Leik lokið!
94. mín
Þóra María skýtur rétt framhjá og við það flautar dómarinn leikinn af!
90. mín
a.m.k 3 mínútur í uppbótartíma
85. mín
InnÞóra María Hjaltadóttir
ÚtÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
85. mín
InnHrafnhildur K. Kristleifsdóttir
ÚtAllison Patricia Clark
85. mín
InnHrefna Jónsdóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
Markaskorarinn tekinn beint út af
85. mín
MAAAARK!
Snædís María Jörundsdóttir (stoðsending: Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir)
Úlfa fær hann og setur hann fyrir þar sem Snædís rennir sér á boltann og setur hann snyrtilega stöngin inn framhjá Guðnýju í markinu84. mín

82. mín
Gult spjald
Sandra Voitane
Gerir vel í að stoppa skyndisókn80. mín
Guðnýýý!
Aníta með frábært skot sem Guðný þarf að hafa sig alla við að verja en sú er að eiga góðan leik í markinu í dag!
79. mín
Anna María með frábæra tæklingu kemur í veg fyrir að Milena kæmist á ferðina
77. mín
Sandra!
Sandra Voitane rennir sér fyrir Snædísi á síðustu sekúndu en hún var sloppin í gegn og átti bara eftir að leggja hann í netið
72. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtAndrea Mist Pálsdóttir
72. mín
InnTanja Harðardóttir
ÚtRagna Sara Magnúsdóttir
71. mín
Sandra Voitane finnur Vikoriju í frábærri stöðu en framhjá markinu hjá henni
70. mín
Litla sóknin hjá ÍBV, voru komnar í frábæra stöðu, Magdalena gerir vel í að halda boltanum inn á vellinum klobbar svo Telmu og kemur með góðan bolta fyrir, þær ná hins vegar ekki að vera nógu fljótar að athafna sig og Allison Clarck setur svo boltann hátt yfir markið
62. mín
InnAníta Ýr Þorvaldsdóttir
ÚtFanney Lísa Jóhannesdóttir
62. mín
InnHulda Hrund Arnarsdóttir
ÚtBirna Jóhannsdóttir
58. mín
InnMilena Mihaela Patru
ÚtErla Hrönn Unnarsdóttir
Unglingur inn fyrir ungling, þær eru báðar fæddar 2011! Ótrúlega efnilegar báðar tvær
58. mín
Allison gerir vel og á hælsendingu inn á Kristínu Klöru sem á svo flotta fyrirgjöf en ÍBV konur ekki nógu grimmar
56. mín
Held að þetta sé fyrsta skotið sem Bridgette þarf að verja hjá Stjörnunni en Þóra Björg á fínast skot
54. mín
ÍBV konur hafa aðeins fært sig ofar en þær hafa ekki náð að slútta í sínum sóknum, Jakobína og Anna María stýra vörninni vel
48. mín
Loksins komið mark í þennan leik!
Fanney Lísa Jóhannesdóttir (stoðsending: Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir)
Úlfa Dís þræðir sig í gegn setur hann svo út í teiginn á Fanney Lísu sem tekur þrumuskot á markið sem Guðný ver inn48. mín

Myndir úr leiknum

46. mín
Snædís María sparkar seinni hálfleiknum af stað
45. mín
Hálfleikur
0-0 hér í hálfleik,
ÍBV líklega bara sáttar en Stjörnukonur hljóta að vera vonsviknar að hafa ekki náð að setja inn mörk.
Guðný Geirs hefur hins vegar verið frábær í marki ÍBV í dag!
ÍBV líklega bara sáttar en Stjörnukonur hljóta að vera vonsviknar að hafa ekki náð að setja inn mörk.
Guðný Geirs hefur hins vegar verið frábær í marki ÍBV í dag!
45. mín
ein mínúta a.m.k í uppbótartíma
43. mín
Andrea með enn eitt hornið Telma nær að setja hausinn í þetta en nær ekki að stýra boltanum á markið
42. mín
Kristín Klara virðist hafa verið sett á Úlfu Dís bara og hún er að gera vel í dag að taka hana alveg út úr leiknum hreinlega, hirðir hér af henni boltan
Úlfa hefur lítið sést í dag
Úlfa hefur lítið sést í dag
40. mín
Fanney Lísa í kapphlaupi við Magdalenu en setur svo boltann yfir og framhjá merkinu úr mjög þröngri stöðu
38. mín
Stjörnukonur búnar að skipta upp í 3. gír
Snædís María komin ein í gegn, Guðný hins vegar ver og svo fer flaggið réttilega á loft
37. mín
Ekki galið!
Fanney Lísa með hörkuskot en sem fyrr er Guðný á réttum stað og tekur þetta
36. mín
Guðný!
Andrea Mist svo komin í hörkufæri lætur vaða en Guðný ver þetta frábærlega!
35. mín
ÚFFFF
Langhættulegasta færi Stjörnunar hér! Úlfa Dís þræðir sig í gegn um teiginn er við endalínuna og rennir honum út á Snædísi en setur hann í Avery 4 metra frá markinu
32. mín
Ingibjörg brýtur á Kristínu Klöru við vítateiginn, Guðný setur þetta fram á við
27. mín
Sandra Voitane brýtur upp við endalínu, Úlfa tekur spyrnuna en Guðný grípur þetta
24. mín
ÍBV reyna að spila og stinga en það er greinilegt að þær sakna Olgu og Allison Lowrey mikið, vantar hraðann sem þær eru þekktar fyrir í efstu línu
19. mín
Allison Clark keyrir með boltann og skilur Jakobínu eftir í reyk, hún liggur hér svo eftir
Stjörnukonur eru fljótar að bakka og Allison nær ekki að gera sér neitt úr þessu
Stjörnukonur eru fljótar að bakka og Allison nær ekki að gera sér neitt úr þessu
17. mín
Snædís sækir horn fyrir Stjörnuna, Andrea spyrnir þessu við fjærstöngina en enginn nægilega grimmur til að setja skrokkinn í boltann
15. mín
Andrea með hornið en það fer yfir allan pakkann og út fyrir endalínu
14. mín
Stjörnukonur koma hér fjórar gegn þremur en Sandra Voitane gerir vel og kemst í boltann hjá Andreu
10. mín
ÓMÆGAAAAD
Andrea Mist Pálsdóttir
Guðný ver spyrnuna! og nær svo á einhvern ótrúlegan hátt að verja líka frákastið sem var á leið inn í samskeytin hreinlega9. mín
VÍTI!
Avery fær boltann í hendina inn í vítateig
8. mín
Guðný!
Fanney Lís með lúmska fyrirgjöf en Guðný er fyrst á boltann og kemur í veg fyrir stórhættulega sókn
7. mín
Andrea Mist tekur horn fyrir Stjörnuna, tekur þetta rosalega stutt á Úlfu en það voru allir á vellinum búnir að lesa þetta í gær bara
5. mín
Úlfa Dís finnur Fanney Lísu í teignum en hún setur boltann yfir
3. mín
Frábær bolti frá Allison Clark yfir varnarlínuna og í hornið á Kristínu Klöru sem nær svo fyrirgjöfinni en Stjörnukonur vel vakandi
1. mín
Leikur hafinn
Erla Hrönn sparkar þessu af stað fyrir ÍBV
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast
Liðin eru komin inn á völlinn,
Stjarnan bláar og hvítar og ÍBV alveg hvítar. Allt hefðbundið í dag bara
Let's go!
Stjarnan bláar og hvítar og ÍBV alveg hvítar. Allt hefðbundið í dag bara
Let's go!
Fyrir leik
Ungir leikmenn á bekkjunum í dag
Rosalegt að sjá meðalaldurinn á bekkjunum hjá liðinum í dag!
Hjá ÍBV er meðaldurinn hvorki meira né minna en 16 ár! Þær hafa hreinsað 3. flokkinn í eyjum til að koma með hér í dag.
Hjá Stjörnunni er meðalaldurinn 19 ár eða svona eins og góður 2. flokkur!

Byrjunarliðin klár!
Stjarnan
Óskar Smári þjálfari Stjörnunnar heldur sig við sama byrjunarlið og í 0-1 sigrinum gegn Þrótti í síðustu umferð.
ÍBV
Jón Óli þjálfari ÍBV neyðist til að gera breytingu á sínu liði þar sem Olga Sevcova var dæmd í leikbann fyrir ljótt olnbogaskot á dögunum, inn fyrir hana kemur Þóra Björg.

Arnar Páll spáir í 7. umferðina
Fótboltaþjálfarinn Arnar Páll Garðarsson tekur að sér það verkefni að spá í leikina.
Stjarnan 3 - 0 ÍBV
Tvö lið sem vilja ekki stjórna leikjum og því verður athyglisvert að sjá hvernig leikurinn spilast. Engin Embla, Allison og Olga gera það hinsvegar að verkum að ÍBV á ekki séns i þennan leik. Það kviknar á Úlfu og Snædís heldur áfram að spila vel. 3-0 sigur Stjörnunnar, clean sheet og mark úr föstu leikatriði og Óskar Smári talar um að þær gæti unnið Barcelona eftir leik.

ÍBV konur sitja í 3. sæti með 13 stig, jafnmörg stig og FH í 2. sætinu en með lakari markatölu. Þá eru þær ekki nema 2 stigum á eftir toppliði Breiðabliks.
ÍBV hefur byrjað þetta mót frábærlega og tóku 5 sigra í röð í deild og bikar áður en FH náði að stöðva sigurgönguna með 3-0 sigri. Þær gerðu svo vel í síðasta leik þegar þær skoruðu í uppbótartíma gegn Grindavík/Njarðvík og náðu að stela einu stigi!
Breiddin hjá ÍBV hefur verið lítil og þær hafa verið óheppnar með að missa lykil leikmenn í meiðsli það sem af er en Fredrikka Clementsen, Embla og Allison Lowrey eru allar meiddar. Það hefur verið þétt spilað og ÍBV konur verða eflaust fegnar að komast í smá hvíld þegar landsleikjahléið skellur á!
Þá var Olga Sevcova dæmd í tveggja leikja bann á dögunum fyrir olnbogaskot. Það eru því stórir póstar sem ekki eru með í dag en þær gera 100% atlögu að sigri hér í dag og eru væntanlega til í að klára allt sem eftir er á tankinum til að sækja stigin þrjú!

Stjörnukonur sitja fyrir leikinn í 5. sæti með 8 stig líkt og Grindavík/Njarðvík í 6 sætinu en hafa betri markatölu.
Stjörnukonur koma inn í þennan leik eftir sterkan 0-1 sigur á Þrótti á útivelli í síðustu umferð, þar sem Eva Marie Wirtz skoraði eina mark leiksins.
Stjarnan er á ágætist siglingu en þær náðu í 1-1 jafntefli gegn Grindavík/Njarðvík og sigruðu svo Þór/KA í Mjólkurbikarnum 1-4.
Þær vilja því eflaust halda áfram að tengja góða frammistöðu og sækja stigin þrjú hér á heimavelli fyrir landsleikjahléið!

7. umferðin
Einn leikur var spilaður í gær en umferðin klárast svo með 4 leikjum í dag, sem allir eru spilaðir klukkan 14:00
7. umferðin lítur þá svona út:
Í gær:
Valur 0 - 1 Þróttur
Í dag:
14:00 Grindavík/Njarðvík-Breiðablik
14:00 FH-Fram
14:00 Þór/KA-Víkingur R.
14:00 Stjarnan-ÍBV

7. umferðin lítur þá svona út:
Í gær:
Valur 0 - 1 Þróttur
Í dag:
14:00 Grindavík/Njarðvík-Breiðablik
14:00 FH-Fram
14:00 Þór/KA-Víkingur R.
14:00 Stjarnan-ÍBV

Fyrir leik
Dómarateymi dagsins
Á flautunni í dag verður Gunnar Oddur Hafliðason og honum til halds og trausts verða Jón Reynir Reynisson og Jovan Subic aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Breki Sigurðsson

Fjórði dómari er Breki Sigurðsson

Fyrir leik
Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Samsungvellinum þar sem Stjarnan tekur á móti ÍBV í 7. umferð Bestu deildarinnar
Leikurinn hefst á slaginu 14:00!

Leikurinn hefst á slaginu 14:00!

Sanngjarn sigur og hefðu hæglega geta sett fleiri mörk!
Takk fyrir samfylgdina!
Viðtöl og Skýrsla kemur inn síðar í dag