Fotbolti.net
Fjölnir
Fjölnir
2. deild karla
Fjölnisvöllur
12°, skýjað og logn, frábærar aðstæður
2 - 2
Kári
Kári
0 - 146' Árni Salvar HeimissonBjarni Þór Hafstein 49'1 - 1Bjarni Þór Hafstein 52'2 - 12 - 261' Jón Þór Finnbogason
Dómari: Milan Djurovic

SKÝRSLAN: Sanngjarnt jafntefli í toppslag

Hvað réði úrslitum?

Það var mikið jafnræði með liðunum í báðum hálfleikum. Sáum sitthvorar hliðar af báðum leikjum í hálfleikunum, varkárir í fyrri og ákveðnari í seinni hálfleik.

Bestu leikmenn

1. Bjarni Þór Hafstein

Skoraði bæði mörk Fjölnis og var mjög flottur. Hann var ekki langt frá því að ná þrennunni. Hann var öflugur í dag.

2. Egill Otti Vilhjálmsson

Átti báðar stoðsendingar fyrir Bjarna eftir mjög góðan undirbúning í báðum mörkunum sendingarnar hnitmiðaðar.

Atvikið

Upphafsflaut í seinni. Þá byrjaði leikurinn fyrir alvöru.

Hvað þýða úrslitin?

Deildin jafnast enn meira út. Bæði lið með 13 stig í 3. og 4. sæti, Selfoss kemst yfir liðin eftir sigur en allt er opið.

Vondur dagur

Enginn sem átti áberandi slæman dag. Ætli ég klíni þessu ekki bara á bæði liðin í fyrri hálfleik. Það var himin og haf á milli liðanna í fyrri og seinni hálfleik.

Dómarinn - 8

Flott dæmdur leikur, engin greinileg dómaramistök og tók vel á vafaatriðum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.