Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetGuðmundur Jónasson
Þór/KA
Þór/​KA
Besta kvenna
VÍS völlurinn
Sól og 13 gráður smá skýjað
2 - 0
Þróttur R.
Þróttur R.
María Dögg Jóhannesdóttir 16'1 - 0Amalía Árnadóttir 25'2 - 0
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Þórs/KA staðreynd

Hvað réði úrslitum?

Orkustigið hjá Þór/KA var miklu hærra en hjá Þrótti Rreykjavík. Þór/KA pressuðu hátt allann leikinn og voru að vinna boltann oft á seinasta þriðjungi. Sveinn Leó Bogason var að öskra og peppa sínar stelpur allann tímann og það hefur klárlega hjálpað þeim mikið með að halda orkustiginu háu í 90+ mínútur.

Bestu leikmenn

1. María Dögg Jóhannesdóttir

María Dögg gerði virkilega vel í markinu sem hún skoraði og varðist virkilega vel.

2. Hildur Anna Birgisdóttir

Mig langar að gefa Hildi 2.sætið hún hljóp endalaust og var að gera mjög mikið af hlutum sem ekki margir taka endilega eftir og var lykillinn af því að orkustigið og pressan hjá Þór/KA var svonan gott út allann leikinn. Gæti nefnt allt Þórs/KA liðið í dag en valdi þessar tvær en þær eiga allar skilið að vera í top 2.

Atvikið

Frábært mark hjá Maríu Dögg sem gaf Þór/KA klárlega extra orku og trú að þær gætu farið og unnið þennan leik.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA sækja sinn fyrsta sigur í sumar og eru með 6 stig og fara fyrir ofan Fram í 9.sæti. Þróttur eru ennþá í 5.sæti með 13 stig.

Vondur dagur

Jóhann Kristinn Gunnarsson náði greinilega ekki að gíra sínar stelpur í þennan leik og mér fannst hann ekki bregðast nægilega vel við í leikplani né skiptingum til að reyna breyta leiknum. Þór/KA voru með yfirhöndina allann leikinn.

Dómarinn - 7

Hélt sinni línu bara ágætlega. Hefði viljað að hann myndi leyfa meira í leiknum en hann var mikið að dæma á lítil brot og gerði það á bæði lið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.