Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurður Bibbi
Besta kvenna
VÍS völlurinn
5 stiga hiti og rigning í upphafi en stytti fljótlega upp
Þór/KA
Þór/KA
4 - 6
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 11' Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir0 - 223' Freyja Stefánsdóttir0 - 327' Jasmín Erla Ingadóttir0 - 431' Freyja StefánsdóttirArna Sif Ásgrímsdóttir 59'1 - 41 - 561' Dagný Rún Pétursdóttir1 - 666' Jóhanna Elín HalldórsdóttirKaren María Sigurgeirsdóttir 72'2 - 6Aníta Ingvarsdóttir 74'3 - 6Emelía Ósk Kruger 87'4 - 6
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Áhorfendur: 65
Leik lokið!
4 - 6 sigur Víkinga á Akureyri
Viðtöl og skýrsla á eftir
93. mín
Horn - Víkingur
Horn frá hægri. Þórhildur tekur á fjær og brot dæmt.
90. mín
Viðbótartími 3 mín
Þór/KA
87. mín
Horn Þór/KA

Emelía Ósk Kruger

Horn frá hægri. Karen tekur langt á Karen Huldu sem skallar að marki. Víkingar bjarga frá en beint fyrir fætur Emelíu sem hamrar boltanum í gegnum þvöguna í markið.

Þetta er orðinn 10 marka leikur
Þór/KA
85. mín
InnEmelía Blöndal Ásgeirsdóttir
ÚtMaría Dögg Jóhannesdóttir
Skipting hjá heimalið
Víkingur R.
84. mín
InnCamilly Kristal Silva Da Rocha
ÚtÍsfold Marý Sigtryggsdóttir
Skipting hjá gestunum
79. mín
Hálffæri
Arna lætur boltann fara yfir sig en Allie er á línunni. Elísa Birta áttar sig aðeins of seint og Allie hirðir boltann af tánum á henni
77. mín
Horn - Víkingar
Horn frá vinstri. Birta snýr boltann að marki og Allie grípur
Þór/KA
74. mín
Fyrsta markið í Bestu

Aníta Ingvarsdóttir (stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir )

Hulda komst upp að endalínu og sendi fyrir, boltinn fer af Anítu og í netið. Fyrsta mark hennar í Bestu deildinni!
Víkingur R.
72. mín
InnÞórhildur Þórhallsdóttir
ÚtÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Víkingar skipta
Þór/KA
72. mín
Stöngin inn

Karen María Sigurgeirsdóttir

Hulda Ósk kemst upp hægra megin og kemur boltanum fyrir markið þar sem Karen stangar boltann í stöngina og inn.
Þór/KA
67. mín
InnEmelía Ósk Kruger
ÚtHildur Anna Birgisdóttir
Skipting
Víkingur R.
66. mín
Klaufalegt

Jóhanna Elín Halldórsdóttir

Jóhanna fær góða sendingu upp hægri kantinn og hún lætur vaða á nærstöngina þar sem Allie ver en missir boltann rétt inn fyrir og línuvörðurinn flaggar mark
Víkingur R.
61. mín
Svarað um hæl

Dagný Rún Pétursdóttir

Víkingar bruna upp eftir miðjuna og Helena sendir á Dagnýju svarar fyrir markið.
Þór/KA
59. mín
Dauðafæri Þór/KA - horn og mark

Arna Sif Ásgrímsdóttir

Amalía fær góða sendingu frá Huldu Ósk sem varnarmenn Víkings komast fyrir. Þór/KA fær horn og Hildur tekur á fjær þar sem Arna skorar
Þór/KA
57. mín
InnAníta Ingvarsdóttir
ÚtErin Flurey
skipting
Víkingur R.
57. mín
InnJóhanna Elín Halldórsdóttir
ÚtEmma Steinsen Jónsdóttir
Tvöföld skiptin víkinga
Víkingur R.
57. mín
InnHelena Ósk Hálfdánardóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
Tvöföld skiptin víkinga
56. mín
Horn - Þór/K HiA
Horn frá vinstri.Hildur tekur og sendir inn í markteig en hreinsað frá
52. mín
Horn - Víkingar
Horn frá vinstri sem Freyja tekur. Snýr boltann að markinu en dæmt brot á markmanninum.
50. mín
Barátta
Heimastúlkur mun baráttuglaðari í byrjun seinni hálfleiks en í þeim fyrri
46. mín
Leikur hafinn
Þór/KA
46. mín
InnAmalía Árnadóttir
ÚtAgnes Birta Stefánsdóttir
Tvöföld skipting í hálfleik hjá Þór/KA
Þór/KA
46. mín
InnAngela Mary Helgadóttir
ÚtBríet Jóhannsdóttir
Tvöföld skipting í hálfleik hjá Þór/KA
45. mín
Hálfleikur
0 - 4 í hálfleik
Víkingar enduðu hálfleikinn á því að Dagný lagði boltann út á Jasmín sem átti skot beint á markmanninn.
44. mín
Horn - Þór/KA
Erin á stungusendingu á Margréti sem á skot en varið í horn. Hornið tekið á fjær af Hildi og boltinn endar svo í markinu en rangstaða
41. mín
Horn - Víkingar
Þórdís fær boltann upp vinstri kantinn og vinnur horn. Þórdís tekur á fjær, fær boltann tíaðan upp fyrir sig og setur hann í slána.
39. mín
Horn - Þór/KA
Fyrsta horn heimastúlkna kemur á 39. mínútu. Það segir ansi mikið um leikinn. Boltinn kemur á fjær þar sem María kemur honum aftur fyrir en Víkingar koma boltanum í burtu
Víkingur R.
31. mín
Hröð sókjn 0 - 4

Freyja Stefánsdóttir

Þórdís lendir í vandræðum vinstra megin en nær að spila boltanum þvert yfir völlinn á Ísfold sem sendir hann beint fram hægri kantinn á Dagnýju sem leggur hann fyrir Freyju sem sendir boltann auðveldlega í markið.
Víkingur R.
27. mín
Horn - Víkingur

Jasmín Erla Ingadóttir

Horn frá vinstri sem Bergþóra tekur á fjær. Þar er boltanum komið aftur fyrir markið og þar rís Jasmin hæst og skallar í markið.
24. mín
Færi - Þór/KA
Hildur fær sendingu inn í teig og á skot sem Elizabeth ver.
Víkingur R.
23. mín
Freyja fær stungusendingu 0 - 2

Freyja Stefánsdóttir

Víkingar vinna boltann rétt framan við eigin vítateig og senda boltann inn fyrir þar sem Freyja stingur varnarmenn af og kemst upp að markteig og sendir boltann örugglega í fjærhornið
22. mín
Skot - Víkingar
Víkingar miklu grimmari í alla bolta og vinna hann tvisvar á hægri kantinum. Boltinn endar fyrir fótunum á Þórdísi sem lætur vaða yfir
20. mín
Horn x 2 - Víkingur
Þórdís tekur hornið frá hægri og enn og aftur snýr hún boltann inn og fær annað horn. Hún sendir núna boltann í átt að vítapunktinum þar sem Freyja hittir hann ekki með höfðinu. Boltinn berst svo aftur inn í teig og Þór/KA á í brasi með að hreinsa en tekst fyrir rest
19. mín
Skot - Víkingur
Jasmin á skot utan teigs sem Allie ver.
17. mín
Geggjuð björgun og skot Þór/KA
Hulda Ósk eltir boltann út að hliðarlínu rennir sér og stoppar hann þar sem hann rétt lafir yfir hliðarlínu og Víkingar vilja innkast. Fá ekki en stoppa. Hulda leikur auðveldlega framhjá þeim og á skot á nærstöng sem Elizabeth ver.
13. mín
Dauðafæri Þór/KA
Hulda Ósk kemst upp hægra megin og tekur varnarmann á og á góða fyrirgjöf þar sem Hildur mætir og flugskallar boltann framhjá.
12. mín
Færi
Dagný kemst upp vinstri kant og leggur boltann út í teig en Þór/KA kemur hættunni frá
10. mín
Aukaspyrna Víkingur
Bergþóra reynir skot en langt yfir.
9. mín
Horn - Víkingur
Horn frá hægri. Þórdís snýr boltann að marki en aftur skalla Þór/KA frá. Brjóta svo af sér rétt utan teigs
8. mín
Horn - Víkingur
Horn frá vinstri sem Bergþóra snýr að markinu en skallað frá og Þór/KA losar pressuna. Víkingar vinna boltann og fá aftur horn
7. mín
Horn - Víkingar
Horn frá hægri sem Þórdís tekur. Hún snýr boltann inn að markinu en Þór/KA bægir hættunni frá
6. mín
Færi Þór/KA
Hildur kemst upp vinstri kantinn og leggur hann fyrir á nærstöngina þar sem Hulda Ósk kemur en skotið varið.
Þór/KA
4. mín
Brot

Agnes Birta Stefánsdóttir

Ekkert varð úr aukaspyrnunni
3. mín
Færi - Vikingur
Freyja fær sendingu upp völlinn úr vörninni og stingur sér inn fyrir en á skot í hliðarnetið
Víkingur R.
1. mín
Mark 20 sek

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Þetta var snöggt. Dagný fékk boltann upp hægri kantinn eftir miðjuna og sendi fyrir þar sem Þórdís stýrði boltanum snyrtilega upp í fjærhornið yfir Allie
Fyrir leik
Leikur hafinn
Víkingar byrja
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Þór/KA gerir tvær breytingar frá tapleiknum í Úlfarsárdal. Karen Hulda og Hildur Anna koma inn í byrjunarlið en þær Amalía Árna og Elísa Bríet fara á bekkinn.

Víkingar gera líka breytingu eftir að hafa tapað á heimavelli gegn Val. Freyja Stefáns kemur inn fyrir Bergdísi sem er ekki í hóp í dag.
Fyrir leik
Veður
Veðurguðirnir eru ekki knattspyrnunni hliðhollir í dag. Hér er 5 stiga hiti og rigning. Gámurinn sem skíbentum er boðið að dvelja í á meðan leik stendur er ekki neinn "hitaskúr".
Fyrir leik
Markaskorarar
Þór/KA hefur skorað 7 mörk í sumar og hefur Margrét Árna skorað þrjú þeirra, tvö komu frá Erin Flurey og Amalía Árna er með eitt stykki. Þessar þrjár hafa séð um þetta auk sjálfsmarks.

Hjá Víking hafa fjórar stelpur séð um að skora 8 mörk. Jasmín Erla hefur sett þrjú, Freydís hefur sett tvö, og Dagný og Bergdís sitt hvort markið. Eitt sjálfsmark hafa Víkingarnir fengið eins og Þór/KA.
Fyrir leik
Innbyrðis
Þór/KA hefur unnið fjóra leiki en Víkingur tvo. Þetta hefur verið kaflaskipt því Þór/KA vann fyrstu tvo leikina við Víking, Víkingur næstu tvo og Þór/KA síðustu tvo.

Markatalan er 15 - 6 fyrir Þór/KA.

Fyrir leik
Staðan í deildinni
Leikur Þórs/KA gegn Víkingi í dag er mjög mikilvægur fyrir bæði lið. Heimastúlkur verða hreinlega að vinna í dag til að missa ekki liðin í næstu sætum langt upp fyrir sig.

Víkingarnir verða einnig að vinna í dag ef þær ætla sér að koma sér í efri hlutann og gera sig gildandi í sumar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.