Fotbolti.net
Besta deildin
Alexander Tonini
Alexander Tonini
Besta karla
ELKEM völlurinn
Létskýjað, 13 stiga hiti og smá vindur.
ÍA
ÍA
1 - 0
Valur
Valur
Viktor Jónsson 40'1 - 0
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Leik lokið!
Heimamenn klára þetta
Sanngjarn sigur þegar uppi er staðið, hvorugt liðið gott í seinni en Skaginn mun betri í þeim fyrri

Skýrsla og viðtöl á leiðinni
93. mín
Klukkan á vellinum biluð
Hætti eftir 90 mínútur og eina sekúndu

En það er lítið eftir
90. mín
4 mínútum bætt við
Hemmi vill fleiri
89. mín
Fín sókn hjá Val
Myles vinstra megin með flotta sendingu inní teig sem finnur Albin en skallinn hans laus og yfir markið.

Þarna hefði Albin átt að gera betur, það var enginn í honum
Valur
86. mín
Pirringsbrot þarna

Lúkas Logi Heimisson

Lúkas Logi er pirraður og það sést upp í stúku
ÍA
85. mín
InnRúnar Már S Sigurjónsson
ÚtGuðmundur Þórarinsson
ÍA
84. mín
Ljót tækling á Jónatan Inga

Böðvar Böðvarsson

Fer þarna með takkanna fyrst og er svo steinhissa á spjaldinu, þetta var appelsínugult hreinlega.

Ekki er öll vitleysan eins
83. mín
Valsmenn að reyna
Tvær hornspyrnur þarna í röð en það er hreinlega lítið að frétta í sóknarleik liðsins hér í kvöld.

Valsmenn ekki líklegir til að jafna
Valur
81. mín
Valsmenn eru pirraðir

Bjarni Mark Antonsson

Eru að sanka að sér spjöldum þess stundina
Valur
75. mín
Fyrir að rífa kjaft við Gunnar

Albin Skoglund

Valsmenn verulega ósáttir með Gunnar þarna sem dæmdi brot inn í teig Skagamanna á Albin
Valur
75. mín
Fyrir að rífa kjaft við Gunnar

Tryggvi Hrafn Haraldsson

Valsmenn verulega ósáttir með Gunnar þarna sem dæmdi brot inn í teig Skagamanna á Albin
ÍA
73. mín
InnSteinar Þorsteinsson
ÚtÓmar Björn Stefánsson
72. mín
Hörkuskot hjá Hauki Andra
Keyrir upp völlinn hratt og lætur bara vaða og skotið er fast, en því miður beint á Schram.

En það gengur hvorki né rekur hjá Valsmönnum
69. mín
Gott færi hjá Gísla Eyjólfs
Jakob Franz missir þarna boltann afar klaufalega og Gísli kemst í kjölfarið í gott færi en skotið naumlega framhjá.

Þarna hefði Skaginn geta tvöfaldað sína forystu
ÍA
68. mín
Fyrir brotið á Albin áðan

Guðmundur Þórarinsson

Leyfði leiknum að fljóta þegar Gummi togaði í Albin

En nú kemur spjaldið
Valur
66. mín
InnMyles A Veldman
ÚtÓlafur Flóki Stephensen
Þrefalt hjá Hemma
Valur
66. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtKristófer Dagur Arnarsson
Þrefalt hjá Hemma
Valur
66. mín
InnJónatan Ingi Jónsson
ÚtMarkus Lund Nakkim
Þrefalt hjá Hemma
Fyrstu mínútur Jónatans í sumar
Valur
64. mín
Valsmenn mjög ósáttir með þetta

Ólafur Flóki Stephensen

Fékk þarna spjald eftir einvígi við Viktor Jóns sem liggur í grasinu

Smá spurning hvort að Gunnar hafi látið eftirmála hafa áhrif á sig, búinn að sjá þetta aftur og finnst þetta glórulaust spjald
62. mín
Viktor Jóns tölfræði
Smelltu hér til að prófa

Mynd: Fótbolt.net

60. mín
Hemmi að undirbúa breytingar
Nauðsynlegt enda ekkert að gerast hjá gestunum
58. mín
Ómar Björn í góðu færi
Góð sókn hægra megin, Gísli Eyjólfs með boltann og gefur inn í teig á Ómar Björn.

Sá tekur skotið strax og það er fast en framhjá í hliðarnetið.
50. mín
Ómar þarna á flottum spretti
Keyrir upp völlinn og Jakob fær nóg og hrindir honum í grasið.

Gult spjald réttur dómur og aukaspyrna fyrir utan teig.

Gummi Tóta tekur hana með vinstri en þægileg yfir markið
Valur
50. mín
Gult spjald

Jakob Franz Pálsson

46. mín
Seinni hafinn
Engar breytingar
45. mín
Meiri tölfræði
Smelltu hér til að prófa

Mynd: Fótbolt.net

45. mín
Nýja tölfræðin hjá okkur
Smelltu hér til að prófa

Mynd: Fótbolt.net

45. mín
Heimamenn leiða
Skagamenn búnir að vera betri og leiða sanngjarnt í hálfleik.

Tölfræðin ÍA í vil:

56% með boltann
11 snertingar í teig á móti 4 hjá Val
271 sendingar á móti 212 hjá Val
85% nákvæmni sendinga á móti 79% hjá Val
3 horn á móti engu hjá Val
3 skot á mark á móti einu hjá Val
ÍA
40. mín
Heimamenn komnir yfir

Viktor Jónsson (stoðsending: Gísli Eyjólfsson)

Þetta var stórfurðulegt mark, sending frá hægri frá Gísla Eyjólfs og Schram kemur út og lítur klaufalega út þarna. Misreiknar boltann illa.

Viktor Jónsson og Markus Lund renna báðir en Viktor fyrstur til að standa upp og rennur honum í autt netið.

Valsmenn vildu fá aukaspyrnu þarna en ég get ekki séð betur en að það var nákvæmlega ekkert að þessu og markið stendur.

Þetta lá í loftinu.
36. mín
Johannes Vall kominn í góða stöðu
Þarna var Johannes Vall kominn einn upp vinstri kantinn og á fasta sendingu meðfram jörðinni inn í teig á milli markmanns og varnar eins og á að gera.

En Ómar Björn aðeins og seinn og nær ekki til hans.

Einhvern tímann munu Skagamenn refsa
33. mín
Kristófer Dagur að byrja vel
Fyrsta skipti í byrjunarliðinu og sá ungi er hvorki þreyttur né smeykur.

Hleypur út um allt og berst um alla bolta, keyrði þarna inn í Erik Sandberg í skallaeinvígi

Get ekki ímyndað mér annað en að Hemmi sé sáttur með hann.
31. mín
Skagamenn ákveðnari
Skagamenn eru að komast í ágætis stöður hér og þar en ná ekki að skapa sér dauðfæri.

En þeir eru líklegri en Valsmenn þessa stundina

25. mín
Hemmi byrjaður að eiga við fjórða dómarann
Veit ekki nákvæmlega hvað hann er ósáttur við en var þarna með einhver valin orð og handabrögð handa Skúla Frey.
23. mín
Haukur Andri lætur eldri bróður finna fyrir sér.
Þetta voru svo sannarlega engin vettlingatök en Haukur Andri keyrir þarna inn í Tryggva en búið að dæma rangstöðu.
21. mín
Rólegar síðustu mínútur
Búið að hægjast á leiknum, vindurinn hefur sitt að segja og er að hafa áhrif á leikinn.
16. mín
Nýja tölfræðin sýnir betri byrjun ÍA
59% með boltann
32 sendingar á móti 22 hjá Val
88% nákvæmni á móti 77% hjá Val

Mæli endilega með þessari tölfræð sem er í boði fyrir áskrifendur, einnig er hægt að sjá tölfræði einstakra leikmanna, mjög skemmtileg viðbót
15. mín
Heimamenn klárlega að byrja betur
Meira með boltann og hættulegri stöður það sem af er.

Sandberg með frían skalla inni í teig en nær engum krafti og auðvelt fyrir Schram
12. mín
Brotið á Ómari rétt fyrir utan teig
En Gunnar dæmir ekkert, sýndist Ólafur brjóta þarna á honum hreinlega

Skagamenn ekki kátir
9. mín
Góð sókn þarna hjá Valsmönnum
Flott samspil hjá Lúkasi og Jakobi.

Jakob reynir stungu inn fyrir vörn ÍA en Böddi gerir virkilega vel í að koma í veg fyrir dauðafæri hjá Kristófer Degi sem var sloppinn í gegn.
ÍA
7. mín
InnJohannes Björn Vall
ÚtBaldvin Þór Berndsen
Baldvin getur ekki haldið áfram
Óheppilegt
3. mín
Baldvin og Ómar Björn skullu saman
Þeir liðsfélagar skullu saman og Baldvin þarf aðhlynningu.

Þarf að fara út af í 1. mínútu skv nýjustu reglunni
1. mín
Markús Páll í dauðfæri strax
Þetta var rosalegt, Valur pressar hátt missir boltann bak við vörnina og Markús Páll keyrir í átt að markinu.

Ólafur Flóki gerir vel í að loka á hann, en svo berst boltinn út til hægri á Jón Gísla sem á góða fyrirgjöf aftur á Markús sem hittir boltann ekki nægilega vel en samt fer hann bara naumlega framhjá.

Þarna hefðu heimamenn geta komist yfir strax í upphafi leiks.
1. mín
Það eru Valsmenn sem sparka þessu af stað
Fyrir leik
Liðin eru að labba inn á völlinn
Það styttist heldur betur í fjörið.

Smá vindur en annars góðar aðstæður fyrir fótbolta
Fyrir leik
Gameday á Skipaskaga
Fyrir leik
Leikur sem getur dottið báðum megin
Fyrir leik
Stórar fréttir fyrir Valsmenn
Jónatan Ingi Jónsson er í fyrsta skipti í hóp í deildinni en hann meiddist rétt fyrir mót þegar Valsmenn duttu úr Mjólkarbikarnum.

Það átti að vera stutt í hann fyrir mánuði síðan en hér erum við loksins. Þetta eru stórt fyrir Valsmenn.

Fyrir leik
Innkastið verður í beinni á X977 klukkan 21:30
Elvar Geir, Valur Gunnars og Kristinn Kjærnested gera umferðina upp.

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn
Lárus Orri Sigurðsson þjálfari ÍA, gerir eina breytingu frá bikartapinu gegn Víkingi. Viktor Jónsson kemur inn í liðið fyrir Johannes Vall sem tekur sér sæti á bekknum.

Hermann Hreiðarsson gerir þrjár breytingar frá 1-5 tapleiknum á móti Víkingi. Kristófer Dagur Arnarsson byrjar sinn fyrsta leik í efstu deild, þá snýr fyrirliðinn Hólmar Örn Eyjólfsson úr banni og Ólafur Flóki Stephensen kemur einnig inn. Hörður Ingi Gunnarsson tekur út leikbann og þeir Adam Ægir Pálsson og Myles Veldman taka sér sæti á bekknum. Kristófer Dagur kom til Vals frá Fjölni í vetur.

Fyrir leik
Spámaður vikunnar
Fótbolti.net fékk heldur betur sérfræðing til að spá fyrir 10. umferð en að þessu sinni var það Birkir Már Sævarsson fyrrum leikmaður Vals og Íslenska landsliðsins til margra ára.

Hann notaði alla sína 41 árs reynslu og spáir sínum mönnum auðveldum sigri og er að sjálfsögðu alls ekki litaður í spá þessari?

ÍA 0 - 4 Valur
Þetta verður öruggasti sigur umferðarinnar. Valsarar mæta dýrvitlausir uppá Skipaskaga og keyra yfir Skagamenn. Frændi minn hann Tryggvi Hrafn setur tvö og Hólmar eitt. Ég tók Loka Kristjáns í smá skotkennslu fyrir nokkrum dögum og ætli hann komi ekki inn á í lokin og setji eitt í skeytin?

Fyrir leik
Bræður munu berjast
Að öllu óbreyttu má fastlega gera ráð fyrir því að þeir bræður Tryggvi Hrafn og Hakur Andri Haraldssynir mætast en báðir eru uppaldir Skagamenn.

Tryggvi Hrafn Haraldsson leikmaður Vals verður samningslaus eftir tímabilið og hafa nokkuð félög rætt við hann samkvæmt heimildum Fótbolta.net



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mun Tryggvi Hrafn klæðast gulu treyjunni á ný?
Fyrir leik
Valsmenn á tímabilinu
Gengi Valsmanna eru nokkurn veginn eins og spár gerðu ráð fyrir sérstaklega í ljósi þess að þrír lykilmenn liðsins hafa ekkert spilað í sumar en það eru þeir Jónatan Ingi Jónsson, Kristinn Freyr Sigurðsson og auðvitað Patrick Pedersen.

Valsmenn hafa spilað einum leik fleiri en ÍA og eru einmitt með þriggja stiga forskot í 5. sæti. Athygli vekur að liðið hefur ekki enn gert jafntefli í sumar og hefur unnið og tapað fimm leikjum.

Valsmenn hafa síðan tapað síðustu tveimur leikjum í deildinni 1-5 á móti Víkingi og 1-3 á móti KRingum þannig að nú þurfa Valsmenn að rífa sig í gang ef þeir ætla að gera sér einhverjar vonir um Evrópusæti.

Síðast þegar þessi lið mættust upp á Skaga í deildinni í fyrra átti risastór atburður sér stað en í fjörugum leik sem endaði 2-2 sló Patrick Pedersen markametið og varð markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi.



Fyrir leik
Skagamenn á tímabilinu
Gengi Skagamanna hefur heilt yfir verið aðeins undir pari miðað við væntingar spámanna og eflaust þeirra eigin fyrir tímabilið.

Liðið hangir um miðja deild eftir 9. umferðir eins og má gera ráð fyrir þegar lið eru með þrennt af öllu, sem sagt þrír sigrar, þrjú jafntefli og þrjú töp í sumar.

Að því sögðu þá er gengi Skagamanna á uppleið og liðið hefur nælgt sér í 7 stig af 9 mögulegum í síðustu þremur umferðunum.

Nú er ekkert framundan nema deildin hjá Skagamönnum þar sem liðið datt út í 8-liða úrslitum 1-2 gegn ógnarsterku liði Víkings.

Skagamann voru duglegir að fá til sín stór nöfn fyrir tímabilið eins og Gummi Tóta, Gísli Eyjólfs og Böddi en það er engin spurning að bestu kaupin fyrir tímabilið eru án efa Markús Páll Ellertsson.

Markús Páll Ellertsson hefur komið gífurlega sterkur inn í liðið og er markahæstur í liðinu með sex mörk í fyrstu níu leikjum.

Hér má lesa skemmtilega spá Jón Þórs Haukssonar fyrrum þjálfara liðsins fyrir tímabilið um Markús. Og þess má geta að Stjarnan vonast nú til þess að Jón Þór reynist jafn sannspár hjá þeim en hann tók nýlega við sem þjálfari þar á bæ.



Fyrir leik
Dómarar í kvöld
Dómari hér í kvöld er Gunnar Freyr Róbertsson, honum til handar eru þeir Eysteinn Hrafnkelsson og Jovan Subic sem aðstoðardómarar.

Fjórði dómari dómarinn er Arnar Ingi Ingvarsson og eftirlitsmaður er Skúli Freyr Brynjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta Deildin á Akranesi
Góðan dag kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í 10. umferð Bestu Deildar karla.

Hér verður bein textalýsing þegar ÍA fær Val í heimsókn á ELKEM vellinum og hefst leikurinn klukkan 19.15

Þrátt fyrir að þetta sé 10. umferðin þá hafa liðin í sem spila í Evrópu eins og Valur spilað einum leik fleira en ÍA. Sem sagt þetta er tíundi leikur ÍA en ellefti leikur Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.