PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
2. deild karla
Hvíti riddarinn
LL 0
2
Haukar
Lengjudeild karla
Ægir
LL 0
3
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 5
1
ÍR
Lengjudeild karla
HK
LL 2
1
Afturelding
Landslið kvenna - Undankeppni HM
Úkraína
LL 0
1
Ísland
Njarðvík
5
1
ÍR
0-1 Bergvin Fannar Helgason '8
Arnleifur Hjörleifsson '33 1-1
Hrafn Guðmundsson '44 2-1
Björn Aron Björnsson '51 3-1
Bragi Karl Bjarkason '80 4-1
Oumar Diouck '90 5-1
05.06.2026  -  19:15
JBÓ völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: ágætt veður, skýjað og vindur
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:
1. Guy Smit (m)
3. Sigurjón Már Markússon
5. Arnar Helgi Magnússon
6. Arnleifur Hjörleifsson
7. Bragi Karl Bjarkason
10. Valdimar Jóhannsson ('68)
14. Aron Einarsson
16. Hrafn Guðmundsson ('68)
18. Björn Aron Björnsson ('79)
21. Alexander Helgi Sigurðarson ('84)
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson (f) ('68)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Daði Fannar Reinhardsson (m)
2. Felix Lima Santos ('68)
9. Oumar Diouck ('68)
17. Símon Logi Thasaphong
22. Stefán Gísli Stefánsson ('79)
29. Haraldur Smári Ingason ('84)
77. Guðmundur Magnússon ('68)
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
N/A (Styrktarþj.)
Halldór Geir Heiðarsson (AÞ)
Stefán Marteinn Ólafsson (Liðsstj.)
Jaizkibel Roa Argote (MÞ)

Gul spjöld:
Stefán Gísli Stefánsson ('89)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Algjörir yfirburðir Njarðvíkur og 5-1 sigur þeirra staðreynd Njarðvík vinna risa sigur á ÍR og voru frábærir í dag.

Takk fyrir mig, skýrsla væntanleg seinna í kvöld.
92. mín
Njarðvík skora mark en það var búið að dæma rangstæðu.
90. mín MARK!
Oumar Diouck (Njarðvík)
Stoðsending: Guðmundur Magnússon
Hann er mættur!!! Gummi Magg flikkar boltanum á Oumar sem kemst í góða stöðu á hægri kantinum. Oumar leikur á Jón Arnar og kemur skoti framhjá Vilhelm sem ÍR komust næstum fyrir en boltinn endaði í netinu.
89. mín Gult spjald: Stefán Gísli Stefánsson (Njarðvík)
89. mín
Víðir Freyr með skot sem Guy ver vel.
86. mín
ÍR að ógna! ÍR fá hornspyrnu, sendinginn á fjærstöngina og aftur fyrir markið þar sem það vantaði ÍR-inga og Njarðvík ná til boltans á undan þeim og hreinsa.
84. mín
Inn:Haraldur Smári Ingason (Njarðvík) Út:Alexander Helgi Sigurðarson (Njarðvík)
83. mín
ÍR vilja hendi, víti! ÍR senda boltann fyrir úr hornspyrnu og boltinn fer í leikmann Njarðvíkur, erfitt að sjá hvort þetta sé rétt en sýnist Gunnar dómari hafa nelgt þetta.
80. mín MARK!
Bragi Karl Bjarkason (Njarðvík)
Stoðsending: Stefán Gísli Stefánsson
Bragi skorar gegn gömlu félögunum! Stefán Gísli sendir boltann á Braga úti á hægri kantinum, Bragi sækir inn á völlinn og hleður í skot í sem fer í samskeytinn. Vilhelm kom hendi á boltann en náði ekki að stoppa þetta.

Bragi fagnar ekki gegn uppeldisfélaginu.
79. mín
Inn:Stefán Gísli Stefánsson (Njarðvík) Út:Björn Aron Björnsson (Njarðvík)
75. mín
André með skot langt yfir við vítapunktinn.
73. mín
Inn:Óliver Elís Hlynsson (ÍR) Út:Sigurður Karl Gunnarsson (ÍR)
Síðasta skipting ÍR-inga.
72. mín
ÍR fá hornspyrnu eftir góða sókn Spyrnan fyrir og þar var smá darraðardans áður en Bergvin kemur með lausan skalla í slánna og yfir.
68. mín
Inn:Guðmundur Magnússon (Njarðvík) Út:Hrafn Guðmundsson (Njarðvík)
Hrafn frábær í dag með eitt mark og tvær stoðsendingar.
68. mín
Inn:Oumar Diouck (Njarðvík) Út:Valdimar Jóhannsson (Njarðvík)
68. mín
Inn:Felix Lima Santos (Njarðvík) Út:Eiður Aron Sigurbjörnsson (Njarðvík)
66. mín
Liðin skiptast á að halda boltanum, Njarðvík eru hættulegri en ÍR á boltanum og eru að finna ágætis stöður.
ÍR hafa fundið nokkrar fínar stöður en eru ekki líklegir þegar þeir fá boltann.
65. mín
Bragi með skot tilraun framhjá markinu.
59. mín Gult spjald: Kristján Atli Marteinsson (ÍR)
Njarðvík fá brot rétt fyrir utan teig ÍR, Kristján ekki sáttur með það og fær gult fyrir tuð.
57. mín
Inn:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR) Út:Halldór Atli Kristjánsson (ÍR)
56. mín
ÍR aðeins að banka! ÍR í skyndisókn og ná alla leið inn á teig Njarðvíkur þar sem þeir koma skoti að marki en Guy ver.
51. mín MARK!
Björn Aron Björnsson (Njarðvík)
Stoðsending: Hrafn Guðmundsson
Njarðvíkingar bæta við Hrafn fær boltann á miðjum vellinum og á frábæra sendingu í gegn á Björn sem er dottinn í gegn og hann lyftir boltanum létt yfir Vilhelm í markinu. Vel klárað!

ÍR-ingar alveg galopnir til baka.
46. mín
Inn:André Musa Solórzano Abed (ÍR) Út:Orri Bjarkason (ÍR)
Þreföld skipting hjá ÍR í hálfleik.
46. mín
Inn:Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR) Út:Hákon Dagur Matthíasson (ÍR)
46. mín
Inn:Guðjón Máni Magnússon (ÍR) Út:Óliver Andri Einarsson (ÍR)
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! ÍR byrja með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Njarðvík leiða í hálfleik Gunnar Oddur bætir engu við þennan skemmtilega fyrri hálfleik og Njarðvík leiða 2-1.
Tökum okkur 15 mínútna pásu.
44. mín MARK!
Hrafn Guðmundsson (Njarðvík)
Þetta var skrítið! ÍR-ingar virkilega klaufalegir og missa boltann í uppspili. Bragi vinnur boltann og skýtur að marki, ÍR komast fyrir skotið og boltinn skýst upp í loft og endar í þverslánni.
Boltinn skoppar aftur út í teginn þar sem Hrafn er mættur og klárar þetta alveg upp við markið.
40. mín
Njarðvík aðeins að sækja en ÍR hefur svör við öllum aðgerðum þeirra.
35. mín
ÍR fá horn, boltinn fyrir og ÍR brjóta af sér.
33. mín MARK!
Arnleifur Hjörleifsson (Njarðvík)
Stoðsending: Hrafn Guðmundsson
Njarðvík jafna! Frábær bolti úr vörn Njarðvíkur upp á Braga sem á frábæra sendingu inn á teginn á Hrafn sem sendir boltann fyrir þar sem Arnleifur er frábærlega staðsettur á fjær og klárar vel.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Guy að bjarga málunum! Bergvin var komin aleinn í gegn og enginn Njarðvíkur maður sjáanlegur en sem betur fer fyrir Njarðvíkinga var Guy á tánum og rétt nær til boltans á undan Bergvin.
27. mín
Njarðvík hafa haldið boltanum meira í þessum fyrri hálfleik, ÍR-ingum líður mjög vel í sínu varnarskipulagi vegna þess að Njarðvík gera lítið við boltann.
24. mín
Hættulegt! Orri kemur með hættulegan bolta fyrir þar sem Bergvin er hársbreidd frá því að komast til hans, Ísak nær til boltans á fjær stönginni og kemur honum aftur fyrir en Njarðvík hreinsa.
19. mín
Njarðvík fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu Slök spyrna sem Vilhelm grípur auðveldlega.
15. mín
Njarðvík í flottri sókn sem endar með sendingu fyrir frá Braga sem fer í gegnum pakkann.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
14. mín
Halldór Atli með aukaspyrnu inn á teginn sem Guy Smit handsamar á auðveldan hátt.
8. mín MARK!
Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
ÍR komast yfir! Njarðvík voru í uppspili við vítateiginn og Eiður Aron fer í glórulausa sendingu inn á miðjuna sem Bergvin kemst fyrir, þá var allt opið fyrir Bergvin að fara inn á teginn og klára vel framhjá Guy í markinu.

Virkilega klaufalegt hjá Eið.

8. mín
Rólegt yfir þessu fyrstu mínúturnar.
2. mín
Njarðvík fá horn Boltinn á fjærstöngina á Eið sem skallar framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er þetta komið af stað! Heimamenn í Njarðvík sparka þessu í gang.
Fyrir leik
Liðin rölta inn á völlinn Þetta fer að hefjast liðin, ganga hér í rólegheitum inn á völlinn ásamt dómarateyminu.
Fyrir leik
Byrjunarlið ÍR-inga Jóhann Birnir Guðmundsson þjálfari ÍR gerir einnig þrjár breytingar á sínu liði eftir 0-1 tap gegn Vestra í síðustu umferð.

Sigurður Karl Gunnarsson, Óliver Andri Einarsson og Ísak Atli Atlason sem snýr aftur inn í lið ÍR-inga eftir fjarveru gegn Vestra koma inn í liðið og út fara Emil Nói Sigurhjartarson, Hrafn Hallgrímsson og Guðjón Máni Magnússon.
Fyrir leik
Byrjunarlið Heimamanna Davíð Smári þjálfari Njarðvíkur gerir þrjár breytingar á sínu liði í dag Sigurjon Már Markússon, Hrafn Guðmundson og Björn Aron Björnsson koma inn í liðið á kostað Felix Lima Santos, Freysteins Inga og Símon Loga Thasaphong.

Hrafn Guðmundsson og Leandro Fernandes eru báðir utan hóps í dag, Hrafn fór út af í fyrri hálfleik gegn Gróttu í síðustu umferð, líklega vegna meiðsla og Leandro er aftur utan hóps eftir að hafað komið til baka eftir meiðsli í síðustu umferð. Spurning hvort um bakslag í meiðslunum sé að ræða.

Fyrir leik
ÍR ekki unnið Njarðvík síðan 2021 Ef við skoðum innbyrðis viðureignir liðanna á nýju KSÍ síðunni þá sjáum við að liðin mættust fyrst árið 2005 og hafa mæst 31 sinnum eftir það.

Undanfarin fjögur ár hefur Njarðvík haft yfirhöndina í viðureignum liðanna og hafa ekki tapað fyrir ÍR í síðustu átta leikjum liðanna.

ÍR hafa haft betur ef við lítum á alla söguna, þeir hafa unnið 13 leiki og Njarðvík 11. Liðin hafa gert 7 jafntefli.
Fyrir leik
ÍR ÍR-ingar hafa byrjað tímabilið frekar illa, þeir sitja í níunda sæti eftir sjö umferðir og eru með sjö stig. Þeir koma inn í þennan leik með tvö töp í síðustu tveimur leikjum og þá síðast gegn Vestra 0-1 í bragðdaufum leik í Breiðholtinu.

Leikir ÍR hafa verið fjörugir margir hverjir og í þeirra leikjum hafa verið skoruð 32 mörk sem er næst mest allra liða, aðeins topp liðið Afturelding er með fleiri mörk skoruð í sínum leikjum 35 alls.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Njarðvík Njarðvík hafa einnig byrjað tímabilið illa miðað við væntingar spámanna og gengi liðsins á síðasta tímabili þar sem þeir töpuðu ekki leik fyrr en í 18. umferð. Liðið situr í áttunda sæti með átta stig. Njarðvík töpuðu 2:1 gegn Gróttu í síðustu umferð þar sem þeir áttu erfitt með sóknarleikinn.

Þrátt fyrir tap þá voru ljósir punktar sem þeir geta tekið úr leiknum gegn Gróttu eins og það að Oumar Diouck og Leandro Fernandes voru mættir í hóp þeirra eftir að hafað glímt við meiðsli og spilamennska liðsins varð mun betri eftir að þeir komu inn á völlinn gegn Gróttu.

Markatala Njarðvíkur er 6-6, í þeirra leikjum hafa verið skoruð 12 mörk sem er minnst af öllum liðum í Lengjudeildinni. Njarðvík hafa verið þéttir til varnalega en ekki nógu beittir fram á við á tímabilinu, spurning hvaða áhrif endurkoma Oumar Diouck muni hafa á sóknarleik liðsins, Oumar var markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra með 15 mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spámaðurinn Sigurður Hrannar Þorsteinsson, sóknarmaður Hauka fékk það verkefni að spá fyrir leikjum 8. umferðarinnar. Sigurður Hrannar hefur farið vel af stað í sumar og er búinn að skora sex mörk í fimm leikjum í 2. deild.

Spá Sigurðar:
Njarðvík 1 - 0 ÍR (19:15 í kvöld)
Arnleifur verður allt í öllu í þessum leik, assist, clean sheet og rautt spjald. Fagnar því á American Bar eftir leik.



Fyrir leik
Þriðja liðið Dómari leiksins í kvöld er hann Gunnar Oddur Hafliðason og aðstoðarmenn hans eru þeir Kristján Már Ólafs og Kristofer Bergmann. Eftirlitsmaður KSÍ er Jóhann Guðmudsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
8. umferðin 8. umferð Lengjudeildarinnar lítur svona út:

Í kvöld:
Ægir-Leiknir R. (19:15)
Njarðvík- ÍR (19:15)
HK- Afturelding (19:15)

Á morgun:
Vestri- Völsungur (13:00)
Fylkir- Þróttur (14:00)
Grótta-Grindavík (Frestað)

Mynd: Lengjudeildin

Fyrir leik
Föstudags fótbolti! Góða kvöldið og gleðilegan föstudag kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu leiks Njarðvíkur og ÍR á JBÓ- vellinum í Njarðvík. Leikurinn fer fram í 8. umferð Lengjudeildarinnar og fer af stað kl 19:15.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
3. Halldór Atli Kristjánsson ('57)
4. Sigurður Karl Gunnarsson ('73)
6. Kristján Atli Marteinsson
9. Bergvin Fannar Helgason
17. Óliver Andri Einarsson ('46)
19. Hákon Dagur Matthíasson ('46)
23. Ágúst Unnar Kristinsson (f)
25. Jón Arnar Sigurðsson
33. Ísak Atli Atlason
61. Orri Bjarkason ('46)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
27. Jóhannes Kristinn Hlynsson (m)
2. André Musa Solórzano Abed ('46)
5. Hrafn Hallgrímsson
8. Emil Nói Sigurhjartarson ('46)
11. Guðjón Máni Magnússon ('46)
14. Víðir Freyr Ívarsson ('57)
28. Óliver Elís Hlynsson ('73)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Jónþór Atli Ingólfsson (Leikgr.)
Bragi Halldórsson (Sjúkraþj.)
Ómar Atli Sigurðsson (Styrktarþj.)
Ívan Óli Santos (Leikmaður utan hóps)
Davíð Örvar Ólafsson (AÞ)
Stefán Þór Pálsson (Leikmaður utan hóps)

Gul spjöld:
Kristján Atli Marteinsson ('59)

Rauð spjöld: