Fotbolti.net
Ívar Björgvinsson
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
1 - 3
Afturelding
Afturelding
0 - 120' Joacim Emil Godhei Holtan0 - 245' Aron Elí SævarssonRafael Alexandre Romao Victor 56'1 - 21 - 362' Óðinn Bjarkason
Dómari: Róbert Þór Guðmundsson
Leik lokið!
Mjög fjörugum leik hér lokið. Afturelding fyrsta liðið sem sigrar Grindavík í deildinni í ár.

Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.

Ég þakka kærlega fyrir mig.
Afturelding
90. mín
InnAri Hrafn Haraldsson
ÚtJoacim Emil Godhei Holtan
Ari Hrafn kemur inn á í sínum öðrum leik á tímabilinu. Fæddur árið 2011 þessi kappi!
90. mín
Róbert gefur merki um þrjár mínútur í uppbótartíma.
87. mín
Bjartur með skot á mitt markið úr fínu færi. Enn sækja Aftureldingarmenn og enn ver Blakala.

grindvíkingar komast lítið fram á völlinn þessa stundina.
85. mín
DAUÐAFÆRI!!!
Boltinn hrekkur á Enes sem er með risa pláss inni í miðjum teignum en einhvern veginn setur boltann framhjá markinu.

Hefði getað gert endanlega út um leikinn.
84. mín
Bjartur reynir bakfallspyrnu en hittir hann ekki nægilega vel.
Afturelding
83. mín
Gult spjald

Trausti Þráinsson

Brýtur á Haraldi og enn eitt gula spjaldið lítur dagsins ljós.
81. mín
ENN MEIRI DARRAÐADANS
Afturelding sækir enn og boltinn endar í stönginni og Rafael Victor hreinsar aftur fyrir í horn.
80. mín
DARRAÐADANS Í TEIGNUM
Bart enn og aftur með frábæra sendingu sem endar hjá Óðni sem setur boltann hátt upp í loft en nær frákastinu sem Blakala ver.
80. mín
Tíu mínútur eftir á klukkunni og Grindvíkingar farnir að færa sig framar á völlinn.
Grindavík
76. mín
InnLúkas Nói Tómasson
ÚtValur Þór Hákonarson
Lúkas Nói að fá sínar fyrstu mínútur í Lengjudeildinni í ár.
75. mín
Trausti keyrir inn á teiginn og kemur með góða sendingu á Holtan sem nær skoti sem Blakala ver.
Grindavík
73. mín
Gult spjald

Christian Bjarmi Alexandersson

Christian missir boltann á kantinum og togar Holtan niður og hlýtur réttilega gult spjald.
73. mín
Lárus Orri með góða spyrnu inn á teiginn en hreinsað frá.
70. mín
Óðinn með skot sem endar í varnarmanni og boltinn berst til Barts sem lætur vaða en Blakala ver.
69. mín
Afturelding meira með boltann þessa stundina.
64. mín
Bæði lið gera tvöfalda breytingu.
Grindavík
64. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtEysteinn Rúnarsson
Grindavík
64. mín
InnGunnleifur Orri Gunnleifsson
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
Afturelding
64. mín
InnTrausti Þráinsson
ÚtRóbert Agnar Daðason
Afturelding
64. mín
InnEnes Þór Enesson Cogic
ÚtJón Vignir Pétursson
Afturelding
62. mín
SLÆM MISTÖK HEIMAMANNA

Óðinn Bjarkason

Heiðar Snær með misheppnaða sendingu niður á Blakala sem Óðinn kemst inn í og aftur kominn tveggja marka munur.

Mjög dýr mistök og róðurinn orðinn þungur fyrir Grindvíkinga.
60. mín
Grindavík fær hornspyrnu. Þeir hafa tekið völdin eftir sterka byrjun Aftureldingar í síðari hálfleik.

Hálftími eftir.
Grindavík
56. mín
VIÐ ERUM MEÐ LEIK!!

Rafael Alexandre Romao Victor (stoðsending: Christian Bjarmi Alexandersson)

Frábær fyrirgjöf Christians af vinstri kantinum sem Rafael skallar í gagnstætt horn og skorar þetta mikilvæga þriðja mark.

Áhugavert að sjá hvernig næstu mínútur þróast.
55. mín
FRÁBÆR MARKVARSLA
Rúnar Ingi með skalla af fjærstönginni inni í markteignum en hröð viðrbögð Arnars koma í veg fyrir mark.
52. mín
HOLTAN!!
Bart með frábæra sendingu inn fyrir á Holtan sem setur boltann í stöngina. Afturelding byrja þann seinni af krafti.
50. mín
Jón Vignir tekur spyrnuna og kemur með fyrirgjöf sem Grindvíkingar hreinsa frá.
49. mín
Róbert sækir aukaspyrnu fyrir Aftureldingu á hættumlegum stað.
Grindavík
48. mín
Gult spjald

Damir Muminovic

Damir keyrir mjög hressilega í bakið á Joacim Holtan og gult spjald niðurstaðan.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað.
Grindavík
46. mín
InnViktor Guðberg Hauksson
ÚtArnór Gauti Úlfarsson
Ein breyting hér í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Staðan 0 - 2 í hálfleik þrátt fyrir fína spilamennsku Grindvíkinga.

Tökum okkur 15 og komum aftur í seinni.
Afturelding
45. mín
FLAUTUMARK!!!

Aron Elí Sævarsson (stoðsending: Jón Vignir Pétursson)

Klafs í teignum eftir góða hornspyrnu Jóns sem endar fyrir framan Aron sem klárar af miklu öryggi inni í teignum.
45. mín
Christian missir boltann aftarlega á vellinum og boltinn endar hjá Óðni sem kiksar boltann í kjörstöðu og Grindvíkingar sleppa með skrekkinn.
45. mín
Hiti á milli þjálfaranna!
Ingi liggur eftir á vellinum og Ray Anthony og Maggi virðast báðir hafa sterka skoðun á því hvað átti sér stað.
43. mín
Styttist í hálfleikinn og þetta hefur aðeins róast síðustu mínúturnar.
Grindavík
39. mín
Óþarfa gult spjald

Valur Þór Hákonarson

Valur togar Óðin niður langt frá marki og með fjóra Grindvíkinga fyrir aftan sig.
36. mín
BLAKALA VER!!
Hornspyrna niðri á nær sem Holtan laumar á nærstöngina en Blakala á tánum og ver þetta.
34. mín
Bjartur!
Bjartur Bjarmi með skot rétt fyrir utan teiginn sem Blakala ver
32. mín
Afturelding fær tvær hornspyrnur í röð og að lokum hreinsa Grindvíkingar.
29. mín
Birkir Már með vinstri fótar skot sem endar víðsfjarri markrammanum.
28. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er Grindvíkinga.
27. mín
Grindvíkingar hafa nú haldið mun meira í boltann eftir mark Aftureldingar.
24. mín
Dauðafæri!!!
Enn sækja Grindvíkingar!

Frábær sending fyrir markið í átt að Inga á fjærsvæðinu en Birkir Már bjargar þessu aftur fyrir endamörk.
Afturelding
20. mín
Fyrsta markið komið!!!

Joacim Emil Godhei Holtan

Bolti fyrir markið sem hrekkur af Christian á fjærsvæðinu og beint fyrir lappirnar á Joacim Holtan.

Fjörugar fyrstu 20 mínutarnar!
17. mín
Mosfellingar halda enn mikið í boltann en hafa ekkert komist áleiðis á meðan Grindvíkingar hafa fengið nokkrar álitlegar stöður.
Grindavík
13. mín
Fyrsta gula spjald leiksins komið í hús

Eysteinn Rúnarsson

Eysteinn togar Bart Kooistra niður á miðjum velli og uppsker gult spjald.
10. mín
Afturelding hefur haldið mikið í boltann hér fyrstu 10 mínútur leiksins á meðan Grindvíkingar verjast þéttir.
7. mín
Afturelding að bjóða hættunni heim
Fyrsta færið er heimamanna eftir mistök hjá Aftureldingarmönnum aftarlega á vellinum.
1. mín
Leikur hafinn
Ballið byrjað!
Róbert Þór dómari leiksins búinn að flauta þetta af stað.
Afturelding
Fyrir leik
InnRóbert Agnar Daðason
ÚtElmar Kári Enesson Cogic
Breyting á liði Aftureldingar fyrir leik
Róbert Agnar Daðason kemur inn í liðið fyrir Elmar Kára sem virðist hafa meiðst í upphitun.
Fyrir leik
Stemning í fjölmiðlaboxinu
Sit hér í fjölmiðlaboxinu með lýsanda Livey, honum Guðjóni Þorsteinssyni, og gaman að segja frá því að með honum í útsendingunni er enginn annar en Daði Berg leikmaður Víkings R sem sérfræðingur dagsins.
Fyrir leik
Axel í hóp hjá Aftureldingu
Axel Óskar er á bekknum eftir að hafa lent í þungu samstuði í seinustu umferð. Hann fór út af með höfuðáverka og óljóst var hvort hann yrði leikfær í dag.

Hann sést hér í dag með miklar umbúðir um höfuðið svo það verður áhugavert að sjá hvort hann komi inná hér í dag þar sem hann er klárlega lykilmaður liðsins.
Fyrir leik
Velkomin á Stakkavíkurvöllinn!
Leikur Grindavíkur gegn Aftureldingu bíður okkar þar sem taplausir heimamenn taka á móti heitum Mosfellingum.

Með sigri heimamanna fara þeir upp fyrir Aftureldingarmenn á meðan sigur lærisveina Magga þýðir að þeir haldi sér vel inni í toppbaráttunni.


Grindavík hefur einungis unnið einn af fyrstu fimm leikjum sínum og gert fjögur jafntefli á meðan Afturelding hefur unnið þrjá leiki í röð í deildinni eftir brösuga byrjun í fyrstu tveimur leikjunum.


Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.