Fotbolti.net
Besta deildin
@danielmagg77Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
KA
KA
Besta karla
Greifavöllurinn
0 - 0
Fram
Fram
Dómari: Elías Ingi Árnason
Fyrir leik
Framarar á flugi
"Rúnar Kristins og stúkan hristist," er gjarnan kyrjað og stúkan hefur sannarlega nötrað á leikjum Fram undanfarið. Liðið hefur skorað aragrúa af mörkum og verið virkur þáttakandi í nokkrum af skemmtilegustu leikjum sumarsins hingað til. Hinn síungi Kennie Chopart hefur skorað 6 mörk og átt ríkan þátt í því að Fram situr í 3. sæti deildarinnar. Í kerfi Rúnars sem að býður uppá fjölbreytta möguleika og ákveðið frjálsræði hefur Kennie algjörlega glansað. Rúnar Kristinsson sagði þó liðið vera með fæturna pikkfasta á jörðinni: ,,Við erum ekkert að fara að breyta okkar fókus og það er bara næsti leikur. Eins og ég sagði fyrir mót þá vorum við í 5. sæti í fyrra og við stefnum bara á að reyna að gera betur en það. Lykilatriðið er að vera í topp sex og sjá til þess að við getum verið nálægt þessum efstu liðum og eiga séns á að berjast um Evrópusæti. ''
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Glatt á hjalla eftir 4-3 sigur á Blikum í síðasta leik.
Fyrir leik
KA menn á kunnuglegum slóðum á þessum tímapunkti
Það er orðinn árlegur viðburður að velta vöngum yfir gengi KA í upphafi Íslandsmótsins. Þeir byrja illa, fá ausuna yfir sig úr öllum áttum og rétta svo úr kútnum áður en liðið landar Forsetabikarnum. Það er ekkert ósennilegt að svipað verði uppá teningnum í ár, en yfirlýst markmið allra innan félagsins er að blanda sér í topp 6 og ætli liðið sér það, þá hreinlega verða þeir að fara að taka stig af liðunum fyrir ofan sig. Í ár hefur KA gengið illa að skapa sér færi og skora mörk. Miklar vonir eru bundnar við Danijel Djuric og Oliver Heiðarsson, en þeir eiga enn eftir að setja mark sitt almennilega á leik liðsins. Sóknarleikur liðsins er á löngum stundum hugmyndasnauður og hægur. Miðja þeirra hefur sömuleiðis átt í basli með að stýra leikjum og verið eftir á í baráttu um seinni bolta og hreinlega virkað þung. Vörn KA er á pari við önnur lið og hefur innkoma Markúsar Mána Péturssonar í hjarta varnarinnar verið glimrandi fín, en Markús nýtur sannarlega góðs af því að spila við hlið Hans Viktors. Kannski verður leiksins í dag minnst sem leiksins þar sem að allt datt í gang hjá KA liðinu. Skrítnari hlutir hafa skeð!
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Danijel Djuric er léttur í lund á Akureyri, en yrði sennilega tonni léttari ef hann kæmist á blað í dag.
Fyrir leik
Góðan daginn!
Hér mun fara fram textalýsing á leik KA og Fram í Bestu-deild karla.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.