Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Mjólkurbikar karla
ÍA
20:15 0
0
Víkingur R.
Lengjudeild karla
Þróttur R.
36' 1
0
HK
Mjólkurbikar karla
Ægir
LL 0
3
Breiðablik
Ægir
0
3
Breiðablik
0-1 Stefan Dabetic '8 , sjálfsmark
0-2 Viktor Karl Einarsson '41
0-3 Ágúst Orri Þorsteinsson '62
12.06.2026  -  17:30
GeoSalmo völlurinn
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Grasið fínt og veðrir flott
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 225
Byrjunarlið:
1. Ómar Castaldo Einarsson (m)
7. Kristinn Ásgeir Þorbergsson ('63)
8. Atli Rafn Guðbjartsson ('75)
9. Jordan Adeyemo
11. Stefan Dabetic (f)
16. Markús Máni Jónsson ('15)
19. Nikola Kristinn Stojanovic
20. Alfredo Ivan Sanabria
22. Harley Willard
24. Paul Leonard Skoczylas JR
50. Baptiste Gateau ('75)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Ibrahima Jallow (m)
5. Anton Breki Viktorsson ('75)
14. Benedikt Þór Viðarsson
15. Sigurður Óli Guðjónsson ('15)
21. Einar Breki Sverrisson
27. Marko Panic ('75)
80. Bjarki Rúnar Jónínuson ('63)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Nenad Zivanovic (Þ)
Aron Óskar Þorleifsson (Sjúkraþj.)
Arnar Logi Sveinsson (AÞ)
Dimitrije Cokic (Liðsstj.)
Guðbjartur Örn Einarsson (Forráðam.)
Ivaylo Yanachkov (MÞ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Breiðablik í undanúrslit Þakka fyrir mig hér frá sólinni í Þorlákshöfn.

3-0 sigur niðurstaða og Blikar fara áfram.
90. mín
90mínútur komnar á klukkuna.
89. mín
Ágúst Orri flaggaður rangstæður.
88. mín
Lítið eftir og úrslitin laungu orðin ljós en þó fínasti kraftur í báðum liðum.
87. mín
Andri Rafn Yeoman með skot í fyrsta eftir hornspyrnu sem fer yfir.
84. mín
Einhver köll eftir vítaspyrnu hjá Ægismönnum en Ívar Orri veifar þeim í burtu.
82. mín
Alfredo Sanabria átti ágætt skot sem Anton Ari greip
81. mín
Ægismenn óheppnir! Frábærar sendingar fyrst frá Bjarka Rúnar á Adeyemo sem kom honum fyrir markið þar sem Marko Panic var mættur en Anton Ari kom fingri á boltann og hann fór í utanvert samskeytið.
79. mín
Inn:Kristinn Narfi Björgvinsson (Breiðablik) Út:Óli Valur Ómarsson (Breiðablik)
79. mín
Inn:Gabríel Snær Hallsson (Breiðablik) Út:Aron Bjarnason (Breiðablik)
75. mín
Inn:Marko Panic (Ægir) Út:Atli Rafn Guðbjartsson (Ægir)
Settu þig í hleðslu með Hleðslu
75. mín
Inn:Anton Breki Viktorsson (Ægir) Út:Baptiste Gateau (Ægir)
72. mín
Nikola Stojanovic með eitt geimfarsskot. Langt frá og lengst yfir markið
70. mín
Ekki mikið um að vera eftir þetta þriðja mark Blika. Gestirnir svolítið bara þægilegir með boltann ofarlega á vellinum.
67. mín
Inn:Andri Rafn Yeoman (Breiðablik) Út:Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
67. mín
Inn:Kristinn Jónsson (Breiðablik) Út:Davíð Ingvarsson (Breiðablik)
63. mín
Inn:Bjarki Rúnar Jónínuson (Ægir) Út:Kristinn Ásgeir Þorbergsson (Ægir)
62. mín MARK!
Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
Stoðsending: Aron Bjarnason
3-0 fyrir Blikum! Arnar Bjarki ekki lengi að stimpla sig í leikinn, bolti sem hann vinnur og finnur svo Aron Bjarna sem losaði boltann á Ágúst Orra sem kláraði vel í nær hornið.
61. mín
Inn:Arnar Bjarki Gunnleifsson (Breiðablik) Út:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
59. mín
Nokkuð tæp hornspyrna hjá heimamönnum en sýndist það vera Baptiste sem var aðeins of fljótur á sér í skallann
58. mín
Blika hornspyrnunar ekki verið upp á marga fiska hér í dag.
55. mín
Ægir að fá hornspyrnu.
54. mín
Davíð Ingvar flaug upp völlinn og átti svo skot sem fór í varnarmann. Eftir það kom Ágúst Orri með skot sem fór yfir markið.
53. mín
Anton Ari sparkar boltanum útaf til að gefa Ívari Erni tíma á að jafna sig eftir eitthvað samstuð við Jordan Adeyemo.
51. mín
Atli Rafn með fast skot! Anton Ari vel staðsettur og fær þetta beint í hendurnar, en fínasta skot engu að síður.
49. mín
Viktor Karl að brjóta á Kristinni Ásgeir á vinstri kantinum.

Anton Ari sem kom út og greip síðan aukaspyrnuna.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
47. mín
Ágúst Orri vann boltann af Alfredo Sanabria en fyrirgjöfin frá honum gegnum allan teiginn.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Gestirnir leiða 2-0 hér í Þorlákshöfn þar sem sólin er heldur betur farinn að skína og fólkið er að gera vel að mæta 225manns sem er flott mæting á Ægis-mælikvarða.

Vonandi áframhaldandi sól og skemmtun næstu 45mín.
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir leiða 2-0 eftir fyrstu 45 Ægismenn eflaust smá svekktir að hafa ekki gert betur sóknarlega því þeir voru á köflum mun líflegri og ofarlega á vellinum.

Breiðablik hinsvegar bara nokkuð þægilegir og fengið töluverða hjálp með mörkin sín.
45. mín
Adeyemo með skot beint á Anton Ara en líka dæmt hendi á hann rétt fyrir skotið.
41. mín MARK!
Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Stoðsending: Aron Bjarnason
2-0 fyrir Blikum Slapt skot frá Viktori Karli sem fer aðeins í fótinn á Kristinni Ásgeir að mér sýnist og breytir um stefnu þannig Ómar Castaldo er sigraður.

40. mín
Adeyemo náði ekki nægilega góðum skalla eftir fína hornspyrnu hjá Ægir.
39. mín
Anton Ari með markspyrnu til stöðufélaga síns Ómars Castaldo hinu meginn á vellinum.
33. mín
Harley Willard með lélegt skot sem Anton Ari tekur upp.
32. mín
Ægir hafa verið líflegri þessar síðustu mínútur en ég er nokkuð viss um að Breiðablik hræðist ekki þessa að þurfa taka þá í hraðaupphlaupum.
30. mín
Mikið búið að vera að hanga í Adeyemo þegar Ægir eru að reyna hefja sínar sóknir og Ívar Orri flautar núna á Arnór Gauta.
27. mín
Adeyemo!! Paul Leonard gerir vel að koma boltanum fyrir markið þar sem Jordan Adeyemo reynir nokkuð erfitt volley sem Anton Ari tekur auðveldlega.
25. mín
Kristófer Ingi fellur í teignum eftir að hafa reynt skot, sýndist Baptiste aðeins fara í tána en bara bolti fyrst og horn fyrir Blika.
22. mín
Góð sókn hjá Ægir! Kristinn Ásgeir sem byrjaði sóknina með flottu hlaupi og í lokinn var Adeyemo í fínasta færi einn á Anton Ara en vel varið og út í hornspyrnu.
21. mín
Aron Bjarna með fína fyrirgjöf frá vinstri kantinum en Ægismenn hreinsa.
19. mín
Breiðablik með hornspyrnu sem Ómar Castaldo gerir vel í að grípa.
17. mín
Anton Logi fer af krafti í Paul Leonard sem fær aukaspyrnu.

Sleppur við spjald.
15. mín
Inn:Sigurður Óli Guðjónsson (Ægir) Út:Markús Máni Jónsson (Ægir)
14. mín
Markús Máni virðist stíga eitthvað illa og meiðist.
12. mín
Viktor Karl með skot rétt framhjá!
8. mín SJÁLFSMARK!
Stefan Dabetic (Ægir)
Fyrsta markið komið! Óli Valur gerir virkilega vel á hægri kantinum, dúndar svo boltanum í teiginn og fer þar beint í Stefan Dabetic sem stóð á nærstönginni.

Þægilegt mark fyrir Breiðablik.
6. mín
Jordan Adeyemo orðið fyrir smá höggi, það er eflaust það síðasta sem Ægir liðið þarf á að halda. Virðist þó búin að jafna sig.
5. mín
Aron Bjarna með aukaspyrnu á fjær sem Ívar Örn mætir á en lúðrar boltanum langt yfir.
1. mín
Vörn Breiðabliks Arnór Gauti og Ívar Örn standa vaktina í dag með Davíð Ingvars og Óla Val á hliðunum
1. mín
Leikur hafinn
Undanúrslit í boði Það eru Blikar sem sparka þessum leik af stað!

Fyrir leik
Liðin rölta inná! Það eru heldur betur kjör aðstæður fyrir leikinn hér, grasið er í fínasta standi og ekki hvortum við út í veðrið.

Ekkert annað í stöðunni en að óska eftir góðri skemmtun og alvöru bikar ástríðu hér í Þorlákshöfn.

Fyrir leik
Greinar tengdar leik dagsins Það eru einhver meiðsli í hópnum hjá Breiðablik.
Viðtal við Ólaf Inga Skúlason þjálfara Breiðabliks fyrir leikinn gegn Ægir má skoða hér.
Nenad Zivanovic þjálfari Ægis var leikmaður Breiðabliks og mæli með að líta á viðtal við hann um leikinn.
Fyrir leik
Bikarganga Breiðabliks Færum okkur yfir til gestana frá Kópavogi, Breiðablik hefur spilað tvo leiki í Mjólkurbikarnum og allt á útivelli líkt og þessi.
Kormákur/Hvöt var ekki mikil fyrirstaða og 6-1 sigur Blika niðurstaða, Kristófer Ingi og Ágúst Orri báðir með tvö mörk hver. en Höskuldur Gunnlaugs skoraði opnunarmarkið og Óli Valur skoraði einnig fyrir Blika.
Næst var það Laugardalurinn, Þróttur R. Breiðablik að þessu sinni sótti 2-1 sigur og þeir Davíð Ingvars og Kristófer Ingi skoruðu mörk Blika.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Annað til að muna frá þeim leik er að Viktor Örn Margeirsson fékk að líta beint rautt spjald og er því í banni í leik dagsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Bikarganga Ægis Byrjum á heimaliðinu í dag, Ægir hefur spilað þrjá leiki í bikarnum. Byrjuðu á tæpum 2-0 sigri gegn Reynir Sandgerði þar sem Kristinn Ásgeir skoraði bæði mörkin en þau komu ekki fyrr en á 88' og 90'mín.
Eftir það var förinni heitið til Árbæjar þar sem þeir unni 7-1 sigur á Árbær. Sex markaskorar hjá Ægir í þeim leik (Harley Willard með tvennu).
Síðan var heldur betur bikar ævintýraferð til Akureyrar sem fór eflaust ekki framhjá mörgum fótboltadýrkendum. Nýliðar Lengjudeildarinnar í ár mættu sem neðsta liðið í sinni deild á þeim tíma gegn Bestu Deildar liði KA og sótt 8-liða sætið sitt með 2-1 sigri á Greifavellinum. Harley Willard og Stojanovic með mörkin.

Það er því alveg ljóst að Ægis liðið kann að sýna sínar bestu hliðar og hver veit nema bikarævintýri þeirra haldi áfram.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Fyrir leik
Dómarateymið Ívar Orri Kristjánsson er á flautunni í dag.
Honum til aðstoðar eru þeir Birkir Sigurðarson og Jovan Subic.
Fjórði dómarinn er Þórður Þorsteinsson Þórðarson.
Dómaraeftirlitsmaður er síðan Jón Sigurjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
8-liða í Mjólkurbikarnum Hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn. Hér munu Ægir taka á móti Breiðablik í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarins.

Sigurliðið hér í dag kemur sér í pottinn fyrir undanúrslitin!
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
5. Ívar Örn Árnason
6. Arnór Gauti Jónsson
8. Viktor Karl Einarsson (f)
9. Óli Valur Ómarsson ('79)
10. Kristinn Steindórsson
11. Aron Bjarnason ('79)
13. Anton Logi Lúðvíksson ('67)
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
18. Davíð Ingvarsson ('67)
23. Kristófer Ingi Kristinsson ('61)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
99. Elmar Ágúst Halldórsson (m)
19. Kristinn Jónsson ('67)
24. Bjartur Orri Jónsson
29. Gabríel Snær Hallsson ('79)
30. Andri Rafn Yeoman ('67)
32. Kristinn Narfi Björgvinsson ('79)
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson ('61)
45. Þór Andersen Willumsson
97. Ágúst Ármann Sigurðsson
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)
Jón Guðni Fjóluson (AÞ)
Brynjar Dagur Sighvatsson (Liðsstj.)
Dagur Elís Gíslason (Liðsstj.)
Haraldur Björnsson (MÞ)
Helgi Jónas Guðfinnsson (Styrktarþj.)
Emil Pálsson (AÞ)
Særún Jónsdóttir (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: