SKÝRSLAN: Toppsætið enn í Laugardal
Hvað réði úrslitum?
Þróttarar voru heilt yfir sterkari og grimmari hér í kvöld. HK átti ekki sinn besta dag en þeir höfðu sín tækifæri til þess að klára leikinn.
Bestu leikmenn
1. Magnús Þórðarsson
Mjög flottur leikur hjá Magnúsi. Gerði út um leikinn með öðru markinu og vann boltann í markinu sem var reyndar dæmt af rétt fyrir hálfleik. Mjög sterkt hjá Þrótti að hafa nælt sér í hann frá Fram undir lok gluggans.
2. Aron Snær Ingason
Var rosalega sprækur í dag. Fiskaði ófá gul spjöld á HK vörnina með hraðanum.
Atvikið
Seinna mark Þróttar. Leikurinn róaðist eftir markið og þeir náðu að sigla þessu heim.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttarar halda toppsætinu og geta ekki misst það fyrr en eftir rúma viku eða svo þar sem Afturelding spilar ekki fyrr en eftir 9 daga. HK eru enn í umspilssæti en fjarlægast toppinn. Þeir náðu ekki að nýta sér þennan mögulega 6 stiga leik.
Vondur dagur
Mér fannst enginn eiga neitt sérstaklega vondan dag. Verð mögulega að setja þetta á sókn HK þar sem þeir voru ekki nógu klínískir. Höfðu getað komist inn í leikinn en það hafðist ekki.
Dómarinn - 6
Það voru mörg vafaatriði í þessum leik en mér sýndist hann hafa rétt fyrir sér þar. Hann var mjög duglegur að spjalda og oft var það ansi ódýrt eða hreinlega rangt. Hann hefði mátt láta leikinn halda betur áfram, leikmenn orðnir hálfþreyttir á því.



