SKÝRSLAN: Markaflóð í Vesturbænum
Hvað réði úrslitum?
Sóknarleikur KR er stórkostlegur og það er svo erfitt fyrir lið að verjast gegn þeim. Þeir fá oftast á sig sín mörk en skora fimm hér í dag sem dugir til sigurs. Karakterinn í KR liðinu var góður í dag en þeir koma tvisvar til baka og komast tvisvar yfir og ná að lokum að klára þennan leik.
Bestu leikmenn
1. Aron Sigurðarson
Enn eitt skiptið sem hann fær þennan heiður. Skorar tvö og leggur upp eitt og er bara alltaf allt í öllu í sóknarleik KR.
2. Arnór Yngvi Traustason
Skorar fyrsta mark KR og leggur upp annað markið. Var flottur á miðjunni og dró sig mikið út til hægri og skoraði einmitt markið sitt þar.
Atvikið
Kveðjustund Alexanders rafns eftir leik var falleg. Alexander var að spila sinn síðasta leik fyrir KR í bili þar sem hann fer út í atvinnumennsku. Stuðningsmenn KR gáfu honum verulega góða kveðjustund sem hann mun líklega seint gleyma.
Hvað þýða úrslitin?
KR heldur forskoti Víkings í sex stigum svo mótið er langt frá því að vera búið strax þó Víkingsliðið líti ansi vel út um þessar mundir. Skagamenn eru að fara í tvo erfiða leiki gegn Fram og Breiðablik og ljóst er að þeir verði að sækja góð úrslit í þeim leikjum ætli þeir sér að ná í Evrópusæti.
Vondur dagur
Annað mark ÍA var alveg hrikalega klaufalegt hjá KR-ingum og Gabríel Hrannar skallar boltann yfir Halldór sem ætlaði að taka hann sjálfur og setja hann fram völlinn. Gabríel tekur þetta á kassann í dag fyrir ekki nægilega góða umhverfisskynjun en hann kemur sterkari til baka.
Dómarinn - 7
Ekkert við Helga Mikael að sakast.



