigurðardóttir
ÚtÓlöf Sigríður Kristinsdóttir
Fyrsta skipting Blika
75. mín
Ída gerði engin mistök á punktinum og renndi boltanum vinstra megin við Herdísi í markinu.
Ída Marín skorar
Ída Marín Hermannsdóttir
FH-ingar hafa snúið leiknum sér í vil!Ída gerði engin mistök á punktinum og renndi boltanum vinstra megin við Herdísi í markinu.
74. mín
Víti!
FH fá víti - Brotið á Ingibjörgu Magnúsdóttur
74. mín
FH-ingar aðeins ofaná núna
Það hefur aðeins dregið af Blikum og núna eru það FH-ingar sem sækja meira.
67. mín
Glæsilegur sprettur Ingibjargar Magnúsdóttur
Á klobba og geysist upp hægri kantinn, setur boltann fyrir en Berglind Freyja hittir boltann ekki nógu vel og skýtur framhjá. FH-ingar öflugar þessar mínútur
66. mín
Sláin
Ég hef ekki undan við að skrifa hérna, þvílíkur leikur! Blikar þustu í sókn og áttu glæsilegt skot í slánna. Sá því miður ekki hver það var sem átti skotið
65. mín
FH jafna!
Deja Jaylyn Sandoval (stoðsending: Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir)
Glæsileg hornspyrnu Andreu ránar, fór í háum boga inn á miðjan teig Blika. Þar stóð Deja og skallaði boltann í fjærhornið. Glæsilegt mark!62. mín
InnBerglind Freyja Hlynsdóttir
ÚtNia Raisa Christopher
Fyrsta skipting leiksins
Síðasta verk Niu í dag var að eiga bylmingsskot í andltiið á Elínu Helenu sem lá óvíg eftir
58. mín
Gjöf til Blika 2-1
Slæm mistök í vörn FH
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
FH-ingar spila á milli sín í vörninni og á Birna Heiða afar slæma sendingu, Katelyn Duong kemst inn í boltann, kemur honum á Hrafnhildi sem setur boltann framhjá Aldísi.Gjöf til Blika 2-1
51. mín
Ágætis færi hjá Blikum
Breiðablik eru aftur komnar í hápressuna og vinna boltann hátt á vellinum og endar sóknin með föstu skoti, rétt framjá
48. mín




Myndir





47. mín
Gult spjald
Kristín Dís Árnadóttir
Kristín Dís togar í treyju Önnu Heiðu og það má ekki. Gult spjald46. mín
InnHelena Maree Errington
ÚtMackenzie Elyze Smith
Skipting í hálfleik
46. mín
FH-ingar hefja seinni hálfleik
45. mín
Kominn hálfleikur
Virkilega fjörugur og skemmtilegur leikur hér í Kópavogi.
Við tökum okkur korter.
Við tökum okkur korter.
45. mín
+1
Ein mínúta í uppbót
45. mín
Gult spjald
Deja Jaylyn Sandoval
Hékk aftan á treyju leikmanns Breiðabliks. Réttilega dæmt gult spjald41. mín
ALDÍS HNEIGÐU ÞIG!
Þvílík markvarsla Aldís Guðlaugsdóttir! Boltinn berst upp hægra megin og kemur glæsileg stungusending inn á teiginn. Út kemur Aldís og étur upp sóknarmann Breiðabliks. Þarna var Aldís klárlega betri en engin!
39. mín
1-1
FH jafna!
Ingibjörg Magnúsdóttir
FH-ingar hafa verið að komast meira inn í leikinn og það skilar sér með marki! Boltinn berst út til hægri til Ingibjargar Magnúsdóttur, hún sendir boltann fyrir markið og lekur boltinn framhjá Herdísi í markinu1-1
34. mín
SLÁIN
FH fá horn og upp úr henni á Jónína Linnet frábæran skalla sem endar ofan á þverslánni og yfir fór boltinn.
33. mín
FH-ingar sækja í sig veðrið
FH-ingar ná að halda boltanum meira innan liðsins þessar síðustu mínútur og komast í álitlegar stöður án þess þó að skapa sér góð færi.
25. mín
Horn FH
Fínasta hornspyrna og á Ída Marín skalla að marki sem fer af Blika og í annað horn.
Ekkert varð úr seinni spyrnunni.
Ekkert varð úr seinni spyrnunni.
23. mín
Lífsmark með FH
FH spila laglega upp völlinn vinstra megin sem endar með fyrirgjöf Thelmu Lóu en enginn náði að reka höfuðið í boltann þó litlu mátti muna.
20. mín
Dauðafæri !
Stungusending á Öglu Maríu sem er komin ein gegn Aldísi. Í stað þess að skjóta á markið reynir Agla að fara framhjá Aldísi en hún sá við henni og reif af henni boltann. Vel gert hjá Aldísi en Agla hefði átt að gera betur.
17. mín
Blikar pressa áfram
FH-ingar eru í stökustu vandræðum með að komast áleiðis upp völlinn
16. mín
Fyrsta markið er komið!
Agla María Albertsdóttir (stoðsending: Elísa Viðarsdóttir)
Blikar pressa FH hátt á vellinum og það ber árangur. Elísa Viðarsdóttir fær boltann úti hægra megin, á hárnákvæma sendingu á Öglu Maríu sem setur boltann laglega í netið. 1-0 fyrir Breiðablik!12. mín
Færi!
Slök sending úr vörn FH. Barbára kemst inn í hana og skeiðar með boltann upp að teig FH hægra megin, sendir fyrir en skot Ólafar ekki nógu nákvæmt og fer framhjá.
8. mín
Fyrsta hornið
Dauðafæri hjá Blikum! Hornið var tekið stutt, en barst boltinn á endanum inn í teig, við tók smá darraðadans og endaði með skoti sem fór vel yfir markið
2. mín
Fyrsta skot leiksins er komið það eiga FH-ingar, Birna Kristín Björnsdóttir átti það.
1. mín
Þetta er komið af stað
Breiðablik sparka þessu af stað í bleikum treyjum, þær leika í átt að Smáranum, FH-ingar í sínum hefðbundnu hvítu treyjum leika að Sporthúsinu
Fyrir leik
Tæpt korter í leik
Liðin ganga til búningsherbergja eftir upphitun. Þetta er að bresta á!
Fyrir leik
Gríðarleg stemning!
Hér á Kópavogsvelli er mikil hátíð og hvet ég alla sem geta að mæta á völlinn, klæðast bleiku og styrkja gott málefni!
Fyrir leik
Jóhann Fjalar Skaptason spáir jafntefli í kvöld.
Breiðablik 2 - 2 FH (19:15 í kvöld)
Hér mætast liðin sem var spáð tveimur efstu sætunum. Þetta verður hörkuleikur, þar sem FH kemst í 0-1 með marki frá Niu. Blikar jafna fyrir hlé, Ása setur þar gott mark. FH tekur aftur forystu með marki frá Ídu, og Blikar jafna svo í uppbótartíma með marki frá Öglu Maríu.
Hér má sjá hvernig Jóhann spáir öðrum leikjum í 6. umferðinni

Hér mætast liðin sem var spáð tveimur efstu sætunum. Þetta verður hörkuleikur, þar sem FH kemst í 0-1 með marki frá Niu. Blikar jafna fyrir hlé, Ása setur þar gott mark. FH tekur aftur forystu með marki frá Ídu, og Blikar jafna svo í uppbótartíma með marki frá Öglu Maríu.
Hér má sjá hvernig Jóhann spáir öðrum leikjum í 6. umferðinni

Fyrir leik
Styrktarleikur fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru
Heilmikil dagskrá er fyrir leik kvöldsins og opnar svæðið klukkan 17:30. Páll Óskar, Kristmundur Axel og Húbba Búbba stíga á svið fyrir leik.
Fyrir leik
FH
Eftir jafntefli og tap í fyrstu tveimur leikjum FH hafa þær sigrað þrjá í röð og koma inn í þennan leik fullar sjálfstrausts. Þær sitja í 3. sæti deildarinnar með 10 stig og markatöluna 9-5.


Fyrir leik
Breiðablik
Blikar stefna að því að halda áfram fullkomnu tímabili sínu til þessa en þær hafa sigrað fimm fyrstu leiki sína með markatöluna 14-5 og sitja á toppi deildarinnar með 15 stig.


Fyrir leik
Dómarar
Í kvöld verður Stefán Ragnar Guðlaugsson með flautuna og honum til aðstoðar verða Breki Sigurðsson og Jón Reynir Reynisson. Fjórði dómari er Hallgrímur Viðar Arnarson og svo fylgist Bergur Þór Steingrímsson dómaraeftirlitsmaður með því hvort allt fari vel fram.


Fyrir leik
Verið velkomin á Kópavogsvöll
Í dag fáum við leik af bestu gerð þegar Breiðablik tekur á móti FH í topp- og nágrannaslag!






