Leik lokið!
Sanngjarn sigur gestanna staðreynd.
Skýrsla og viðtöl væntanleg.
Ég þakka fyrir mig.
94. mín
Er eitthvað eftir? NEI
Markús Páll Ellertsson
Gott skot í fjærhornið. Gunnar flautaði leikinn af við miðjusparkið beint eftir markið.94. mín
Gísli Eyjólfs með fast á lofti skot fyrir utan teiginn sem Aron Snær grípur vel.
90. mín
4 mínútur í uppbótartíma.
89. mín
Aukaspyrna inn á teig Víkings og Viktor Jóns nær föstu skoti sem Aron grípur þó í markinu.
86. mín
InnRúnar Már S Sigurjónsson
ÚtBaldvin Þór Berndsen
85. mín
InnGabríel Snær Gunnarsson
ÚtJohannes Björn Vall
85. mín
Aron Elís rennir boltanum á Jóhannes Bjarnason sem skýtur yfir markið úr fínasta færi.
83. mín
InnDavíð Örn Atlason
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
82. mín
Eftir hitann sem myndaðist
Peter Oliver Ekroth
82. mín
Gult spjald
Markús Páll Ellertsson
82. mín
InnJóhannes Kristinn Bjarnason
ÚtElías Már Ómarsson
82. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtDaníel Hafsteinsson
81. mín
Hiti í mönnum eftir að Elías fór niður eftir að sjálfur hafa verið dæmdur brotlegur.
80. mín
Tíu mínútur eftir fyrir heimamenn til að gera eitthvað í þessum leik.
74. mín
ARON ELÍS
Aron Elís Þrándarson (stoðsending: Helgi Guðjónsson)
Nýkominn inn á og nýbúinn að fá högg á höfuðið en skorar samt að sjálfsögðu með þessum flotta skalla sínum. Frábær sending inn á teiginn frá Helga sem fer beint á Aron sem gerir þetta vel. 0-2 og Íslandsmeistararnir komnir í góða stöðu.74. mín
Víkingar fá hornspyrnu eftir fyrirgjöf frá Erlingi sem Erik Tobias kemur aftur fyrir.
72. mín
InnAron Elís Þrándarson
ÚtÁrmann Ingi Finnbogason
72. mín
InnErlingur Agnarsson
ÚtÓskar Borgþórsson
71. mín
InnGísli Laxdal Unnarsson
ÚtÓmar Björn Stefánsson
68. mín
Skagamenn vilja víti
Sveinn Gísli sparkar boltanum út úr teig Víkinga og virðist mögulega sparka aðeins líka í Markús en Gunnar bendir á hornfánann.
67. mín
Ármann Ingi með skot sem fer fram hjá markinu úr álitlegri stöðu.
63. mín
Víkingar hleypa Skagamönnum ekkert áleiðis þessa stundina.
60. mín
Gult spjald
Óskar Borgþórsson
Brot á Jóni Gísla.59. mín
SÁ ER SJÓÐHEITUR
Óskar Borgþórsson (stoðsending: Valdimar Þór Ingimundarson)
Frábær fyrirgjöf frá Valdimari sem ratar á Óskar sem er einn inni á teignum og klárar vel í fyrstu snertingu Óskar Borgþórsson heldur áfram að skora!54. mín
Frábært færi Víkinga
Valdimar með frábæran sprett í gegnum miðja vörn ÍA og rennir boltanum á Elías sem er í góðu færi en nær ekki að klára þetta.
49. mín
Þá fór spyrnan hans að sjálfsögðu rakleiðis aftur fyrir endamörk eftir þetta hrós frá mér.
49. mín
Gestirnir fá hornspyrnu sem Daníel undirbýr sig að taka. Föstu leikatriðin hans hafa verið mjög góð hér í kvöld.
46. mín
Þetta er komið af stað.
46. mín
InnViktor Jónsson
ÚtGuðmundur Þórarinsson
45. mín
0 mínútum bætt við þennan fyrri hálfleik
43. mín
Gult spjald
Johannes Björn Vall
Virðist stíga á Valdimar en stúkan var ekki sammála Gunnari.40. mín
Erik Tobias með slæm mistök og gefur beint á Ármann rétt fyrir utan eiginn teig en mjög lélegt skot sem Ármann tekur.
38. mín
Áfram heldur Ármann að fara illa með Skagamenn. Nú brýtur Böðvar á honum eftir skemmtilega hreyfingu frá Ármanni.
35. mín
Skagamenn í veseni á eigin vallarhelmingi og boltinn ratar á Ármann Inga sem rennir honum á Valdimar sem kemur með góða fyrirgjöf en enginn Víkingur er mættur í hættusvæðið.
31. mín
Ármann með góðan sprett og sækir hornspyrnu. Hann hefur verið að valda sínu gamla liði smá hausverk fyrsta hálftímann.
30. mín
Sveinn Gísli á kraftmikinn sprett upp völlinn sem endar með skoti sem fer himinhátt yfir markið.
27. mín
Aftur Baldvin!
Kemur mjög góð fyrirgjöf á teig Víkings á fjæsvæðið en Baldvin setur boltann yfir markið.
27. mín
DAUÐAFÆRI SKAGAMANNA
Skapast mikill darraðadans inni á teig Víkings og Baldvin mokar boltanum á markið en Aron Snær rétt nær að verja.
26. mín
Gult spjald
Sveinn Gísli Þorkelsson
Rífur Hauk niður er Skagamenn voru að komast í fyrsta sinn í langan tíma í sókn.25. mín
DAUÐAFÆRI
Góð sending fyrir markið frá Valdimari sem ratar á kollinn á Elíasi sem setur boltann í stöngina og boltinn skoppar í Jón Sölva og í horn.
Heppnin með Skagamönnum þarna.
25. mín
Eftir aðeins brösuga byrjun hafa Víkingar tekið öll völd á vellinum.
20. mín
ALLT BRJÁLAÐ
Gummi Tóta með rosalega svipað brot en Gunnar Oddur sleppir spjaldinu og leikmenn sem og bekkur Víkinga tryllast.
Verður að segjast að Guðmundur Þórarinsson sé stálheppinn að vera enn inni á vellinum.
19. mín
DANNI HAFSTEINS
Með enn eina frábæra aukaspyrnuna en nú snýr hann boltann út fyrir vegginn og á nærstöngina en Jón Sölvi nær að slá boltann í burtu.
18. mín
Gult spjald
Guðmundur Þórarinsson
Ármann sækir aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Skagans og Gummi Tóta fær gula spjaldið.16. mín
HÆTTA Á TEIGNUM
Daníel með stórkostlega aukaspyrnu inn á teig Skagamanna sem tveir Víkingar ná ekki að koma á markið og aftur er síðan dæmd rangstaða.
14. mín
Spyrnan ratar á Óskar utarlega í teignum og hann reynir skot sem Haukur kemst fyrir.
14. mín
Víkingar fá fyrsu hornspyrnu leiksins
11. mín
Daníel með góða aukaspyrnu inn á teiginn og Kalli rétt svo missir af boltanum en var flaggaður rangstæður.
7. mín
Víkingar kaldir þessar fyrstu mínútur
Nokkrar misheppnaðar sendingar hjá þeim á þessum fyrstu mínútum og hafa þeir ekkert komist áleiðis á vallarhelmingi Skagans.
5. mín
Skagamenn í góðri stöðu
Snöggt innkast tekið á Hauk sem er við markteiginn en hittir ekki boltann og fer hann aftur fyrir endalínu.
4. mín
Bæði lið þreifa fyrir sér þessar fyrstu mínútur.
1. mín
Tarik sparkar þessu af stað!
Fyrir leik
Sigursælasti leikmaður í sögu íslenskrar knattspyrnu heiðraður
Fallega gert hjá Skagamönnum sem vígja minningarstein Sigursteins Gíslasonar en börnin hans, Unnur Elín og Teitur Leó, taka boltann af steininum í fyrsta sinn og bera hann inn á völlinn.
Fyrir leik
Bongóblíða á Akranesi
Það er varla hægt að biðja um betra sumarveður en hér á Skaganum er sólin enn á lofti og allt að fyllast af stuðningsmönnum beggja liða.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús
Sölvi gerir tvær breytingar frá síðasta leik en Lárus Orri gerir eina.
Fyrir leik
Aðeins um tímabil liðanna
Eins og flestir vita eru Víkingar á toppi Bestu deildarinnar en þeir hafa unnið 10 leiki í röð í öllum keppnum.
Víkingar hafa alls unnið 11 af 12 leikjum sínum á tímabilinu, tvo í bikar gegn Fram og HK, en eina jafntefli þeirra kom gegn Blikum í fyrstu umferð Bestu deildar.
Skagamenn sitja hins vegar í 6. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 9 leiki. Þeir unnu Hauka 4-0 og þar næst Grindavík í vítaspyrnukeppni eftir 2-2 leik.
Báðir leikir Skagamanna í bikarnum hafa verið á heimavelli og báðir leikir Víkings hafa verið á útivelli og það sama er á boðstólnum hér í dag.
Fyrir leik
Skemmtilegar fréttir frá fótboltaparinu
Karl Friðleifur, leikmaður Víkings, á von á barni en hann greindi frá því í gær og óskum við hjá Fótbolta.net honum og frú innilega til hamingju með það!

Fyrir leik
Fallegt framtak Skagamanna
Fyrir leik kvöldsins verður afhjúpaður minningarsteinn til heiðurs Sigursteini Gíslasyni. Fallegt hjá Skagamönnum en Sigursteinn lék á sínum tima 335 leiki og skoraði í þeim 40 mörk.
Fyrir leik
Markús Páll vill fá fólkið á völlinn
Markaskorarinn var tekinn í viðtal við Fótbolta.net fyrir leikinn og hafði hann mikið að segja.

Fyrir leik
Seinast höfðu Víkingar betur
Liðin mættust í Bestu deildinni í Víkinni í apríl en þá flengdu Víkingar Skagamenn með 4-0 sigri. Þar skoraði Elías Már tvö mörk en ásamt því voru það Valdimar Þór og Viktor Örlygur sem komust á blað.
Ná Skagamenn að hefna fyrir þetta slæma tap og halda bikarævintýri sínu áfram eða halda Víkingar áfram að vinna allt og alla?

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Gunnar Oddur Hafliðason er aðaldómari leiksins, aðstoðardómararnir tveir eru Ragnar Þór Bender og Kristján Már Ólafs og fjórði dómari er Pétur Guðmundsson. Viðar Helgason er dómaraeftirlitsmaður.

Fyrir leik
Mjólkurbikarinn heldur áfram!
Verið velkomin í þráðbeina textalýsingu fyrir leik ÍA og Víkings í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla sem fer fram á ELKEM vellinum.
Dregið verður í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir leikinn. Undanúrslitaleikirnir fara fram 24. og 25. júní.







