Fotbolti.net
Besta deildin
@danielmagg77Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
KA
KA
Besta karla
Greifavöllurinn
Sól og blíða!
3 - 4
Fram
Fram
0 - 16' Þorri Stefán ÞorbjörnssonHallgrímur Mar Steingrímsson 9'1 - 1Sveinn Margeir Hauksson 17'2 - 12 - 234' Atli Þór Jónasson (víti)2 - 342' Atli Þór Jónasson2 - 463' Freyr SigurðssonJóan Símun Edmundsson 84'3 - 4
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Markasúpa á Greifavellinum

Hvað réði úrslitum?

Framarar spiluðu á köflum frábæran sóknarleik og taka þátt í enn einni markaveislunni. Þeir sköpuðu fjölmargar hættulegar stöður inná vallarhelmingi heimamanna og skoruðu fjögur mörk og hefðu hæglega getað gert fleiri með aðeins meiri yfirvegun.

Bestu leikmenn

1. Freyr Sigurðsson (Fram)

Sá var öflugur í dag. Lék við hvurn sinn fingur á miðjunni og var út um allan völl, Tapaði varla boltanum og skapaði hvert færið á fætur öðru.

2. Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)

Skorar eitt og leggur upp tvö. Þar fyrir utan er hann miðpunkturinn í flestu því góða sem að KA menn gerðu sóknarlega í dag - mögnuð vera.

Atvikið

Markið sem er dæmt af Birgi Baldvinssyni. Það er einfaldlega rangur dómur og Elías Ingi gerði sig þar sekan um mistök.

Hvað þýða úrslitin?

Framarar eru með 23 stig í 3. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir KR. Næsti leikur þeirra er stór, en þá mæta Íslandsmeistarar Víkings í heimsókn. KA menn eiga erfiðan útileik gegn Breiðabliki fyrir höndum og sitja í 9. sæti deildarinnar með 10 stig.

Vondur dagur

Þetta var engin stórfengleg auglýsing fyrir varnarleik í knattspyrnu, en gefið mér 4-3 frekar en 1-0 alla daga vikunnar.

Dómarinn - 5

Það telur stórt inn í þessa einkunnagjöf að hann tekur klárlega löglegt mark af KA mönnum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.