SKÝRSLAN: Kósýkvöld á Selfossi
Hvað réði úrslitum?
Selfyssingar áttu fyllilega skilið að vinna leikinn í dag. Heimamenn voru sterkari aðilinn lengst af og sýndu meiri ákveðni á báðum endum vallarins. Það sem réði úrslitum var fyrst og fremst hversu grimmir þeir voru fyrir framan markið, en þeir unnu sér inn tvær vítaspyrnur sem var réttir dómar. Auk þess kom fyrsta mark leiksins eftir sjálfsmark frá Þrótti Vogum. Selfoss var einfaldlega beittara liðið og verðskuldaði sigurinn. In the end þægilegur sigur
Bestu leikmenn
1. Bjarki Flóvent Ásgeirsson
Bjarki átti frábæran leik í dag. Hann stjórnaði spilinu vel á miðjunni og var sterkur bæði varnar- og sóknarlega. Hann á fyllilega skilið að vera valinn maður leiksins.
2. Jón Daði Böðvarsson
Valið stóð á milli Hans og Bjarka, en Jón Daði átti einnig frábæran leik. Hann var út um allan völl, lagði mikið á sig varnarlega og var sífellt ógnandi fram á við. Þá skoraði hann af öryggi úr vítaspyrnunni sem innsiglaði sigur Selfoss.
Atvikið
Undir lok leiks minnkaði Þróttur muninn og virtist ætla að gera atlögu að jöfnunarmarki. Hins vegar fengu Selfyssingar vítaspyrnu í næstu sókn og Kostiantyn Pikul fékk rautt spjald í sömu atburðarás. Jón Daði nýtti vítaspyrnuna af öryggi og þar með var sigur Selfoss endanlega tryggður.
Hvað þýða úrslitin?
Að Selfoss situr nú í 2,sæti með 15 stig og komnir í toppbaráttuna á ný. Þróttur Vogum hins vegar sitja í fallsæti með 7 stig, og þurfa fara horfa í staðreyndirnar að þeir eru í bullandi fallbaráttu.
Vondur dagur
Það voru ekki margir leikmenn sem áttu slakan dag í þessum leik, en því miður verður Jón Veigar Kristjánsson fyrir valinu. Hann varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark strax á 6. mínútu og virtist einfaldlega ekki vera kominn almennilega vaknaður á þeim tímapunkti. Markið reyndist dýrt fyrir Þrótt og auk þess átti hann á köflum í erfiðleikum í varnarleiknum.
Dómarinn - 9
ÞÞÞ átti góðan leik í kvöld og leysti hlutverk sitt vel af hendi. Hann fór aldrei út í neina vitleysu og hélt góðri stjórn á leiknum. Fyrri vítaspyrnan var að mínu mati hárrétt dæmd og sú síðari var líklega einnig rétt, þó ég hafi ekki séð atvikið nógu vel.


