Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta kvenna
Hásteinsvöllur
Vindur á annað markið.
ÍBV
ÍBV
1 - 1
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
0 - 136' Natasha Moraa AnasiAllison Patricia Clark 92'1 - 1
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Leik lokið!
1-1 á Hásteinsvelli!!
Skemmtilegum leik lokið á Hásteinsvelli.

G/N voru töluvert sterkari í fyrri hálfleik en Eyjakonur unnu sig vel inn í leikinn og pressuðu stíft á G/N í lokin og uppskáru með fínu marki. Lokaniðurstaða 1-1.

Viðtöl og skýrsla síðar í kvöld!

95. mín
Maci tekur spyrnuna en hún er léleg og hátt yfir.
ÍBV
93. mín
Gult spjald

Avery Mae Vanderven

Brýtur á Sophiu rétt fyrir utan teig. Hugsanlega síðasta spyrna leiksins.
ÍBV
92. mín
ÍBV JAFNAR!!!

Allison Patricia Clark (stoðsending: Magdalena Jónasdóttir)

Magdalena kemur fyrirgjöf frá vinstri og Allison Clark klárar mjög vel í hornið fram hjá Lauren og jafnar metin fyrir Eyjakonur!!
92. mín
Olga kemur með seningu inn á teiginn en G/N nær að koma boltanum í burtu.
90. mín
+3 í uppbótartíma.
Grindavík/Njarðvík
90. mín
InnTinna Hrönn Einarsdóttir
ÚtLily Anna Farkas
89. mín
Olga með skot fyrir utan teiginn en það er laust og Lauren grípur boltann.
86. mín
Maci við að sleppa í gegn en brýtur á Hrafnhildi K. í leiðinni.
ÍBV
85. mín
InnHrafnhildur K. Kristleifsdóttir
ÚtRagna Sara Magnúsdóttir
Grindavík/Njarðvík
84. mín
InnRakel Sigurðardóttir
ÚtHildur Katrín Snorradóttir
83. mín
Sophia með enn eina fyrirgjöfina en Avery nær að koma boltanum fram.
81. mín
Sophia kemur með fyrirgjöf frá vinstri en Ása Björg nær ekki til boltans og hann fer aftur fyrir.
ÍBV
80. mín
InnTanja Harðardóttir
ÚtErla Hrönn Unnarsdóttir
78. mín
Erla Hrönn kemur sér í skotfæri en skotið hennar er framhjá markinu.
78. mín
Ása fær boltann inn á teig ÍBV hægra megin en fyrsta snertingin svíkur hana svo hún setur boltann fram hjá úr þröngu færi.
77. mín
Olga með skot fyrir utan teig en það er beint á Lauren.
76. mín
G/N í góðu færi
Ása Björg með flottan sprett upp hægri megin og kemur boltanum á Maci inn á teig ÍBV en skot hennar fer yfir markið.
Grindavík/Njarðvík
74. mín
Gult spjald

Sophia Faith Romine

Sparkar boltanum í burtu eftir að búið er að flauta.
72. mín
ÞARNA MUNAÐI LITLU!!
Þóra nálægt því skora beint úr horni!!! Setur boltann í samskeytin og þær ná ekki að taka frákastið. G/N koma svo boltanum í burtu.
70. mín
Sophia nær skoti. Köttar inn á hægri fótinn og tekur skotið en það er beint á Arden.
68. mín
Ragna Sara kemur með fyrirgjöf en hún er frekar slök og beint á Lauren.
ÍBV
67. mín
InnÞóra Björg Stefánsdóttir
ÚtViktorija Zaicikova
Grindavík/Njarðvík
67. mín
Gult spjald

Ása Björg Einarsdóttir

64. mín
Allison kemur með sendingu inn á teig ætlaða Olgu en hún er aðeins of há og Olga nær ekki til boltans.
63. mín
Maci reynir að senda Ásu Björg í gegn en einhver misskilningur á milli þeirra og sendingin fer bara beint aftur fyrir.
62. mín
Eyjakonur eru að pressa G/N nokkuð mikið þessa stundina og eru mjög nálægt því að refsa.
61. mín
Vel spilað hjá ÍBV. Ragna Sara setur boltann á Allison Clark sem er fyrir utan teig en skot hennar er hátt yfir markið.
58. mín
ÍBV Í FÆRI!!
Kristín Klara komin nánst ein í gegn og nær skotinu en það er varið. Viktorija tekur frákastið en Emma F. kemur í veg fyrir að boltinn fari inn þar sem að Lauren, markvörður G/N er komin út úr markinu.
55. mín
Maci tók aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi ÍBV og kom með fína sendingu inn á teiginn og Sophia er hársbreidd frá því að ná til boltans.
54. mín
Magdalena reynir langa sendingu fram á Olgu en Lauren kemur út úr markinu og er fyrst á boltann.
52. mín
Viktorija tók skotið úr aukaspyrnunni en það fór hátt yfir markið.
51. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á hættulegum stað, rétt fyrir utan teig.
50. mín
Clark reynir að lauma boltanum inn á Söndru en sendingin er of löng.
50. mín
Clark kemur með fyrirgjöf en Lauren á ekki í vandræðum og grípur boltann.
49. mín
Vel spilað hjá G/N sem endar á Maci kemur með fyrirgjöf en hún er of innarlega og Arden grípur boltann auðveldlega.
47. mín
Danai gerir vel vinstra megin og kemur sér í fyrirgjafastöðu en sendingin er slök og beint á Arden.
45. mín
Seinni hálfleik hafinn
Þetta er farið af stað aftur!

Erla Hrönn sparkar okkur af stað.
45. mín
G/N leiða í hálfleik
0-1 í hálfleik. Myndi segja að G/N leiða nokkuð sanngjarnt í hálfleik.

Þær hafa átt hættulegri færi og upphlaup. Eyjakonur hafa samt sem áður átt ágætis sóknir inn á milli.
45. mín
Olga vinnur aukaspyrnu uppi vinstri megin. Fín fyrirgjafastaða. ÍBV náði ekki að gera sér mat úr þessu og G/N koma boltanum í burtu.
45. mín
+3 í uppbótartímma.
44. mín
HÆTTA INN Á TEIG ÍBV!
Maci með hornspyrnuna fyrir G/N sem er stórhættuleg og þær eru nálægt því að pota boltanum inn en Eyjakonur koma boltanum fram.
44. mín
Sophia enn og aftur komin á hlaupinu upp vinstri megin en Ragna sara gerir vel á móti henni og kemur boltanum í horn.
ÍBV
41. mín
Gult spjald

Olga Sevcova

Sá ekki almennilega hvað gerðist þarna. En Emma Fanndal liggur eftir, eftir viðskipti við hana. Mér sýndist hún nú ekki gera mikið.
39. mín
Sophia keyrir upp vinstri vænginn enn og aftur og reynir að komast fram hjá Rögnu Söru, sem gerir virkilega vel og kemur boltanum aftur fyrir.
37. mín
Kristín Klara með fyrirgjöf frá hægri vængnum en Allison Clark nær ekki til boltans.
Grindavík/Njarðvík
36. mín
G/N eru komnar yfir!!

Natasha Moraa Anasi

Sýndist þetta var Narasha á endanum. En eftir mikinn darraðardans inn á teig ÍBV eftir hornspyrnu nær hún að pota boltanum inn!
34. mín
Maci með hornspyrnu fyrir G/N og Emma Nicole nær skallanum en Arden er alveg með þetta og handsamar boltann.
33. mín
Hildur Katrín nálægt því að sleppa ein í gegn en Avery kemur boltanum í burtu á ögurstundu.
32. mín
Magdalena reynir aftur skotið af löngu færi en núna fer boltinn hátt yfir markið.
31. mín
KRISTÍN KLARA í færi!
Olga kemur boltanum á Kristínu Klöru sem er staðsett rétt fyrir utan markteignhornið. Færið er svolítið þröngt og skotið ratar ekki á markið.
30. mín
Clark kom með frábæran bolta inn fyrir á Olgu sem keyrir enn og aftur inn á teiginn í leit að skotfæri. Skotið hennar fer í varnarmann og dettur fyrir Magdalenu sem tekur bara skotið utan velli. Lauren í marki G/N rétt nær að blaka boltanum yfir.
27. mín
G/N enn og aftur í færi
Maci keyrir upp með boltann og kemur honum á Sophie, vinstra megin. Hún er ein gegn Rögnu Söru og kemst framhjá henni og nær skotinu en það er hátt yfir.
26. mín
Maci með skot fyrir utan teig en það fór langt fyrir markið.
26. mín
Eyjakonur í færi
Kristín Klara vinnur boltann af Sophie og boltinn dettur fyrir Allison Clark. Hún kemur boltanum aftur út á Kristín Klöru sem á mjög flotta fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Olga er hársbreidd frá því að ná til boltans. En boltinn í gegnum allan pakkann og G/N ná að hreinsa.
24. mín
ÚFF þarna munaði litlu
Ása Björg með flottan sprett upp hægra megin og kemur með boltann inn á teig ÍBV beint á Maci sem nær ekki alveg nógu góðu skoti og frekar auðvelt fyrir Arden í marki ÍBV.
23. mín
Gott spil hjá G/N. Hildur Katrín kemur svo með boltann út á Sophie sem tekur skotið en það fer af varnarmanni og til Arden.
21. mín
Lítið að frétta þessa stundina.
17. mín
Eyjakonur vilja víti!!
Frábærlega spilað hjá ÍBV sem endar á að Olga fær boltann úti vinstra megin. Olga nær skotinu en það fer í varnarmenn. ÍBV vildi meina að boltinn hafi farið í höndina á varnarmanni G/N.
14. mín
Olga tók spynuna sjálf en G/N náðu að koma boltanum í burtu. Þær geystust svo upp í sókn og Hildur Katrín var nálægt því að vera ein í gegn en Edda Dögg með frábæran varnarleik nær að koma boltanum í horn.
13. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á fínum stað úti vinstri megin. Brotið á Olgu.
12. mín
Ása með fína skot tilraun. Fékk boltann úti hægra megin og keyrði inn á teiginn og tók skotið með vinstri en það er fram hjá.
ÍBV
10. mín
Gult spjald

Jón Ólafur Daníelsson

9. mín
Sophia reynir að stinga boltanum inn á Ásu Björg en Sandra gerir vel í vörn ÍBV og er fyrst á boltann.
7. mín
Færi hjá G/N!!
Sophia fékk boltann úti vinstra megin og kom með boltann inn á teiginn en Lily Anna nær ekki nógu góðu skoti. Boltinn endar svo hjá Ásu Björg sem nær skotinu en það er nokkuð langt fram hjá
5. mín
G/N heldur nokkuð vel í boltann hérna á upphafsmínútunum.
1. mín
DAUÐAFÆRI
Kemur langur bolti inn fyrir vörn ÍBV og Ragna Sara misreiknar sig eitthvað og missir af boltanum. Sophia er allt í einu komin upp að endalínu og kemur með fyrirgjöf en Ása Björg rétt missir af honum!

1. mín
Leikurinn er farinn af stað!

Gestirnir starta þessu og leika í átt að Týssvelli!
Fyrir leik
Jóhann Fjalar spáir markasúpu
ÍBV 3 - 3 Grindavík/Njarðvík
Massa spennandi leikur. Nýliðaslagur af bestu gerð. Bæði lið byrjað mótið frábærlega, og þessi leikur verður veisla ef allar eru með. Verður skemmtilegasti leikur umferðarinnar þar sem mörkin flæða. Ef Lowry er með setur hún tvennu og Olga með 1. Farkas neglir í þrennu.

Fyrir leik
Velkomin til Eyja!
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá Hásteinsvelli i Vestmannaeyjum. Klukkan 16:00 hefst viðureign ÍBV og Grindavíkur/Njarðvíkur í sjöttu umferð Bestu deildar kvenna.

Um nýliðaslag er að ræða þar sem bæði lið fóru upp úr Lengjudeildinni í fyrra.

ÍBV er með tólf stig í 2. sæti deildarinnar en gestirnir sitja í 5. sætinu með sjö stig.
Mynd: ÍBV

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.