Leik lokið!
Blikar með sannfærandi 0-3 sigur!
Öruggur sigur Blika í Vestmannaeyjum, voru 0-3 yfir í hálfleik og sigurinn í raun aldrei í hættu.
93. mín
Líf með frábæran sprett og er alveg að koma sér í skotfæri en Kristín Klara með frábæra vörn gegn henni og fær svo aukaspyrnu í kjölfarið.
93. mín
Lilja Þórdís nálægt því að sleppa ein í gegn eftir sendingu frá Bryndísi en Guðný kemur langt út úr markinu og hreinsar.
90. mín
+3 í uppbótartíma.
90. mín
InnViktoría Emma Arnórsdóttir
ÚtHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
90. mín
InnBára Björk Jóelsdóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
89. mín
Gult spjald
Avery Mae Vanderven
Missir boltann illa og togar svo Katelyn niður.87. mín
Helena Hekla með sko utan af velli en auðvelt fyrir Herdísi sem grípur boltann.
87. mín
Katelyn með skot tilraun lengst utan af velli en skotið er máttlaust.
86. mín
InnErla Hrönn Unnarsdóttir
ÚtViktorija Zaicikova
86. mín
InnMagdalena Jónasdóttir
ÚtAllison Patricia Clark
83. mín
Milena fór upp hægri kantinn og gaf fyrir. Elísa reyndi að skalla í burtu og boltinn dettur fyrir Olgu sem tekur skotið en fer af Elísu og aftur fyrir.
83. mín
FÆRI HJÁ BRYNDÍSI!
Boltinn barst á Bryndísi sem er ein og óvölduð á vítapunktinum en hún hittir boltann illa. Hún fékk svo annað færi stuttu seinna en skotið fór beint á Guðnýju.
81. mín
Líf finnur Hrafnhildi Ásu í hlaupinu hægra megin og hún kemst upp að endalínu. Hún nær fyrirgjöfinni en Avery er fyrst á boltann og kemur honum í burtu.
79. mín
InnLilja Þórdís Guðjónsdóttir
ÚtAgla María Albertsdóttir
79. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtÓlöf Sigríður Kristinsdóttir
79. mín
Vel spilað hjá ÍBV. Þóra og Olga með flott samspil og Þóra kemur boltanum á Milenu sem kemur sér í skotfæri en skotið er slakt og fer framhjá.
78. mín
Þóra Björg með flotta hornspyrnu á nærstöngina beint á Helenu Heklu en hún nær ekki að stýra þessu á markið.
77. mín
InnOlga Ingibjörg Einarsdóttir
ÚtKristín Dís Árnadóttir
Kristín Dís getur ekki haldið leik áfram.
76. mín
Líf reynir stungusendingu á Ollu Siggu en setur alltof mikinn kraft í sendinguna og Guðný hreinsar.
74. mín
InnÞóra Björg Stefánsdóttir
ÚtAllison Grace Lowrey
73. mín
Kristín Dís liggur aftur eftir á vellinum og leikurinn stopp á meðan er verið að hlúa að henni.
71. mín
Clark kemur boltanum út á Helenu Heklu og hún kemur með fína fyrirjgjöf inn á teiginn. Milena nær skallanum en hann er laus og beint á Herdísi í marki Blika.
70. mín
Gult spjald
Jón Ólafur Daníelsson
68. mín
Líf gerir vel úti hægra megin, finnur Öglu Maríu inn á miðsvæðinu sem keyrir að markinu. Hún finnur svo Ollu Siggu inn á teignum og hún kemur sér í skotfæri en Avery nær að koma sér fyrir boltann.
66. mín
Olga gerir vel úti hægri megin, dansar fram hjá tveimur varnarmönnum og kemur með fyrirgjöf en alltof fáar inn á teignum frá ÍBV og Herdís Halla handsamar boltann.
65. mín
Vel spilað hjá Blikum. Agla Maríu finnur Líf í hlaupinu hægra megin og hún kemur með fyrirgjöf sem Avery setur svo í innkast.
64. mín
Clark reynir að lauma boltanum inn á Lowrey en Elísa kemur boltanum í burtu.
60. mín
BLIKAR BJARGA Á LÍNU!
Olga með fyrirgjöf frá vinstri á fjær. Allison nær að skalla boltann aftur fyrir markið á Avery sem nær að pota í boltann og Blikar bjarga á línu.
Boltinn barst svo út á Olgu og hún á skot í hliðarnetið
Boltinn barst svo út á Olgu og hún á skot í hliðarnetið
59. mín
Milena nálægt því að sleppa í gegn. Hún vann boltann af Elínu Helenu en hún bjargar sér svo kemur boltanum aftur fyrir.
56. mín
DAUÐAFÆRI!!
Líf fór upp hægra megin og gefur á Öglu Maríu sem er inn á markteig. Fyrsta snerting hennar er slök og skotið enn slakara og fer framhjá markinu.
55. mín
Vel spilað hjá blikum sem endar á sendingu upp völlinn frá Öglu Maríu á Líf en Avery gerir vel gegn henni og kemur boltanum aftur fyrir og Blikar fá horn.
54. mín
Clark aftur með fyrirgjöf en hún er of innarlega og beint í hendur Herdísar.
53. mín
Allison Clark gerir vel, nær að snúa með boltann og keyrir upp að endalínu og kemur með sendingu inn á teiginn. Olga er bara ein þar gegn þremur Blikastelpum og nær ekki til boltans.
51. mín
Agla María fær boltann úti hægri megin og keyrir inn á völlinn og tekur skotið en það er beint á Guðnýju.
48. mín
Klafs inn á teignum eftir hornið og ÍBV fær annað horn. Herdís Halla grípur spyrnuna frá Olgu.
47. mín
Kristín Klara vinnur horn fyrir ÍBV.
45. mín
InnHelena Hekla Hlynsdóttir
ÚtRagna Sara Magnúsdóttir
ÍBV með tvöfalda breytingu í hálfleik.
45. mín
InnMilena Mihaela Patru
ÚtEdda Dögg Sindradóttir
ÍBV með tvöfalda breytingu í hálfleik.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið í gang aftur.
45. mín
Hálfleikur
Blikar yfir í hálfleik 0-3!
Blikar leiða sanngjarnt í hálfleik og voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik.
45. mín
Það voru +4 í uppbótartíma.
45. mín
Blikar fá hornspyrnu.
45. mín
Agla María með fyrirgjöfina inn á teig ÍBV af stuttu færi en Guðný vinnur boltann.
43. mín
Frábær sókn hjá Blikum!
Hrafnhildur Ása vinnur boltann inn á miðsvæðinu og kemur með frábæra sendingu í gegn á Öglu Maríu sem er ein gegn Guðnýju en skotið hennar fer rétt framhjá.
42. mín
Edda Dögg gerir vel inn á miðjunni hjá ÍBV, vinnur boltann og kemur honum á Lowrey í hlaupinu. Fyrsta snerting hjá Lowrey er hinsvegar allt of löng og hún þarf að teygja sig í skotið sem er laust og beint á Herdísi.
39. mín
Agla með fyrirgjöf frá vinstri eftir fínt spila Blika en sendingin er of innarlega og auðveld fyrir Guðnýju í marki ÍBV.
38. mín
Allison Lowrey tíar boltann upp fyrir nöfnu sína Clark fyrir utan teig Blika sem ætlar að skjóta í fyrsta en hittir einfaldlega ekki boltann. Blika hreinsa.
36. mín
OLGA!!
Flott sókn hjá ÍBV. Fridrikka ber boltann upp miðjuna og kemur boltanum út á Olgu vinstra megin. Hún tekur boltann með sér inn á við og lætur vaða en skot hennar er rétt fram hjá!
35. mín
Mistök í vörn ÍBV. Sandra missir boltann undir sig og allt í einu er Agla María ein á auðum sjó vinstra megin. Hún ætlar að skipta boltanum yfir á Ollu Siggu en sendingin er frekar slök og Avery nær að koma boltanum í burtu. Illa farið með gott upphlaup.
32. mín
Fridrikka með skot utan af velli en það er hátt yfir markið.
31. mín
Viktorija með skotið fyrir utan teig en það er yfir markið.
30. mín
Vel gert hjá Allison Clark, kemst upp að endalínu og nær fyrirgjöfinni á fjær. Olga nær hinsvegar ekki að ná valdi á boltanum og missir hann aftur fyrir.
27. mín
Kristín Dís liggur eftir á vellinum eftir eitthvað hnjask.
25. mín
ÍBV fær hornspyrnu. Viktoija með spyrnuna sem dettur fyrir Lowrey. Hún kemur boltanum út á Olgu sem tekur skotið fyrir utan teiginn en það fer af varnarmanni og í hendur Herdísar Höllu.
23. mín
Blikar með öll völd á vellinum!!
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (stoðsending: Líf Joostdóttir van Bemmel)
Líf kemur með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn og þar er Olla Sigga mætt til að stanga boltann í netið og kemur Blikum í 0-3!22. mín
Allison Lowrey reynir að finna Olgu í hlaupinu en sendingin er of löng og Herdís Halla hreinsar fram.
19. mín
0-2!!
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (stoðsending: Sunna Rún Sigurðardóttir)
Sunna Rún tekur hornspyrnuna fyrir Blika sem ÍBV nær að hreinsa en hún fær boltann aftur og kemur með fyrirgjöf beint á hausinn á Ollu Siggu sem stangar boltann í netið.18. mín
Sunna Rún með hættulega hornspyrnu fyrir Blika sem Guðný nær að slá aftur fyrir og þær fá annað horn.
16. mín
Elín Helena reynir stungusendingu á Öglu Maríu sem er í fínu hlaupi en flaggið fór á loft.
14. mín
Agla fékk boltann óvænt eftir lélega hreinsun ÍBV og tók boltann í fyrsta en skot hennar framhjá. Hafði líklega meiri tíma til þess að athafna sig.
14. mín
Agla María kemur með góðan bolta inn á teig ÍBV frá vinstri en Eyjakonur hreinsa.
12. mín
SLÁIN!!
Agla María með góða hornspyrnu og Elín Helena stekkur hæðst allra og skallar boltann í slánna og aftur fyrir!
11. mín
Frábærlega gert hjá Allison Lowrey, vinnur boltann ofarlega á vellinum og kemur boltanum á Fridrikku úti hægra megin. Hún kemur með fyrirgjöf en Olga nær ekki til boltans og Blika hreinsa.
8. mín
Blikar komast í 0-1!
Líf Joostdóttir van Bemmel (stoðsending: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir)
Vel spilað hjá Blikum. Hrafnhildur Ása fékk boltann í hlaupið vinstra megin á vellinum og keyrir inn á teiginn. Hún kemur með fyrirgjöf á fjær með jörðinni og Líf klárar örugglega fram hjá Guðnýju og kemur Breiðablik í 0-1!5. mín
Elísa kemur með fyrirgjöf inn á teig ÍBV sem Avery hreinsar í burtu.
4. mín
Mikil stöðubarátta hér fyrstu mínúturnar.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Heimakonur eiga upphafsspyrnuna og leika í átt að Týsvelli.
Heimakonur eiga upphafsspyrnuna og leika í átt að Týsvelli.



